Hefur einhver nýverið séð Svartþröst?

Turdus merula og félagar, svartþröstur, söngþröstur og skógarþröstur

Turdus merula og félagar, svartþröstur, söngþröstur og skógarþröstur

Fugl dagsins er Svartþröstur af Fuglavefnum: http://www1.nams.is/fuglar/details.php?val=1&id=63

Um Svartþröst af Vísindavefnum: Svartþröstur (Turdus merula, e. blackbird) er afar algengur víða í Evrópu en nýlegur landnemi á Íslandi. Hér verpir hann meðal annars á innnesjum svo sem í Reykjavík og er talið að varpstofn hans á höfuðborgarsvæðinu sé á bilinu 60 til 100 pör. Hann er meðal annars nokkuð algengur í Laugardalnum og má sjá hann þar allan ársins hring. Eins og við er að búast er svartþrösturinn svartur á lit. Það á þó aðeins við um karlfuglinn, kvenfuglinn er brúnmóleitur. Svartþröstur er litlu stærri en skógarþröstur (Turdus illiacus), sú þrastategund sem landsmenn þekkja best. Karlfuglinn er alsvartur með gul-appelsínugulan gogg og áberandi gulan hring í kringum augun en kvenfuglinn er brúnmóleitur með fölgulan gogg. Ungfuglar eru líkir kvenfuglum í útliti. Svartþrestir eru á bilinu 23 – 29 cm á lengd og vega um 125 grömm. Svartþrestir finnast um nær alla Evrópu og hafa fuglafræðingar metið heildarstofnstærðina í álfunni einhvers staðar á bilinu 80 til 160 milljónir fugla. Svartþrestir finnast í Norður-Afríku, sunnanverðri Asíu og Ástralíu og einnig á Nýja-Sjálandi en þangað voru þeir fluttir. Eins og hjá öðrum dýrategundum sem hafa mikla útbreiðslu þá greinist tegund svartþrasta í fjölda undirtegunda. Sú sem hefur numið land á Íslandi nefnist Turdus merula merula og verpir einnig í Færeyjum, á Bretlandseyjum og í norðurhluta meginlands Evrópu allt austur til Úralfjalla.

Share

Tengt efni:

  1. Vill einhver gera athugasemd við stefnumótun Vísinda- og tækniráðs um langtímauppbyggingu nýsköpunarumhverfisins ? Stefna Vísinda- og tækniráðs – drög Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs...
  2. Loksins, loksins… einhver heildarsýn í umhverfis- og efnahagsmálaumræðu heimspólitíkurinnar? Náttúruverndarsamtök Íslands standa vaktina og benda á nýja tíma í...
  3. Matvælaöryggi   Nú þegar umræða um svínaflensu stendur sem hæst er...
  4. Handverk og hönnun á Íslandi Frábær bæklingur með myndum og upplýsingum um íslenska hönnun og...
  5. Neisti af neista Um vef nattura.info má segja, vegna fjölda fyrirspurna, að hann...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.