Verum vakandi um náttúru Íslands

Skaftafell

Skaftafell

Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.

Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.

Námskeið í náttúruvernd

20.4.2009

Umhverfisstofnun auglýsir, í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, námskeið fyrir áhugafólk um sjálfboðastörf í náttúruvernd. Námskeiðið fer fram í Skaftafelli dagana 1. til 3. maí. Sjálfboðastörf fela í sér góðan félagsskap í náttúru Íslands þar sem fólk leggur sitt af mörkum til náttúruverndar. Ekki má heldur gera lítið úr því hversu heilsusamleg slík útivinna getur verið. Þátttaka í námskeiðinu gefur kost á þátttöku í sjálfboðastörfum í sumar á vegum Umhverfisstofnunar. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.

Farið verður með rútu frá Reykjavík eða Höfn föstudaginn 1. maí og komið þangað aftur sunnudaginn 3.maí. Rútuferðir, matur, skálagisting og námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeint verður um verkfæri, vandkvæði og verklag við stígagerð sem og annað sem mikilvægt er við sjálfboðastarf.

Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Berist fleiri umsóknir en hámarksfjöldi segir til um verður dregið um laus sæti.

Umsóknarfrestur um störfin er til 26. apríl 2009. Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt að nálgast hér að neðan og í móttöku Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24, Reykjavík.

Umsóknareyðublöð skulu send á netfangið ust@ust.is eða á Umhverfisstofnun Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Umsóknareyðublað um sjálfboðaliðanámskeið 1.-3. maí 2009
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.

Share

Tengt efni:

  1. Skítugur gimsteinn Fimmtudag, 22. janúar heldur doktor Hilmar J. Malmquist, líffræðingur og...
  2. Nær virkjunarsvæðinu færi mengun fram úr Alþjóðlegum heilbrigðisviðmiðunum Við getum ekki leyft okkur sömu ósiðina og áður; ónæmiskerfi...
  3. Nýtt: Heimildamynd um Náttúru og náttúruverndarbaráttu á Íslandi Ný heimildamynd um íslenska umhverfisverndarbaráttu Nattura–Summer 2008 var gefin út...
  4. INNOVATION AND THE IMPORTANCE OF INTER-DISCIPLINARY WORK In the HAFNARHÚS, the Reykjavik art museum, by the harbor...
  5. Endurskoða og auka þarf náttúruvernd á Norðurlöndunum Á fréttavefnum Norden segir frá minnkandi líffræðilegum fjölbreytileika á Norðurlöndum...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.