
Á blaðamannafundinum 19. júlí s.l. þar sem Björk spurði spurninga og söng fyrir blaðamenn. Mynd: Lára Hanna
Þegar Björk var á forsíðu Financial Times að ræða um íslenskar orkuauðlindir og um Magma-málið skrifaði forstjóri Magma Energy Ross Beaty henni bréf í gegnum Grapevine og bauð henni hlut í fyrirtækinu. Hún skrifaði honum og afþakkaði, sagði að hann hafi ekki skilið hvert hún væri að fara sjá bréfið: http://www.grapevine.is/News/ReadArticle/Bjork-Hits-Back-At-Magma . Þá ákvað hann að senda henni annað bréf þar sem hann segir henni hvernig þetta allt er; http://www.grapevine.is/News/ReadArticle/Ross-Beaty-Answers-Questions. Hún svaraði honum þá á nýjan leik, með löngu og beittu bréfi, afhjúpandi og ögrandi sem hér birtist á íslensku, með leyfi:
Blessaður Ross Beaty,
Þakka þér fyrir svarbréfið, það er gott fyrir íslensku þjóðina að fá þessar upplýsingar fram í dagsljósið, áður en hún gerir upp hug sinn. Undanfarið hafa of margir vondir samningar verið gerðir bak við luktar dyr og þú getur rétt ímyndað þér hvað við erum viðkvæm fyrir slíku makki núna rétt eftir bankahrunið. Ég vona að rannsóknarblaðamenn, bloggarar og sérfræðingar noti þessar upplýsingar og að sameiginlega komumst við að því rétta í málinu. Ég sá í fréttum að Árni Sigfússon, sveitastjóri Reykjanesbæjar sé nú þegar byrjaður að rannsaka lánin sem Magma ætlar sér að taka yfir ef samningurinn gengur í gegn.
Það er alveg rétt hjá þér, það mætti alveg segja að þú sért bjargvættur Reykjanesbæjar, sem er nánast gjaldþrota eftir ofur-metnaðarfullar stóriðjuáætlanir (í anda þeirra áætlana sem keyrðu þjóðarskútuna í kaf). Það virðist því kannski réttlætanlegt að þeir selji nýtingarrétt sinn á auðlindum landsins til 130 ára og missi þar með möguleikann á að nýta sér þær sjálfir og missi líka af uppbyggingu á öðrum orkusviðum svo sem gróðurhúsum, gagnaverum og fleiri möguleikum á nýrri öld. Setjum til hliðar í þessu bréfi hversu lélegur samningurinn er. Hvað þeir selja sig ódýrt. Og núna er samningurinn nánast fullfrágenginn.
Á sama tíma ert þú að reyna að tryggja þér aðgang að jarðhitaorku í Hrunamannaafrétt og við Mývatn, og vatnsrétt í Öræfum. Þú hefur verið í sambandi við landeigindur, sveitastjórnarmenn, verkfræðistofur og fleiri aðila. Þú hefur verið að þrýsta á Landsvirkjun um að yfirtaka virkjanarétt á Bjarnarflagsvirkjun, sem yrði ein af arðbærustu virkjunum þessa lands. Þú hefur látið vinna skýrslu um möguleika á að nýta jarðhita sem fellur utan nýtingarsamnings ríkisins á jörðunum Reykjahlíð og Vogum, þ.e. þú hefur viljað krækja í réttindin og með því þrengja hringinn um Landsvikjun, vilji þeir ekki semja. Getur verið að Magma Energy sé ekki að þessu til að hjálpa Íslendingum í þeirra viðleitni að rétta hag HS Orku á efiðum tímum – andstætt því sem þú segir í svarbréfi þínu til mín? Eruði ekki bara að reyna að næla í allt sem þið mögulega getið og nýta ykkur veika stöðu Landsvirkjunar, sveitastjórnanna og einstaklinganna? Og allt þetta á sér stað fyrir luktum dyrum, með leynd, án þess að þjóðin fái neitt að frétta.
Ég er sammála Láru Hönnu sem er íslenskur rannsóknarbloggari, þegar hún spyr hvort ætlun ykkar sé að koma stoðum undir fyrirtæki sem þið síðan getið selt til hæstbjóðandi og grætt stórlega. Er ætlunin að áframselja auðlindir okkar til dæmis til Kínverjanna sem keyptu málm-námurnar af þér? Er það tilviljun að námurnar sem þú ert að nýta út um heim eru í löndum þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur verið með afskipti?
