Þekkingarnet Austurlands


Þekkingarnet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 13. júní 2006 á grunni Fræðslunets Austurlands sem stofnað var 30. október 1998. Starfssvæði er allt Austurland, frá Skeiðará í suðri að Langanesi í norðri.
Meginmarkmið með starfi Þekkingarnets Austurlands er að bæta aðgengi íbúa Austurlands að háskólanámi, símenntun og styrkja með því jákvæða byggðaþróun.

Verkefni Þekkingarnets Austurlands:

ÞNA veitir upplýsingar um nám og tækni.
ÞNA miðlar háskólanámi, kynnir námið, þjónustar fjarnema og hefur umsjón með prófum.
ÞNA skipuleggur námskeið á fjölmörgum sviðum.
ÞNA veitir ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga.
ÞNA tekur þátt í þróunarverkefnum með samstarfsaðilum.
Þekkingarnet Austurland rekur Háskólanámssetur FNA á Egilsstöðum samkvæmt sérstökum samningi við Menntamálaráðuneytið. Auk þess tekur ÞNA þátt í rekstri námsvera á nokkrum stöðum á Austurlandi í samstarfi við framhaldsskóla og sveitarfélög.

Þekkingarnet Austurlands er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana á Austurlandi.

Þekkinganet Austurlands kynnir, miðlar og skipuleggur nám sem einstaklingar og fyrirtæki í fjórðungnum kunna að þurfa og óska eftir hverju sinni. Það leggur á ráðin með faghópum ýmis konar sem vilja bæta við þekkingu sína, um lengra eða styttra nám, útbýr sérvalin námskeið eftir óskum og sér um undirbúning þeirra s.s. útvegun kennara, húsnæðis o.fl

Þekkingarnet Austurlands kemur á framfæri óskum íbúa Austurlands við samstarfsaðila sína og getur einnig haft frumkvæði að námsframboði.

Sjá nánar: http://www.tna.is/

Share

Tengt efni:

  1. NEED – Northern Environmental Education Development-project Íslenskt heiti: UNN – Umhverfismennt og Náttúruskólastarf á Norðurslóðum Fjölþjóðlegt...
  2. Nýheimar á Höfn Nýheimar eru miðstöð fjölbreyttrar starfsemi þar sem unnið er að...
  3. Ríki Vatnajökuls Ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasinn Ríki Vatnajökuls var formlega stofnaður sumarið...
  4. Sjálfbærni / Sprotar Vinnufundir um aðrar leiðir að auðlindunum Um árabil og um...
  5. Fræðasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.