Félag umhverfisfræðinga á Íslandi heldur málþing um sjálfbærni á tímamótum, í aðalhúsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg, sal L201, fimmtudaginn 12. mars 2009, kl. 13:00-17:00
Búist er við auknum fjölda innlendra og erlendra ferðamanna á Íslandi á komandi misserum. Tryggja þarf að fjölgun ferðamanna hafi ekki í för neikvæð áhrif á náttúru Íslands og einstök byggðarlög. Þekking á þolmörkum náttúru og samfélags og hvernig þróa má ferðaþjónustu í átt að sjálfbærni eru lykilatriði í þessu sambandi. Málþingið Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag er númer tvö í röð málþinga sem Félag umhverfisfræðinga á Íslandi stendur fyrir undir yfirskriftinni Sjálfbærni á tímabótum. Sjónum verður beint að tilurð, mótun og sérstöðu íslenskrar ferðaþjónustu, vexti hennar, stöðu og þolmörkum og rætt um tengsl og upplifun fólks af náttúrunni. Þá verður fjallað um vöruþróun og stefnumótun á grunni sjálfbærni og rætt sérstaklega um sjálfbæra ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Dagskrá málþings
Setning
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi
Ferðaþjónusta á tímamótum? Tilurð ferðaþjónustu á Íslandi og sjálfbærni
Gunnar Þór Jóhannesson, nýdoktor, Mannfræðistofnun, Háskóla Íslands
Ferðaþjónustan í dag og líkleg þróun
Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu
Þolmörk náttúru og samfélags í ferðaþjónustu
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræðum, Háskóla Íslands
Upplifun og tengsl fólks við náttúruna
Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ og stundakennari við Hólaskóla
KAFFIHLÉ
Vöruþróun í ferðaþjónustu á grunni sjálfbærni – mikilvægi samræmdrar svæðisbundinnar stefnumótunar
Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi
Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi
UMRÆÐUR
Fundarstjóri: Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Allir velkomnir
————————————-
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi er fagfélag háskólamenntaðra umhverfis- og auðlindafræðinga. Félagið beitir sér fyrir faglegri umræðu um umhverfismál og leggur sig fram um að miðla vísindalegri þekkingu og reynslu af umhverfismálum til samfélagsins.
Tengt efni:
- Fræðandi ferðalög & upplifun Nýjar leiðir í ferðaþjónustu; akademísk ferðaþjónusta, heilsutengd ferðaþjónusta, umhverfisvæn ferðaþjónusta,...
- Sjálfbærni á tímamótum Félag umhverfisfræðinga efnir til málþings þriðjudaginn 2. des. kl. 15:00...
- Frá sprotavexti til sjálfbærni Hvað er sprotavöxtur? | Hvað er sjálfbærni ? | Tengsl...
- Málþing um mikilvægi sjálfbærrar þróunar Málþing Félags umhverfisfræðinga á Íslandi, um mikilvægi sjálfbærrar þróunar, haldið...
- Rannsóknamiðstöð ferðamála Rannsóknamiðstöð ferðamála gefur út gríðarlega áhugaverðar skýrslur og á vef...