Vinsamlegast misvirtu ekki greind okkar með því að leika hinn mikla bjargvætt. Við vitum vel að verðmæti allra náttúruauðlinda okkar mun aukast gífurlega á næstu áratugum. Og það veist þú líklega líka og ert þess vegna einmitt hér. Þú ætlar þér að stækka þitt eigið veldi og ætlar í leiðinni að eyðileggja nokkrar af okkar ástkærustu náttúruperlum, eins og Krýsuvík og Kerlingafjöll.
Þú spyrð í bréfi þínu hvort við vildum heldur vinna með Búlgörum eða Pólverjum en með þér? Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá er ég ekkert að hugsa um þjóðerni í þessu máli. Helmingurinn af þeim sem ég hef unnið með í lífinu er útlendingar, heiðarlegir og hafa gott eitt í hyggju. Og eftir að hafa horft upp á íslensku áhættufjármálamennina reyna að sökkva Íslandi, eftir að hafa horft upp á okkar eigin landsmenn vinna gegn sinni eigin þjóð, þá þykir mér nokkuð barnalegt að treysta íslenskum fjármálamönnum fyrir dýrmætu jarðhitaauðlindunum okkar, ef við viljum tryggja öryggi þeirra. En ef þú vilt fara út í rökræðu um þjóðerni þá vil ég minna á að Kanadamaðurinn Otto Spork kom hingað til að vinna með fólki á Snæfellsnesi og keypti af þeim jökul-lindar-vatnsréttindin til 99 ára. Hann lét setja í samninginn að hann væri trúnaðarmál. Af hverju skyldi hann hafa gert það? Nokkru síðar dæmdi Hæstaréttardómari Kanada fyrirtæki Spork Sextant capital management inc. til til greiðslustöðvunar. Kanadíska blaðið “Globe and mail” segir um málið: Herra Spork fjárfesti ólöglega í fyrirtækjum með nýtingarrétt á íslensku jökulvatni í þeim tilgangi að selja drykkjarvatn í flöskum. Skýrar vísbendingar eru um “hugsanleg fjársvik, misnotkun fjár fjárfesta, ósannindi, innherjaviðskipti og skjalafals. Herra Spork lét Canaccord Capital Corp. fá fölsuð skjöl um að Los Angeles Department of Water og aðrir ætluðu að kaupa vatnið frá jöklafyrirtækjunum.” Finnst þér skrýtið að við séum orðin örlítið tortryggin?
Svo eru það viðskipti silfurnámufyrirtækis þíns Pan American Silver Corportation við Perú. Magma Energy á líka einar stærstu og dýrmætustu silfur- og gullnámur í heimi. Samkvæmt lögunum í Perú hefðir þú átt að borga verkamönnunum hluta af gróðanum og tryggja þeim lágmarksöryggi, en þeir fá ekkert af því sem þeim ber, þar sem þú varst svo klár að fá þá til að skrifa undir samning um að þeir væru eingöngu lausráðnir –þeir þorðu auðvitað ekki að gera athugasemd við samninginn, hræddir um að missa þá eina möguleika sinn á vinnu. Og þegar þeir gengu til liðs við verkalýðsfélög voru þeir reknir. Ríkisstjórn landsins reyndi að miðla málum án árangurs, enda vill hún sjálfsagt ekki virðast vera á móti erlendum fjárfestingum. Það er hægt að vera í viðskiptum við erlenda fjárfesta á heiðarlegan hátt. Það er eitthvað til sem heitir sanngjarn samningur. Ert þú að bjóða okkur einn slíkan ?
Ég sá að Magma er að bjóða út hluti í fyrirtækinu til sölu núna, fyrir 40 milljón dollara, til að styrkja fyrirtækið. Getur verið að þú sért í fjárhagsvanda eins og við? Getur verið að þú sért að seilast eftir lífeyrissjóðum okkar og bjóða mér hlut í fyrirtækinu af því þú hefur raunar engin efni á þessum kaupum í raun? Og geturðu sagt mér hvers vegna Magma borgar tvisvar sinnum meira fyrir megawattið í Nevada en hér?
