Grænt Íslandskort

Grænt Íslandskort/Green Map en samvinnuverkefni Náttúran.is, alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands.

Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður og slær smiðshöggið á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is og á ensku á Nature.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem þegar eru fyrir hendi á vefnum.

Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki hefur unnið fyrir því.

Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt.
Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Sjá nánar á: www.natturan.is

Skoða græna kortið á: íslensku: og á ensku.

Skoða alþjóðlegan vef verkefnisins: Green Map Systems:

Share

Tengt efni:

  1. Eco Procura: ráðstefna um vistvæn innkaup 25-27. mars Opnað hefur verið fyrir skráningu á sjöundu alþjóðlegu EcoProcura ráðstefnuna...
  2. Aðvaranir Paul Hawken og nýleg frétt um óheilindi Alcoa Í frétt á stöð tvö fyrir viku síðan var lítil...
  3. Stiki. Consulting- and Software Development Company Stiki is a consulting- and software development company which specializes...
  4. Í dag klukkan sex: Græn samdrykkja og tengslamyndun í grasrót Í tengslum við Græna daga nemendafélags Háskóla Íslands er í...
  5. Björk and active forces of nature conservation challenge a Minister today Björk Guðmundssdóttir united the active forces of nature conservation in...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.