Norðurlönd eiga að vera í fararbroddi !

Norðurlandaráð hefur samþykkt tillögu að framkvæmdaáætlun um umhverfisvænar samgöngur á Norðurlöndum. Þingmennirnir leggja til við ráðherrana að lögð verði fram áætlun á þingi Norðurlandaráðs að ári áður en leiðtogafundurinn um loftslagsmál verður haldinn í Kaupmannahöfn.

Samgöngur valda um 25-30% losunar koltvísýrings, CO2, út í andrúmsloftið á Norðurlöndunum. Á sama tíma hefur hlýnun jarðar mikil áhrif á Norðurlöndin, sérstaklega Norðurheimskautið, á þetta benda norrænir þingmenn sem sitja Norðurlandaráðsþingið í Helsinki dagana 27. – 29. október.

Byggt á þessum staðreyndum hefur atvinnumála- og umhverfisnefnd Norðurlandaráðs lagt fram tillögu um sameiginlega norræna framkvæmdaáætlun um umhverfisvænar samgöngur.

„Áætlanagerð til lengri tíma er þörf, þess vegna leggjum við til við Ráðherranefndina að hún leggi fram áætlun á þinginu sem haldið verður að ári, sem gæti orðið vegvísir fyrir leiðtogafundinn um loftslagsmál í Kaupmannahöfn”, sagði Lisbeth Grønfeldt Bergman formaður atvinnumálanefndarinnar í ræðu sinni.

Í tillögunni er lagt til að auka norrænt samstarf um orkusparnað og loftslagsvænar samgöngulausnir og að lögð verði sérstök áhersla á flutninga með lestum og skipum í stað þess að nota flug og bíla til flutninga.

Í framhaldi af þessu nefndu margir ræðumenn verðlaunahafa Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár, íslenska fyrirtækið Marorku, sem hefur þróað tækni til að minnka eldsneytisnotkun í skipum. Stjórnmálamennirnir vildu einnig auka samræmingu lestarsamgangna og þróun þeirra á Norðurlöndunum.

Þann hálfa milljarð sænskra króna sem gert er ráð fyrir að fjárfesta í öndvegisrannsóknum og ráðherrar rannsókna samþykktu þann 28. október, ætti einnig að nýta til þróunar umhverfisvænna samgangna, að mati ráðsins.

Sameiginleg rannsóknaverkefni eiga að efla þróun umhverfisvænni samgöngugeira og setja á hugmyndabanka á laggirnar, þar sem hægt verður að skiptast á reynslu og „best practice”.

„Við verðum að koma í veg fyrir loftslagsvandann og Norðurlöndin eiga að vera þar í fararbroddi”, sagði Sidsel Homann frá Danmörku.

Hún gagnrýndi einnig að ekki væri skýr fókus á samgöngugeirann í tillögum Ráðherranefndarinnar um stefnumörkun um sjálfbæra þróun 2009-13. Fleiri þingmenn hvöttu í framhaldinu til þess að Norðurlöndin mörkuðu heildarstefnu.

„Fjármálakreppuna á að nýta til að efla aðgerðir hvað varðar loftslagskreppuna”, sagði Inge Ryan talsmaður atvinnumálanefndarinnar. Við þurfum nýja umhverfisstefnu, sem við getum verið stolt af og sett sem tákn norræna velferðarlíkansins.

Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun: http://www.norden.org/baeredygtig_udvikling/sk/index.asp?lang=2

Úr fréttabréfinu Norðurlönd í vikunni, miðvikudagur 29.10.2008

Share

Tengt efni:

  1. Sjálfbær þróun: Ný stefna fyrir Norðurlönd: 2009-2012 Norræn umhverfisáætlun Framkvæmdaáætlun 2009-2012 Loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, sjálfbær neysla og...
  2. Norrænt framlag til loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Norrænu umhverfisráðherrarnir greindu frá áætlunum Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndarinnar um...
  3. Norrænt framlag til loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Fréttablaðið Norðurlönd í vikunni: 28.10.2008 Norrænu umhverfisráðherrarnir greindu frá áætlunum...
  4. Norrænar orkulausnir í netheimum ! Á Norden, vef um opinbert samstarf Norðurlandaþjóðanna eru fréttir um...
  5. Umhverfisvernd og atvinnuþróun hönd í hönd í Norðurlandaráði úr fréttabréfinu Norðurlönd í vikunni frá 29.10.2008. Norrænu umhverfisráðherrarnir sjá...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.