Á morgun: Stund jarðarinnar

images-1Náttúra.info tekur undir áskorun Náttúruverndarsamtaka Íslands um þátttöku í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. I dag kynna Natturuverndarsamtökin áminningar-athöfn sem nefnist Stund Jarðar, sem er lýst hér að neðan. Þá má líka minna á aðra stund, þá elleftu og The Eleventh hour, og brot úr viðtali við Paul Hawken úr þeirri mynd sem er raunsæi og bjartsýni Paul Hawken sem kom hingað til lands til að benda Íslendingum á möguleika í stöðunni, græna möguleika og breytta hugsun. Hann segir að hlutskipti okkar sé einstakt, því núna verðum við og höfum tækifæri til að endurhugsa alla okkar afstöðu til heimsins, til að nota þekkingu okkar og tæknikunnáttu á nýjan hátt og hlusta á heiminn, herma eftir lífinu sjálfu og fyllast von um að við getum stuðlað að sjálfbærri þróun lífs okkar á jörðunni.

Stund Jarðar – vonast til að einn milljarður jarðarbúa taki þátt í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum

Vonast er til að um milljarður jarðarbúa sem búa í stærstu borgum heims slökkvi ljósin heima hjá sér í klukkustund nk. laugardag, kl. 20:30 að staðartíma. Þetta tengist  Earth Hour – Stund Jarðar. Íbúar heims eru hvattir til aðgerða gegn loftlagsbreytingum.

Ljósin verða m.a. slökkt í Empire State byggingunni í New York, við egypsku pýramídana í Giza, Petronas turnana í Kuala Lumpur, Akrópólis í Aþenu og Tapei 101 byggingunni í Taívan. Sjá vef skipuleggjenda.

Það eru náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund sem skipulögðu Earth Hour í fyrsta sinn árið 2007. Sjá myndband WWF.

Árið 2007 voru ljósin slökkt í einni borg, Sydney í Ástralíu. Í fyrra tóku alls tóku 370 borgir í 35 löndum þátt í átakinu. Að sögn WWF munu 1.189 borgir taka þátt í ár.

Sameinuðu þjóðirnar styðja átakið. Sjá hér ávarp aðalritara Sameinuðuþjóðanna, Ban Ki-Moon.

Náttúruverndarsamtök Íslands – Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík – S: 551 2279
Netfang: nsi@mmedia.is. Veffang: www.natturuverndarsamtok.is

Share

Tengt efni:

  1. Paul Hawken : Á elleftu stundu Síðastliðið sumar kom út heimildamyndin Á elleftu stundu, the Eleventh...
  2. Paul Hawken : Fyrirlestrar og viðtöl Paul Hawken er meðal eftisóttustu fyrirlesurum í heimi. Suma af...
  3. Góðir gestir : Hawken & Picard Paul Hawken: Fyrirlestrar og viðtöl | Paul Hawken : Rit,...
  4. Fyrirlestur Hawken: Í dag kl. 14.00 í Þjóðmenningarhúsinu Í dag heldur Paul Hawken fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu, en hann...
  5. Hvað er Kyotobókunin? Kyoto-bókunin er alþjóðlegur samningur sem 159 þjóðir komu sér saman...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.