Keilir er er miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka, til staðar á gamla Hersvæðinu í Keflavík, sjá nánar á vefnum www.keilir.net Í endurnýttum herbúðum er boðið upp á nám í nýjum orkufræðum og frumkvöðlafræðum og innan þess er Skóli skapandi greina sem virkar sérlega spennandi kostur fyrir þá sem vilja virkja bæði heilahvelin á sér:
Skóli skapandi greina á Keili hefur í hyggju að fara af stað með nýja námsleið innan frumkvöðlanámsins, sem leiðir til tveggja ára (120 ECTS) diplómaprófs í viðskiptalist og er stefnt að upphafi hennar í febrúar 2009 ef þátttaka næst.
Með námi í viðskiptalist er í fyrsta skipti á Íslandi skapaður grundvöllur fyrir þá frumkvöðla sem mikilvægastir verða í framtíðinni, alhliða framleiðendur með þjálfað, listrænt innsæi í samspili við kjarngóða viðskiptaþekkingu. Frumkvöðla án “hugmyndar” í hefðbundnum skilningi en vopnaða óbilandi trausti á skapandi ferli og lausnir, hafandi kynnst í náminu þeirri hugmyndaorku sem leysist úr læðingi í samspili ólíkra krafta.
Við erum að þjálfa og styrkja frumkvæði þess sem þorir að taka fyrsta skrefið, tengja rétta aðila til skapandi samstarfs og laða þannig fram það besta hverju sinni. Viðskiptalistamanninn sem þekkir öðrum betur tækifærin í því ótengda, því sem allir vita um en enginn tengir fyrr
en nú.
Sjá uppbyggingu náms:
http://www.keilir.net/namid/skapandi-greinar/vidskiptalist/uppbygging/
Í þróunarhópi þessarar námsleiðar hafa, auk starfsmanna skóla skapandi greina, verið þau Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistamaður og rithöfundur, Elísabet Rónaldsdóttir, kvikmyndagerðarkona, Gunnar Ingi Gunnsteinsson, leikari og leikstjóri, Jónas Sen, tónlistarmaður og gagnrýnandi og Frímann Sigurðsson, ráðgjafi og “kaospilot”.
Að auki býður skólinn upp á frumkvöðlanám sem gefur nemendum tækifæri til að þróa hugmynd sína til fullbúinnar viðskiptaáætlunar undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í þessum efnum.
Námið er 60 ECTS diplomanám á háskólastigi og er skipulagt í samstarfi Keilis, verkfræðideildar Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) . Áhersla er lögð á hagnýtt nám með skýru markmiði, sem er að í lok þess standa nemendur uppi með fullþróaða viðskiptahugmynd
og viðskiptaáætlun sem tilbúin er til fjármögnunar.
Sjá nánar: http://www.keilir.net/namid/skapandi-greinar/
Tengt efni:
- Ein skapandi borg? Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar ræðir um bók bandarísks prófessors í...
- Framtíðarlandið Hvað er Framtíðarlandið? Framtíðarlandið – félag áhugafólks um framtíð Íslands...
- Fræðandi ferðalög & upplifun Nýjar leiðir í ferðaþjónustu; akademísk ferðaþjónusta, heilsutengd ferðaþjónusta, umhverfisvæn ferðaþjónusta,...
- Þekkingarnet Austurlands Þekkingarnet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 13. júní 2006 á...
- Ólafsdalur: Nýsköpunarsetur 21. aldar? Málþing um framtíð Ólafsdals í Gilsfirði, haldið fimmtudaginn 23. apríl,...
