Sjálfboðasamtökin SEEDS fagna um þessar mundir fimm ára afmælinu sínu og að því tilefni verður efnt til Umhverfisráðstefnu í Iðnó þriðjudaginn 16. nóvember í samstarfi við Landvernd og Umhverfisstofnun.
Sjálfbærni er eitt mikilvægasta málefni líðandi stundar innan umhverfisgeirans. Sjálfbær þróun og hagræn nýting náttúruauðlinda er okkur nauðsynleg til að tryggja velferð í framtíðinni. Á ráðstefnunni verða tekin dæmi um umhverfisvæn samfélög og þátt alþjóðlegra sjálfboðaliða í umhverfismálum á Íslandi. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar mun opna ráðstefnuna og er heiðursgestur hennar Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.
Tengt efni:
- Sameinuðu þjóðirnar – umhverfismál og sjálfbær þróun Stokkhólms-ráðstefnan um vernd umhverfis mannsins árið 1972 markaði tímamót í...
- Núna: Ráðstefna um tísku og sjálfbærni Í dag á milli klukkan 9.30 og 12.30 er í...
- Heilsa og hagsæld með nýsköpun – Rannís-ráðstefna 6. apríl Rannís blæs til ráðstefnu um heilbrigðismál í stóru samhengi nýsköpunar...
- Hvað er sjálfbær þróun ? Á vef Umís, Environice má finna góðar og gagnlegar skýringar...
- Sjálfbærni á tímamótum Félag umhverfisfræðinga efnir til málþings þriðjudaginn 2. des. kl. 15:00...
