Árósarsamningurinn: Réttlætið undirbúið

Réttlætisgyðjan. Mósaíkmynd sem skýrir Platónskar pælingar um hið nýja ríki

Réttlætisgyðjan. Mósaíkmynd sem skýrir Platónskar pælingar um hið nýja ríki

Árósarsamningurinn fjallar meðal annars um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum,  sjá heimasíðu Árósasamningsins, bækling á ensku um Árósasamninginn. Auk skýrslu nefndar sem var skipuð til að fara yfir efni Árósasamningsins og meta hvaða áhrif hann hefði í för með sér hér á landi. Á vef utanríkisráðuneytisins segir frá starfshópi um undirbúning fullgildingar Árósasamningsins:

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Verkefni starfshópsins er að gera tillögu um hvernig best sé að tryggja almenningi aðgang að réttlátri málsmeðferð við fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Auk þess er starfshópnum falið að gera tillögu um frekari vinnslu málsins í kjölfarið, þ.e. samningu nauðsynlegra lagafrumvarpa.

Nefnd sem falið var að fara yfir ákvæði Árósasamningsins skilaði skýrslu í september 2006 um nauðsynlegar aðgerðir til að uppfylla samninginn hér á landi. Í 5. kafla skýrslu nefndarinnar er gerð grein fyrir tveimur leiðum að innleiðingu þeirrar stoðar samningsins er varðar réttláta málsmeðferð í umhverfismálum og nauðsynlegar lagabætur í því sambandi. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 6. febrúar að fela umhverfisráðherra í samráði við utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra að ákveða hvor leiðin verði farin áður en undirbúningur að gerð lagafrumvarps hefst.

Starfshópinn skipa Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, formaður, Gunnar Narfi Gunnarsson, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, og Helga Hauksdóttir, sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu.

Heimasíða Árósasamningsins.

Bæklingur á ensku um Árósasamninginn.

Skýrsla nefndar sem var skipuð til að fara yfir efni Árósasamningsins og meta hvaða áhrif hann hefði í för með sér hér á landi.

Share

Tengt efni:

  1. Bergur í Landvernd um Árósasamninginn Bergur Sigurðsson hjá Landvernd skrifar um Árósarsamninginn og þrjár stoðir...
  2. Þeim, sem fá stórar gjafir, er ábyrgð á höndum Íslendingar hafa fengið stórar guðsgjafir, ef svo má kalla alla...
  3. Lýðræðisleg réttindi frjálsra félagasamtaka Náttúruverndarsamtök Íslands fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um staðfestingu Árósasamningsins sem fjallar...
  4. Laugardag: Kynning á nokkrum af nýjustu sprotafyrirtækjum Íslands Gulleggið 2009 Dómnefnd Frumkvöðlakeppni Innovit 2009 hefur lokið við að...
  5. Lykilatriði um Magmamálið. Ræða Jóns Þórissonar á blaðamannafundi um orkuaudlindir.is Á blaðamannafundi þar sem undirskriftasöfnun á orkuaudlindir.is var kynnt fyrir...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.