Björk Guðmundsdóttir frumflutti lag sitt Náttúra á vinnufundi um íslenskt samfélag, sem hún skipulagði í október. Lagið var síðan selt á vef Nattura.info. Ágóðinn af sölunni fer í að flytja til landsins einn atkvæðamesta fræða- og athafnamann á sviði sjálfbærrar þróunar, tengslamyndunar og sprotavaxtar, hinn bandaríska Paul Hawken. Hann kemur, ásamt öðrum heimsþekktum umhverfisverndarsinna, John Picard, sem er ráðgjafi um grænkun athafnalífsins og tók m.a. þátt í að gera Hvíta húsið grænt undir stjórn Clintons. Þann 11. desember koma Hawken og Picard til landsins og hitta ráðamenn, forstöðumenn nýsköpunar- og atvinnusamtaka, forsprakka í sprotafyrirtækjum og samtökum um sjálfbærni og samfélagslega, efnahaglega og umhverfislega ábyrgð. Þeir koma til að skoða stöðu mála á Íslandi, taka þátt í samræðu um atvinnu- og fyrirtækjatækifæri og gefa góð ráð um samfélagslega þróun í átt að sjálfbærni.
Paul Hawken er eftirsóttur ráðgjafi út um allan heim og hefur hjálpað stöndugum fyrirtækjum og opinberum stofnunum við að umbreyta afstöðu sinni og ímynd. Hawken er forsprakki Stofnunar um náttúruauðlindir (www.naturalcapital.org) sem er teymi fræðimanna, vísindamanna í rannsóknum, kennara, nemenda, aktívísta, rithöfunda, félagslegra ábyrgra fjárfesta, listamanna og sjálfboðaliða “sem vilja leggja jörðunni lið á erfiðum tímum og hlúa að sárum menningarinnar.” Nýlegt félagslegt verkefni Hawken er vefsíða sem safnar upplýsingum um hugsjóna-hreyfingar víðs vegar í heiminum: www.wiserearth.com.
Paul Hawken hefur gefið út tugi bóka um sjálfbæra þróun og um hina heildrænu sýn á heiminn sem við þörfnumst núna, flestar þessara bóka eru metsölubækur um allan heim og fjalla m.a. um “grænt” fjármagn, tengsl fjármagns og náttúruverndar og mikilvægi heildrænnar sýnar á samfélagið og víðtækrar grasrótar tengslamyndunar. Meðal rita Hawken sem selst hafa í milljónatali eru Vistfræði viðskipta, Ræktun viðskiptatengsla, Næsta hagfræðikerfi og síðasta bók hans Blessed unrest, sem fjallar um tilkomu stærstu hreyfingar í heimi og um það af hverju enginn sá hana verða til, sjá www.blessedunrest.com
Paul Hawken er meðal eftisóttustu fyrirlesara í heimi. Suma af lestrum hans má finna á netinu, t.a.m.: http://www.youtube.com/watch?v=N1fiubmOqH4
http://www.youtube.com/watch?v=aiJNeln-1zs
http://www.youtube.com/watch?v=UGDXnoamGuI
John Picard sem er heimsþekktur umhverfisverndarsinni, arkítekt og entrepreneur. Hann tók þátt í að umbreyta umverfisstefnu Hvíta hússins og gera hana “græna” í tíð Bill Clintons. Síðan þá hefur Picard veitt mörgum fyrirtækjum og byggingarverkefnum ráð um stefnubreytingu og sjálfbæra þróun.
Sjá viðtal við Picard: http://www.youtube.com/watch?v=WHTq7KDbHqM
Laugardaginn 13. desember kl. 14.00
heldur Paul Hawken opinn fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu
við Hverfisgötu 15, í Bókasal á annarri hæð.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!
Tengt efni:
- Paul Hawken : Fyrirlestrar og viðtöl Paul Hawken er meðal eftisóttustu fyrirlesurum í heimi. Suma af...
- Góðir gestir : Hawken & Picard Paul Hawken: Fyrirlestrar og viðtöl | Paul Hawken : Rit,...
- Fyrirlestur Hawken: Í dag kl. 14.00 í Þjóðmenningarhúsinu Í dag heldur Paul Hawken fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu, en hann...
- Paul Hawken: Rit, vefir og verkefni Paul Hawken er eftirsóttur ráðgjafi út um allan heim og...
- Paul Hawken : Á elleftu stundu Síðastliðið sumar kom út heimildamyndin Á elleftu stundu, the Eleventh...


December 11th, 2008 at 9:50 am
[...] Also speaking at Zeitgeist08 was Paul Hawken. Hawken is giving a speech on sustainability here in Reykjavik on Saturday (Icelandic). From the little stuff I’ve seen he seems a little too evangelistic for my taste, [...]