Gefum Íslandi gjöf ; gefum íslenska gjöf í ár

Yfir sextíu smáfyrirtæki um land allt taka þátt í átaki um kynningu og sölu gjafavöru og góðrar þjónustu. Úrvalið er mikið: Gæðamatvæli, hlýr fatnaður, vandaðir munir, gisting við þjóðveg eða úti í auðn, alúðar bað- og heilsumeðferð fjarri skarkala höfuðborgar, svo fátt eitt sé nefnt. Nógur er fjölbreytileikinn, en til að auka eftirspurn þarf að minna á gróskuna og gæðin. Íslensk gjöf er gjafabréf

Með því að gefa ástvinum og vandamönnum trygga ávísun á sérstæða upplifun og innlendan kost, þá er ekki einungis verið að gefa góða íslenska gjöf, heldur jafnframt verið að gefa Íslandi sjálfu gjöf; Að gefa fjölbreytilegum sprotavexti áburð er að stuðla að þeirri sjálfbæru þróun efnahags- og atvinnuuppbyggingar landsins sem nú er aðkallandi.

Björk Guðmundsdóttir er í forsvari fyrir átaksverkefnið og er í samvinnu við vef Náttúra.info, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuþróunarfélög landsins, Hönnunarmiðstöðina og smáfyrirtæki um land allt.

Listi þátttakenda sýnir ekki nema brotabrot af þeim sprotum sem eru til á Íslandi í dag. En verðugt er að lengja listann, bæði til að hann verði heimild um allt það góða starf, og eins að hann geti nýst beint við kynningu og sölu íslenskrar vöru og þjónustu á komandi tímum. Nattura.info beinir vinsamlegum tilmælum til einstaklinga og atvinnuþróunarfulltrúa að senda til Nýsköpunarmiðstöðvar eða á netfangið natturainfo@gmail.com, upplýsingar um áhugaverða sprota, sem eru í takt við sjálfbæra þróun, og sem geta kynnt sig á vef og selt í gegnum síma.

Útlit gjafabréfs er hannað af Hrafni Gunnarssyni, grafískum hönnuði, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands.

Til að skoða úrvalið og komast í beint samband við söluaðila í gegnum heimasíðu og í kjölfarið að kaupa gjafakortið, sjá:

http://www.nattura.info/islenskgjof

Share

Tengt efni:

  1. Gjöf Íslands : íslenskir sprotar Björk Guðmundsdóttir og Náttúra.info, í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuþróunarfélög...
  2. Handverk og hönnun á Íslandi Frábær bæklingur með myndum og upplýsingum um íslenska hönnun og...
  3. Neisti: Líftækni á Íslandi Hér eru drög að tillögum til endurbóta á landslagi líftækni...
  4. Heilsulandið Ísland Rannsóknir og ný sýn | Lækningar, lífvísindi og lyfjaþróun |...
  5. Landsbyggðin lifi Landsbyggðin lifi er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.