Er tími síðnýlendustefnunnar ekki liðinn?

Björk ræddi um um áskorun sína til ríkisstjórnarinnar um að rifta kaupsamningi um kaup Magma Energy á HS Orku. í Morgunblaðinu 26. maí s.l.

Mynd af bjork.com

»Mér finnst þetta sorglegt, eftir allt sem á undan er gengið með bankahrun og annað. Ég er stolt af þjóðinni að rúlla upp ermunum, henda stjórninni út, fá Evu Joly, fá betri Icesave-samninga, gera skýrsluna og svo framvegis. Svo kemur þetta, svona skottið af drekanum með lokarothögg. Ekki sanngjarnt að við fáum ekki einu sinni að halda landinu okkar? Er þetta ekki orðið bara ágætt með þessa skammsýnu gróðavon?« segir Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður við Morgunblaðið um söluna á HS Orku til kanadíska fyrirtækisins Magma Energy.

Hún hefur sent stjórnarþingmönnum á Alþingi tölvupóst þar sem hún stingur upp á að þeir rifti þessum samningi. Hún segist ekki hafa getað setið á sér, »bara svo ég geti lifað með sjálfri mér«.

Björk segist ekki vera á móti því að vinna með erlendum aðilum en Íslendingar hljóti að geta gert það og haldið stoltinu sínu.

»Ekki þessa síðnýlendustefnu! Við ættum að njóta góðs af okkar eigin auðlindum, við höfum nú sem betur fer tregðast við að missa veiðisvæðin okkar til nágranna og tókum þátt í þorskastríði og allt í litlum báti. Af hverju erum við þá sofandi gagnvart þessari gullnámu okkar? Það er ekki nóg að fá útlendinga hér inn bara til að skapa ný störf. Við þurfum ekki að þjóna þeim. Við getum verið í samstarfi við þá, haldið landinu og fengið störf. Svo finnst mér þetta úreltur hugsunarháttur að það þurfi að fórna náttúrunni fyrir framfarir. Núna er það einmitt öfugt. Því grænni, því framtíðarlegri!«

Ekki góður samningur

Spurð hver séu helstu rök hennar fyrir andstöðu við sölunni á HS Orku til Magma bendir Björk á að það standi í lögum að auðlindir og orkunýting eigi að vera í höndum ríkisins. Hún telur fulla ástæðu til að hafa áhyggur af því að auðlindir þjóðarinnar færist í hendur erlendra fjárfesta. »Reynslan sýnir að mörgum af þessum risavöxnu erlendu orkufyrirtækjum finnst gróði miklu mikilvægari en virðing fyrir náttúrunni. Þeir hafa skilið við mikið af þjóðum í sárum. Auðvitað eru til erlend fyrirtæki sem eru heiðarleg og mér finnst ekkert að því að vinna með þeim svo framarlega sem samningarnir eru sanngjarnir. Þessi samningur er ekki góður. Við megum ekki afsala okkur ábyrgð og aðgengi að auðlindum okkar.«

Björk segir Magma Energy enga reynslu hafa af nýtingu jarðvarma. »Við ættum að vera í fararbroddi í heiminum að marka okkur stefnu sem stuðlar að sjálfbærri þróun þar sem efnahagsleg uppbygging er aldrei á kostnað náttúrunnar og réttlætisins. Þetta er jú okkar orka. Hún er ekki ótakmörkuð. Mér finnst miklu heilbrigðara að lítil fyrirtæki á Íslandi fái að nýta hluta hennar og fái þannig tækifæri til að vaxa og verða stór. Ekki að allt fari á einn stað ákveðið af fáum. Af hverju fær þjóðin ekki að ráðstafa orkunni sinni? Fyrir sig? Mér finnst ótrúlegt að sveitarstjórn sem kjörin er til fjögurra ára geti framselt auðlind heillar þjóðar í 130 ár! Til 2140! Og núna hafa þeir áhuga á Kerlingarfjöllum!«bjb@mbl.is

Share

Tengt efni:

  1. Hugrekki en ekki byrjendamistök, velvilji í garð lands og þjóðar en ekki vanþekking ! Sveitastjóri Norður-Þings sagði í sjónvarpsfréttum í kvöld á Rúv að...
  2. Bréf frá Önnu Karlsdóttur mannvistalandfræðingi Ég er svo fegin að neistahópurinn notar orðið ferðaþjónusta og...
  3. Björk gefur Geir glóandi pakka Frá Vísi.is Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður afhenti Geir H. Haarde forsætisráðherra...
  4. Hljómur nýsköpunar “Við verðum við að hafa trú á sjálfum okkur og...
  5. Auður Capital og Björk í New York Times New York Times birti á aðfangadag frétt um nýjan sprotasjóð...

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.