Björk var í viðtali við Þórhall Gunnarsson í Návígi í Sjónvarpinu. Þar talar hún um niðurstöður Neistafundanna. Þá er að finna hér sem pdf skrár.
Inngangur að Neista:
Í framhaldi af Náttúrutónleikum 2008 hóf Björk Guðmundsdóttir rannsókn á grósku atvinnulífs á Íslandi og boðaði í kjölfarið til vinnufunda, í samvinnu við vefinn Nattura.info, Háskólann í Reykjavík og Klak, nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Á vinnufundum þann 12. og 19. október 2008, komu saman í opinni samræðu um hundrað sérfræðingar; fræðimenn, fjárfestar og iðnhönnuðir, fulltrúar atvinnuþróunarfélaga, fagsamtaka og þekkingarfélaga um land allt, ásamt þeim sem hafa unnið að hugmyndasköpun, fyrirtækjamyndun og annarri nýsköpunarstarfsemi á sviði sjálfbærni og fjölbreytileika. Á fundunum var þátttakendum skipað til átta borða; heilsuborðs, hátækniborðs, menntaborðs, ferðaborðs, hönnunarborðs, matarborðs, líftækniborðs og orkuborðs. Auðveldlega hefði mátt sitja við fleiri borð, svo sem menningar- og listaborð, fjármálaborð og stjórnmálaborð og kemur vonandi að þeirri veislu innan tíðar. Meðfylgjandi eru þær ályktanir sem dregnar hafa verið úr frjórri samræðu vinnufundanna og þeirri umræðu sem fór þar í gang og hefur síðan haldið áfram í ýmsum samræðu- og aðgerðahópum og einnig á virkum póstlista Neista sem telur 120 manns og óðum stækkar. Því enn má efla tengslanet þeirra sem hafa reynslu og þekkingu á kviku kerfisins og á ólíkum sviðum nýsköpunar.
Hér er eru Neistarnir:
Neisti allur pakkinn samþjappaður, zip í einni möppu.
Og sem pdf, smella á skrá sem niðurhal:
Um.Neista
Neisti.Menntun
Neisti.Ferdamal
Neisti.Hataekni
Neisti.Heilsa
Neisti.Honnun
Neisti.Liftaekni
Neisti.Matur
Neisti.Orka
Tengt efni:
- Samræða okkar Samræðan okkar | Neisti : Vinnufundir | Gullpakkinn: Breytingatillögur |...
- Vör: Líf svifþörunga og dýrasvifs Mánudaginn 23. febrúar kl.15 flytur Erla Björk Örnólfsdóttir erindi í...
- Neisti- vinnufundir Vinnufundir Náttúra.info; Neisti, í samvinnu við Klak og Háskólann í...
- Opið bréf til Ríkisstjórnar Íslands, með drögum að breytingartillögum Björk Guðmundsdóttir afhenti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, lítinn gullpakka, með...
- Lýðræði, endurskoðun og andóf Hvað er virkt lýðræði? | Borgaraleg óhlýðni & borgaraleg virkni...
