Þjóðfræðistofa á Hólmavík

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista.

Á meðal fjölbreyttra verkefna þjóðfræðistofu eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildarmyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eruupplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

http://www.icef.is/

Share

Tengt efni:

  1. Vorþing Þjóðfræðistofu á Hólmavík Laugardaginn 11. apríl 2009 mun Þjóðfræðistofa blása til vorþings og...
  2. Hönnunarmiðstöð Íslands Hönnunarmiðstöð Íslands er ætlað að auka skilning á mikilvægi góðrar...
  3. Samræða okkar Samræðan okkar | Neisti : Vinnufundir | Gullpakkinn: Breytingatillögur |...
  4. Ábyrgð Íslands Umhverfismál á Íslandi...
  5. Hvað er sjálfbær þróun? Hvað er sjálfbær þróun? Hvaðan kemur hugmyndin og hvernig hefur...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.