Á nýju ári, þegar menn eru að velta fyrir sér hvert skal stefna og á hvaða forsendum, er ágætt að glugga í gamlar skýrslur, í þeirri viðleitni að læra af reynslunni, og sjá þá bæði hvernig skýrslur eins og til dæmis þessi sem var gefin út í fyrravor af forsætisráðuneytinu um Ímynd Íslands, styrk, stöðu og stefnu, er bæði heimild um afstöðu sem vert er að breyta og líka um hugsun sem hægt er að endurnýta eða endurvinna. Sjá skýrsluna í heild sinni á PDF
Categories
About
Radio nattura.info
Nattura.info is a desire for a renewal in discussion and debate on Icelandic resources; a desire for bridges between different spheres of knowledge, news, composition and productive ideas on self-sustainable evolution, on cluster of start-up companies and other ways than heavy industry
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- Dreamland
- Eþikos
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hveravefsíðan
- Innovit
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landvernd
- Náttúra - the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nóvemberáskorunin !
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Svartárkot
- Tilraunavefur H.Í.
- UMÍS ehf. Environice
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Orðspor og sjálfsvirðing
Sigríður Þorgeirsdóttir, heimspekingur, í sérfræðingaráði Framtíðarlandsins, kennari í Háskóla Íslands, veltir fyrir fyrir sér í þessari grein, sem birtist í Fréttablaðinu rétt fyrir jól, hvernig við endurskoðum afstöðuna til okkar sjálfra í ljósi nýrra tíma og nefnir orkumál meðal mála sem við þurfum að endurnýja afstöðu okkar til. Hún vísar í skýrslu sem forsætisráðuneytið gaf út að vori 2008 um Ímynd Íslands, styrk, stöðu og stefnu, en þessi skýrsla er tímanna tákn fyrir margar sakir og áhugavert að ræða hana frekar á næstunni.
Vöruþróun á Vestfjörðum
Frá mbl.is : hvatt_til_voruthrounar_a_vestfjordum
Vöruþróun á Vestfjörðum er verkefni á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð sem fer af stað í ár. Er verkefnið, að sögn Bæjarins besta, ætlað starfandi fyrirtækjum á Vestfjörðum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Þannig er markmið verkefnisins m.a. að þróa þjónustu eða vöru á innanlandsmarkað eða til útflutnings, að veita faglegan og fjárhagslegan stuðning við þróun á þjónustu eða vöru og að koma samkeppnishæfri vöru eða þjónustu á markað innan 18 mánaða frá upphafi verkefnisins.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 12. janúa
Hlustum á náttúruna !
Áramótaviðtal Ríkisútvarpsins var að þessu sinni við Björku Guðmundsdóttur um baráttu hennar á sviði umhverfis- og uppbyggingarmála landsins. Í spjallinu sagðist hún þurfa tímabundið að fara af landinu en héldi áfram sambandinu bréfleiðis og með nýjustu fjarskiptatækni og ætlaði að fylgja baráttunni
eftir. Viðtal Ævars Kjartanssonar við Björku má hlusta á hér: http://dagskra.ruv.is/ras1/4445102/2009/01/01/
Gleðilegt ár endurnýjunar!
Náttúra.info óskar landsmönnum og vættum gleðilegs árs með von um átak í átt að meiri virðingu fyrir náttúrunni, frjórri jörð, heilnæmu lofti og hreinu vatni, aukinni virðingu fyrir sjálfum sér og öllum heiminum. Og í von um átak til nýsköpunar og sjálfbærrar þróunar á öllum sviðum og endurnýjunar tímanna.
Náttúra.info þakkar fyrir ánægjulega samræðu og samvinnu á síðustu mánuðum. Vonandi verður hér frjór vettvangur áframhaldandi umræðu, opinnar samræðu um það sem skiptir máli, og samtengingar gagnagrunna og reynslubrunna svo þekkingin megi streyma áfram eins og lifandi vatn.
Auður Capital og Björk í New York Times
New York Times birti á aðfangadag frétt um nýjan sprotasjóð Auðar Capital í nafni Bjarkar Guðmundsdóttur og sjóðurinn hefur víða vakið mikla athygli, sjá grein í N.Y.T.: Auður Capital og Björk í New York Times
Gefum Íslandi gjöf ; gefum íslenska jólagjöf í ár
Yfir sextíu smáfyrirtæki um land allt taka þátt í átaki um kynningu og sölu gjafavöru og góðrar þjónustu. Úrvalið er mikið: Gæðamatvæli, hlýr fatnaður, vandaðir munir, gisting við þjóðveg eða úti í auðn, alúðar bað- og heilsumeðferð fjarri skarkala höfuðborgar, svo fátt eitt sé nefnt. Nógur er fjölbreytileikinn, en til að auka eftirspurn þarf að minna á gróskuna og gæðin. Íslensk gjöf er gjafabréf… (more…)
Hraðbraut sprotafyrirtækja
Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja – lauk fyrstu önn sinni síðastliðin föstudag. Viðskiptasmiðjan er nám sem flýtir ferli sprotafyrirtækja og gerir uppbyggingu þeirra markvissari.
Frumkvöðlar sem að sækja Viðskiptasmiðjuna eru ýmist með hugmyndir á frumstigi eða með fyrirtæki sem eru búnin að vera í einhvern tíma í rekstri og vilja þróa vaxtarsprota innan fyrirtækisins eða t.d. skipuleggja alþjóðavæðingu. Í Viðskiptasmiðjunni er boðið upp á námskeið sem skapa nauðsynlega þekkingu og leiðbeinendur og ráðgjafa sem vísa veginn. Á námskeiðinu skapast líka tengsl við aðra frumkvöðla og fjárfesta sem veitir stuðning, orku og eykur líkur á velgengni. Kennarar Viðskiptasmiðjunnar eru fræðimenn og frumkvöðlar sem margir hverjir eru hluti af nauðsynlegu stuðningskerfi sprotafyrirtækja, s.s. fjárfestar og ráðgjafar.
(more…)
Sprotasjóðurinn Björk
Blaðamannafundur var haldinn í húsakynnum Auðar Capital í gær. þ. 17. des, þar sem tilkynnt var um sprotasjóðinn Björk, sem er fagfjárfestasjóður fyrir fjárfesta að beina féi í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og taka virkan þátt í uppbyggingu á Íslandi um leið og þeir ávaxta fé sitt, eins og segir í fréttatilkynningu frá Auði Capital. Ennfremur segir að fjárfest verði í fyrirtækjum sem eru að leysa úr læðingi verðmæti sem byggja á sérstöðu Íslands og eru sjálfbær, þ.e.a.s. standa fjárhagslega undir sér, stunda samfélagslega ábyrga viðskiptahætti og eru umhverfisvæn. Sérstakur áhugi er á fjárfestingum sem nýta menntun okkar og menningu og búa yfir nýrri tækni og/eða nýrri nálgun.
Sjá nánar um sprotasjóðinn BJÖRK á heimasíðu Auðar Capital
- Fjólublár umfeðmingur, vex um land allt












