KVENN – tengslanet


Stofnfundur KVENN, sem er tengslanet uppfinninga- og frumkvöðlakvenna var haldinn í Perlunni 11.júlí 2007.  Þar voru mættar konur sem allar fást við nýsköpun á ýmsum sviðum. M.a. þær sem hafa fengið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir nýsköpun sína og ungar konur sem hafa tekið þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.

Tengslanetið KVENN hefur það markmið að gera konur sýnilegri á sviði uppfinninga og frumkvöðlastarfsemi. KVENN er í  norrænu(QUIN) og alþjóðlegu(GWIIN) samstarfi við að vekja athygli á nýsköpun kvenna og markmiðið er að búa til jákvæðar fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir.

KVENN mun leitast við að vera í samstarfi við hin ýmsu félög, skóla og atvinnulíf, til þess að ná því markmiði sínu að gera konur sýnilegri og afkastameiri á sviði uppfinninga og í frumkvöðlastarfsemi.

Í stjórn eru: Ágústína Ingvarsdóttir, sálfræðingur, Dórótea H. Sigurðardóttir, háskólanemi, Kolbrún Hjörleifs, skólastjóri Grunnskóla Mýrdalshrepps, María Ragnarsdóttir, doktor í sjúkraþjálfun, Svanborg R.Jónsdóttir , kennari og doktorsnemi í nýsköpunarmennt, Þuríður Guðmundsdóttir, EUWIIN verðlaunahafi og Elinóra Inga Sigurðardóttir sem er formaður KVENN. Hún hefur verið fulltrúi Íslands í norrænu tengslaneti uppfinninga og frumkvöðlakvenna, QUIN, frá 1996 og er höfundur að heimasíðu þeirra www.quinnetwork.com . Hún hefur skipulagt sýningar og ráðstefnur fyrir samtökin hér á landi árin 2001,2004 og 2005. Hún hefur einnig haldið fyrirlestra m.a. á OECD fundi í París 2002 og á fundi Business Women Network í Washington DC 2003, um mikilvægi tengslaneta, nýsköpun kvenna og mikilvægi þess að byggja upp sterkar og jákvæðar fyrirmyndir.

Fyrirtæki félagskvenna eru m.a.:

www.plasterplug.com Ný lausn til viðgerða á veggjum úr gifsi, stein eða spón.

AURIS – Ný meðferð við eyrnabólgu. Viðskiptahugmyndin felur í sér notkun velþekkts bakteríudrepandi efnis sem komið er fyrir í sérhönnuðum eyrnatöppum í ytra eyra til meðhöndlunar á miðeyrnabólgu.

www.thegreenbalm.com græðandi smyrsl og snyrtivörur úr íslenskum jurtum, sem notaðar hafa verið t.d. á brunadeild Landsspítalans. Fékk EUWIIN verðlaun í Berlín 2007

ReMo ehf. er sprotafyrirtæki í heilbrigðistækni sem vinnur að þróun og sölu á öndunarhreyfingamæli.
www.lifenavigation.com
www.hsh.ehf.is
www.hjalli.is
www.lexia.is
www.sogumidlun.is
www.voluskrin.is

Share

Tengt efni:

  1. Þættir um íslenska frumkvöðla Ný sjónvarpsþáttaröð á Ínn tv um íslenska frumkvöðla. Hér er...
  2. Hvað munu þær velja eftir 10-15 ár? Dofri Hermannsson, sem er á grænu línu Samfylkingar og hefur...
  3. Íslenskar uppfinningar, konur í nýsköpun Á morgunn fimmtudag 27.nóv. kl.16 mun Orkuveita Reykjavíkur og KVENN,...
  4. Um skýrslu um nýsköpun Vefnum barst bréf frá Elínóru Ingu Sigurðardóttur hönnuði um skýrslu...
  5. Verum vakandi um náttúru Íslands Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í...

One Response to “KVENN – tengslanet”

  1. Þættir um íslenska frumkvöðla | nattura.info Says:

    [...] Umsjónarkona er Elínóra Inga Sigurðardóttir, sem sjálf er frumkvöðull og var formaður frumkvöðla og uppfinningamanna 1998-2007 en stofnaði þá KVENN, félag kvenna í nýsköpun, sjá http://nattura.info/article/kvenn-tengslanet/ [...]

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.