Aðvaranir Paul Hawken og nýleg frétt um óheilindi Alcoa

Helst Ísland á græna kortinu?  Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Helst Ísland á græna kortinu? Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Í frétt á stöð tvö fyrir viku síðan var lítil frétt um Alcoa á alþjóðavettvangi, þar sem sagt er frá ásökunum um mútur fyrirtækisins og óheilindi, jafnframt er rætt um óheilsusamleg skilyrði starfsmanna við álvinnslu, sjá myndskeið á blogg-síðu Láru Hönnu sem fylgist vel með fréttum. Óþægileg fréttin minnir á það sem Paul Hawken sagði þegar hann kom hingað til lands í desember s.l. og varaði m.a. við heilsuspillandi áhrifum álvera, bæði fyrir starfsmenn og íbúa í kring, og studdi mál sitt góðum rökum og haldbærum vísindalegum sönnunum. Hann benti líka á hversu fjárhagslega slæmur áliðnaðurinn væri fyrir Íslendinga í ljósi stöðu landsins. Til gamans má horfa á Hawken í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils þar sem hann talar um stöðu Íslands á tímamótum.

Share

Tengt efni:

  1. Góðir gestir : Hawken & Picard Paul Hawken: Fyrirlestrar og viðtöl | Paul Hawken : Rit,...
  2. Fyrirlestur Hawken: Í dag kl. 14.00 í Þjóðmenningarhúsinu Í dag heldur Paul Hawken fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu, en hann...
  3. Paul Hawken í Silfri Egils Paul Hawken hélt sérlega áhugaverðan og uppörvandi fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu...
  4. Björk býður Paul Hawken og John Picard upp í samræðu Björk Guðmundsdóttir frumflutti lag sitt Náttúra á vinnufundi um íslenskt...
  5. Paul Hawken : Fyrirlestrar og viðtöl Paul Hawken er meðal eftisóttustu fyrirlesurum í heimi. Suma af...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.