Ferðamannslandið Ísland verður æ heitara

skaftafell_main-1Ísland er land náttúrulegra heitra baða. Nú hafa menn fundið nýja heita lind í Skaftafelli, en í þeirri ferðamannaparadís er þá eiginlega allur pakkinn kominn, fullt hús: jökull, heitt vatn, sjór rétt hjá og lyngmóar um allt, lítill birkiskógur etc. Sjá frétt um heita vatnið í Skaftafelli á vef Ríkisútvarpsins:

Undanfarið hafa verið boraðar margar rannsóknarholur í Skaftafelssýslu og opnast nú möguleikar á heitum böðum fyrir ferðafólk í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli, en borholan er skammt vestan við hana.

Ómar Bjarki Smárason, sem stýrir jarðhitaleitinni, segir að 5 lítrar á sekúndu af 47,5 gráðu heitu vatni komi upp úr holunni. Þetta sé vatnsmesta holan sem fundist hafi í Austur Skaftafellssýslu.

Einnig fjallað um þetta á mbl.is Heitt vatn í Skaftafelli

Heitt vatn sprautaðist upp úr 300 metra djúpri borholu við tjaldstæðið í Skaftafelli í fyrrinótt. Skaftafell hefur fram til þessa flokkast sem kalt svæði í jarðfræðilegum skilningi, en áður höfðu verið boraðar tvær holur niður á 200 metra dýpi sem ekkert gáfu. Vatnajökulsþjóðgarður stóð að boruninni ásamt sveitarfélaginu Höfn í Hornafirði sem styrkti hana sérstaklega, en Jarðboranir sáu um framkvæmd verksins.

Vatnið var 43 gráður við yfirborð jarðar en 47 gráða heitt neðst í holunni. Þrýstingurinn var mikill að sögn þeirra sem voru viðstaddir þegar vatnið fannst. Ætlunin er að nota vatnið í þjóðgarðinum, en sem dæmi má nefna að húsin í Skaftafelli hafa hingað til verið hituð með gas- og rafmagnskyndingu.

Share

Tengt efni:

  1. Obama og Ísland : Sýnum í verki að við horfum til framtíðar ! Saman! Obama sagði á fundi í Strassburg um daginn að við...
  2. Verum vakandi um náttúru Íslands Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í...
  3. Heilsulandið Ísland, skýrsla Skýrsla þessi er unnin er fyrir samgönguráðherra af nefnd sem...
  4. Íslenskur búvörumarkaður verður að veruleika Nú vilja fleiri en nokkurn tíma vera með sinn eigin...
  5. Vatnsbólin okkar ! Varúð!!! Vatnsból Íslendinga eru þvílík og önnur eins auðlind og kannski...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.