Dagur umhverfisins 25. apríl

 

Verndum jörðina

Verndum jörðina

Umhvefisdagurinn er í dag og er hann tileinkaður grænum störfum og atvinnuuppbyggingu. Málþing verður haldið í Iðnó í dag kl. 13.00 – 15.00 og verða þar 7 fyrirtæki sem ræða m.a um framtíðarsýn sína. Eftir þingið verða svo pallborðsumræður.

 

Kuðungurinn, umhverfisviðurkenning umhverfisráðherra verða afhent. Spennandi verður að sjá hverjir hafa staðið sig vel í þágu umhverfismála í ár. Einnig verða afhvent verðlaun um Varðliða umhverfisins. En það eru verkefnasamskipti sem grunnskólabörn 5-10 bekkjar taka þátt í.

(tekið af vef umhverfisráðuneytisins) 

Græn störf – málþing um vistvæna nýsköpun

Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um Græn störf og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.

Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.

Dagskrá:

Ávarp Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðerra.

Kynningar:

Marorka – þróar orkustjórnunarkerfi fyrir skip til að draga úr olíunotkun og mengun

Gavia Travel – sérhæfir sig í fuglaskoðunarferðum fyrir erlenda ferðamenn

Saga Medica – sérhæfir sig í rannsóknum og framleiðslu á hágæða náttúruvörum úr jurtum

Carbon Recycling International – breytir útblæstri frá jarðvarmavirkjunum í eldsneyti

HBT – þróar og framleiðir orkusparandi lausnir fyrir stórnotendur í orkufrekum iðnaði

Farmers Market – nýtir náttúruleg hráefni við framleiðslu tískufatnaðar

Prókatín – framleiðir prótínmjöl í dýrafóður úr aflofti frá jarðvarmavirkjunum

 

Umhverfisráðherra afhendir Kuðunginn og útnefnir Varðliða umhverfisins.

Pallborðsumræður um vistvæna nýsköpun og fjölgun grænna starfa. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Baldur M. Helgason, sjóðstjóri hjá Auði Captial, Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum Iðnaðarins og Anna G. Sverrisdóttir, formaður umhverfisnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar.

Björn H. Barkarson, frá Félagi umhverfisfræðinga, stýrir umræðum.

Fundarstjóri er Magnús Jóhanesson, ráðuneytisstjóri.

 
Græn störf eru tengd hreinni tækni eða stuðla að bættri umhverfisvitund og draga úr umhverfisáhrifum hefðbundinna starfa. Græn störf byggja á því að fjárfesta í aukinni framleiðni með betri nýtingu, t.d. orku og hráefna, og komast þannig hjá sóun á aðföngum og fjármagni. Áhersla er á skilvirkni framleiðsluferla, notagildi og skilvirkni í notkun, fjárfest er í lokuðum kerfum og búin eru til verðmæti úr úrgangi. Horft er til náttúrunnar sem byggir á hringrás og afurðir eins verða að aðföngum annars.

 
Margar þjóðir heims hafa nú mikinn áhuga á að leggja sig fram við að skapa atvinnutækifæri á sviði vistvænnar nýsköpunar, þróunar og þjónustu. Fyrirsjáanlegt er að umsvif á þessum vettvangi aukist mjög í nánustu framtíð og í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna er því spáð að markaðir fyrir umhverfisvænar vörur og þjónustu muni tvöfaldast fram til 2020. Hér á landi eru margvísleg tækifæri á þessu sviði, sem skapað geta störf og aukið útflutning.

Share

Tengt efni:

  1. Umhverfisviðurkenningar   Umhverfisráðuneytið veitti umhverfisviðurkenningar á degi umhverfisins 25.apríl. Kuðungurinn var...
  2. Heilsa og hagsæld með nýsköpun – Rannís-ráðstefna 6. apríl Rannís blæs til ráðstefnu um heilbrigðismál í stóru samhengi nýsköpunar...
  3. Byggingar, list & náttúra Byggingarráð | Dauðar byggingar | Sjálfbær hönnun | Lífhermun |Græn...
  4. Málþing Sæmundar Fróða á morgun: Stjórnarskrá og umhverfismál Stefnumót Stofnunar Sæmundar Fróða eru alltaf spennandi og í samvinnu...
  5. Nýr upplýsingavefur: Norrænar orkurannsóknir og -lausnir Nýr vefur fyrir norrænar lausnir á öllu varðandi orkutækni var...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.