Þekkingarsetur Þingeyinga

Þekkingarsetur Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana er sameinaðar voru árið 2006. Um er að ræða símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga annars vegar og háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfaði einnig undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga fram að sameiningunni. Fræðslumiðstöðin hóf starfsemi árið 1999 og sinnti fullorðinsfræðslu og símenntunarstarfi í héraðinu en Þekkingarsetrið var stofnað árið 2003 samhliða Náttúrustofu Norðausturlands, sem starfar innan setursins. Starfssvæði Þekkingarsetursins er Þingeyjarsýslur en aðsetur þess er á Húsavík. Þekkingarsetur Þingeyinga býður upp á námskeiðahald, hefur milligöngu um námsleiðir og námsframboð fyrir fólk og vinnustaði og rekur háskólanámssetur með þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir háskólanema á svæðinu. Einnig er setrið miðstöð rannsókna og hýsir til lengri og skemmri tíma fólk, stofnanir og fyrirtæki sem stunda rannsóknir í héraðinu.

Sjá nánar: http://www.hac.is

Share

Tengt efni:

  1. NEED – Northern Environmental Education Development-project Íslenskt heiti: UNN – Umhverfismennt og Náttúruskólastarf á Norðurslóðum Fjölþjóðlegt...
  2. Fræðasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir...
  3. Opnun Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Húsavík Á morgun, fimmtudaginn 4. desember, verður Rannsókna- og fræðasetur Háskóla...
  4. Þekkingarnet Austurlands Þekkingarnet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 13. júní 2006 á...
  5. Vöruþróun á Vestfjörðum Frá mbl.is : hvatt_til_voruthrounar_a_vestfjordum Vöruþróun á Vestfjörðum er verkefni á...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.