Í frétt Ríkisútvarpsins þann níunda mars var sagt frá Verkfræðistofunni Útrás á Akureyri sem vinnur með Bretum að hönnun og útfærslu á umhverfisvænum orkuverum í Bretlandi með nýrri tækni sem eykur orkuframleiðsluna. Hvert orkuver er sagt munu framleiða um 20 megawött , þar af um tólf megawött frá dísilvélum sem brenna lífrænu eldsneyti. Í fyrsta áfanga verða byggð átta orkuver og er hönnun hafin á tveimur fyrstu verunum. Þetta hljómar spennandi og spurning dagsins er þessi: Hver getur sagt okkur meira um þetta mál? Væri hægt að fá slík orkuver til Íslands? Eru þessi orkuver græn, þ.e. umhverfisvæn? Við þurfum að efla mjög umræðuna um hvað er grænt og vistvænt, nú þegar ýmislegt er sagt vera umhverfisvænt sem kannski er það ekki í raun.
Tengt efni:
- Lífrænt eldsneyti úr úrgangi Einn af fimm nemanda sem tilnefndir voru til Nýsköpunarverðlauna forseta...
- Mótsagnir og þrár Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld var sagt frá eftirköstum útþennslunnar...
- Byggingar, list & náttúra Byggingarráð | Dauðar byggingar | Sjálfbær hönnun | Lífhermun |Græn...
- Alcoa: Loforð um sjálfbærni á fölskum forsendum ? Hvað með Landvernd ? Ingibjörg Elsa Björnsdóttir skrifar grein á vef Smugunnar um falskar...
- Heita vatnið lausn fyrir Evrópusambandið? Evrópusambandið hefur ákveðið að ganga á undan með góðu fordæmi...