10.000 manns hafa- á einungis þremur dögum- skrifað undir áskorun um að salan á Hs Orku til Magma Energy verði stöðvuð. Það er um 4 % af þjóðinni, og í næstu viku verður það kannski 10% eða 20 %. Allt þetta fólk vill að stjórnvöld og Alþingi efni til þjóðaratkvæðagreiðslu svo það megi sjálft ákveða hvað verður um eignarrétt og nýtingu á þess eigin orkuauðlindum.
Íslenskum almenningi líst ekki illa á þessa sölu vegna þjóðernis þíns. En ef þú spyrðir mig hvernig okkur líður gagnvart ráðamönnum og fjármálamönnum sem komu okkur í Icesavevandann, þá myndi ég segja að traust væri ekki fyrsta orðið sem kemur í hugann.
Við getum líklega þráttað um það lengi hvort þú hafir haft í hyggju að hjálpa þjóðinni út úr vandanum eða að nýta þér bága stöðu hennar, þegar þú stóðst á svölunum á Hótel Borg og horfðir á þjóðina berja potta sína og pönnur. Þú varðst vitni að sögulegum tímamótum. Við erum ekki tilbúin fyrir þig, hvaða þjóðar sem þú ert. Okkur tókst að henda út hægri stjórninni, fengum vinstri stjórn í staðinn sem hefur ekki náð að bjarga okkur úr vandanum. Okkur tókst að skrifa 2800 síðna skýrslu um samskipti og viðskipti stjórn- og bankakerfisins og um þessar mundir eru menn leiddir fyrir rétt. En það eru ekki bara við sem þurfum og erum að endurskilgreina hvað er til hægri og hvað til vinstri, hvað á a vera í einkaeign og hvað í almannaeign, hver eru siðalögmál viðskipta og svo framvegis. Þetta eru sögulegir tímar, eins og ég sagði; allur heimurinn stendur á krossgötum. Það var nú bara í gær sem Barack Obama setti ný lög. Hann segir að “bandaríska þjóðin þurfi, vegna þessara laga, aldrei framar að borga reikning vegna mistakanna á Wall Street. Skattgreiðendur þurfi ekki framar að borga brúsann af mistökum viðskiptalífsins. Punktur. Ef stór fjármálastofnun fer á hausinn verðum við að hindra það, í krafti þessara laga, að allt hagkerfið fari með í fallinu og vinda ofan af klúðrinu. Og við munum setja nýjar reglur sem tryggja að ekkert fyrirtæki sé verndað vegna þess að það sé ‘of stórt til að hrynja’.
Minnir þetta ekki aðeins á Icesave-málið?
Samningurinn sem þú gerðir við Íslendinga er að mínu mati úreltur. Samningur í anda 20stu eða jafnvel 19jándu aldar. Við vorum nýlenda í 600 ár og okkur mislíkaði það. Við höfum bara verið sjálfstæð þjóð í 66 ár. Og þótt nokkrir Íslendingar hafi selt okkur í djúpan vanda og Icesave-skuldir, þá ætlum við ekki að gerast orkunýlenda. Við viljum gjarnan borga skuldir okkar, en ekki með þessum hætti.
Við erum nú komin inn í 21. öldina. Á tímum heimsvæðingar og internets verðum við að endurskilgreina samskipti fólks. Hvernig við gerum viðskipti, seljum tónlist, verjum einkarými okkar lögum og svo framvegis, listinn er langur.
En eins og í pottinn er búið núna Ross, þá finnst mér að við ættum ekki að samþykkja þennan samning.
Þjóðin verður fyrst að ákveða sjálf hvernig hún vill að orkuauðlindir hennar verðir nýttar. Ef hún kýs einkavæðingu gætirðu kannski komið aftur.
Ef þú þá býður betur en þetta.
björk
Undirskriftasöfnun: Áskorun til stjórnvalda um að koma í veg fyrir söluna á HS orku til Magma Energy og til Alþingis um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um orkuauðlindirnar okkar og nýtingu þeirra á www.orkuaudlindir.is <http://www.orkuaudlindir.is>
Tengt efni:
- Björk answers Beaty and then again ! When Björk had published several questions on the so called...
- Er tími síðnýlendustefnunnar ekki liðinn? Björk ræddi um um áskorun sína til ríkisstjórnarinnar um að...
- Björk’s alarm-letter The other day Björk sent this letter around and to...
- Magma lied to us… and other articles Here are some articles on the scandalous selling of Icelandic...
- Magma-leyndin til að fylgjast með hinu æsispennandi og hrikalega Magma-máli sem...
