Flott hvatningarmynd í tilefni af Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsmál. Sjá myndband neðst á þessari síðu:
http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=4879&Itemid=5001
Nattura.info er þrá eftir endurnýjun í umræðunni um auðlindir Íslands; þrá eftir brúm á milli sviða faglegrar umfjöllunar, frétta, fróðleiks og frjórra hugmynda um sjálfbæra þróun, sprota-vöxt og aðrar leiðir en stóriðju til virkjunar náttúruauðlinda og mannauðs
Flott hvatningarmynd í tilefni af Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsmál. Sjá myndband neðst á þessari síðu:
http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=4879&Itemid=5001
Að móta byggð – Ráðstefna Skipulagsstofnunar
Að móta byggð – Ráðstefna Skipulagsstofnunar verður haldin fimmtudaginn 30. apríl n.k. en hún er í samstarfi við: Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsfræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.
Sjá nánari upplýsingar um skráningu og DAGSKRÁ.
Tími: Fimmtudagur 30. apríl kl. 8:30 – 17:00
Staður: VeisluTurninn Smáratorgi 3, 20. hæð, Kópavogi – aðkoma frá Smáratorgi
Nú þegar umræða um svínaflensu stendur sem hæst er ekki frá að maður lesi greinar um matvælaöryggi með nánari eftirtekt. Á síðu norden.org er grein um að nú hafi norðurlönd lagt aukna áherslu á matvælaöryggi á heimsvísu.
Norðurlönd stuðla að alþjóðlegu matvælaöryggi
Norðurlöndin leggja mikið af mörkum til að auka matvælaöryggi á heimsvísu. Loftslagsbreytingarnar eru ógnun við aðgengi að matvælum, sérstaklega í fátækari hlutum heimsins. Mikilvægar fæðutegundir eru í útrýmingarhættu til að mynda vegna eyðumerkurmyndanna og flóða.
Umhvefisdagurinn er í dag og er hann tileinkaður grænum störfum og atvinnuuppbyggingu. Málþing verður haldið í Iðnó í dag kl. 13.00 – 15.00 og verða þar 7 fyrirtæki sem ræða m.a um framtíðarsýn sína. Eftir þingið verða svo pallborðsumræður.
Kuðungurinn, umhverfisviðurkenning umhverfisráðherra verða afhent. Spennandi verður að sjá hverjir hafa staðið sig vel í þágu umhverfismála í ár. Einnig verða afhvent verðlaun um Varðliða umhverfisins. En það eru verkefnasamskipti sem grunnskólabörn 5-10 bekkjar taka þátt í.
(tekið af vef umhverfisráðuneytisins)
Græn störf – málþing um vistvæna nýsköpun
Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um Græn störf og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.
Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.
Eitt hundrað milljónum hefur verið úthlutað til 40 ferðaþjónustuverkefna. Tilhlökkunin er mikil hjá natturu.info að ferðast um landið og skoða allar þessar góðu hugmyndir þegar þær eru komnar á legg. Meðal styrkþega eru; Vatnasetur á Vestfirðum, Jöklaveröld á Höfn, Urðarbrunnur á Hveragerði, Ylströnd og heit laug á Egilsstöðum, Fuglastígur á Norðausturlandi og grænt kort í Ölfusi.
Nýjasta grein Kristínar Þóru Kjartansdóttur í Bændablaðinu frá því 8.apríl fjallar um sjö kryddjurtir. Þar tekur hún fyrir nytsemi og lækningamátt jurtanna, enda geta jurtir verið allra meina bót og ekki verra að vita hvaða gagn þær veita gera við inntöku eða áburð.
Sjö innfluttar
– Salvía, lavendel, kamilla…
Kæri lesandi.
Margar af þeim jurtum sem við notum reglulega sem krydd eða
te eru innfluttar. Þær vaxa ekki á Íslandi nema í vernduðu umhverfi,
það er í gróðurskálum, gróðurhúsum eða innanhúss. Margar hverjar
eru algengar í íslensku eldhúsi og virka þá kannski um leið sem lækn-
ingajurtir, án þess þó að kokkurinn geri sér alltaf grein fyrir því. Hér
verða sjö þessara jurta teknar fyrir.
Fræknar konur fengu góða styrki til atvinnumála kvenna um daginn frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Fullt af frábærum hugmyndum sem skemmtilegt verður að fylgjast með í framtíðinni, þ.á.m. þaraböð á Reykhólum, baðhús á Stykkishólmi og umhverfisvænar byggingaeiningar.
tekið af vef atvinnumálakvenna.is;
Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutar 25 milljónum króna til atvinnumála kvenna
Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.
Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Nú eru til úthlutunar 25 milljónir króna. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna.