Verum vakandi um náttúru Íslands

Skaftafell

Skaftafell

Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.

Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.

(more…)


Flöskur í náttúrunni

Grænar flöskur í grænni náttúru

Grænar flöskur í grænni náttúru

Það var gaman sem krakki að finna flöskur bak við ruslatunnur sem unglingar höfðu skilið eftir og selja þær í sjoppu og fá sér hlaup. En nú er erfiðara að skila flöskunum, kaupmaðurinn á horninu hættur að taka við glerjum og Sorpa ekki beint í alfaraleið fyrir flesta. Nú þegar umhverfismál skipta framtíð okkar allra og afkvæma okkur svona mikið þá spyr maður sig; “Hvernig standa Íslendingar sig í að endurvinna sorp?”   Árangursstuðullinn er örugglega ekkert mjög hér í þeim efnum. En það er aldrei of seint ad byrja, eða jú kannski verður það of seint en er ekki enn of seint, einn tveir og þrír og til samans nú. Opnum augun og tökum öll ábyrgð á umhverfinu. Við þurfum jú öll að búa hér…
Sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi fyrir flöskur?

Norðurlönd ættu að taka upp sameiginlegt skilagjaldskerfi fyrir flöskur og dósir. Þetta var skoðun margra þingmanna sem funduðu í Kaupmannahöfn á föstudag. Sameiginlegt skilagjaldskerfi myndi fyrst og fremst bæta umhverfið – miklu magni af flöskum og dósum er hent út í náttúruna ár hvert og einnig með heimilissorpi. (more…)


Sorglegur skandall með Helguvík!

Helguvík

Helguvík

Lög um Helguvíkurálver samþykkt eins og ekkert hafi í skorist. Eins og ekkert vatn hafi runnið til sjávar síðan það þótti frábær hugmynd af efla stóriðnaðinn á Íslandi. Þegar ekki þótti svo hræðilegt að hendast í að ýta undir svokolluð ruðningsáhrif í hagkeðjunni.

Sjá nánari umfjöllun á mbl.is og á smugunni.


Lóan er komin

Kveða burtu leiðindin það getur hún

Kveða burt leiðindin

Nú eru fuglafræðingarnir alveg spenntir að skrá hjá sér komu farfuglanna, loftin eru munstruð af þeim yfir tún og vötn. Lóan þurfti að hvíla sig svolítið og var slöpp sumsstaðar í fyrstu en fór svo að syngja.

Af vef Náttúrustofu Austurlands; www.na.is:

Á Skírdag 9.april síðastliðinn mættu fyrstu 9 heiðlóurnar á Héraðið, þær lentu í túni við bæinn Uppsali í Eiðaþinghá, þeim hefur fjölgað upp frá því.  Fyrstu heiðlóurnar voru skráðar 16.april 2008  svo þær eru eitthvað fyrr á ferðinni í ár.
Þá var einn gráhegri á andapollinum á Reyðarfirði á Föstudaginn langa ( 10.april 2009)



Í kvöld: Ímyndir Íslands: íslensk hönnun, kynjamynir og nýir víkingar

Furðumynd úr handriti af vef ímynda Íslands: inor.is:"All human cultures articulate, situate themselves by categorizing the world. Such a predicative act necessarily involves a distinction between that which is allowed into the sphere of culture, and that which is excluded; the circumscription of cultural identity proceeds by silhouetting it against a contrastive background of Otherness." - Leerssen & Corby.

Furðumynd úr handriti af vef ímynda Íslands: inor.is:"All human cultures articulate, situate themselves by categorizing the world. Such a predicative act necessarily involves a distinction between that which is allowed into the sphere of culture, and that which is excluded; the circumscription of cultural identity proceeds by silhouetting it against a contrastive background of Otherness." - Leerssen & Corby.

Rannsóknarhópurinn Ímyndir Íslands, sjá áhugaverða heimasíðu þeirra: www.inor.is, heldur fund í kvöld klukkan átta í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð: Ímyndir Íslands og aldahvörf. Dagskrá sem hér segir:

Katla Kjartansdóttir: Hinir nýju víkingar
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir: “Íslensk hönnun” sem minjagripur
Þorgerður Þorvaldsdóttir: Kynjaímyndir í fortíð, nútíð og framtíð?

Athugasemdir og viðbrögð:
Guðmundur Oddur Magnússon

Sjá nánar á www.inor.is
www.akademia.is


Koma spillt hagsmunatengslanet í veg fyrir orkuútrás Íslendinga ?

Vindmyllur í hafi. Af stórskemmtilegri heimasíðu: www.hlutir.is þar sem má finna fullt af skemmtilegum nýjustu tækni- og vísindauppgötvunum!

Vindmyllur í hafi. Af stórskemmtilegri heimasíðu: www.hlutir.is þar sem má finna fullt af spennandi nýjustu tækni- og vísindauppgötvunum!

Tími nýrrar orkustefnu á Íslandi og hugsanlegrar útrásar orkufyrirtækja og góðra hugmynda til orkunýtingar, virðist bíða uppgjörs við stóriðjustefnuna en einnig uppgjörs við hreppapólitík stjórnmálanna og spillt hagsmunatengslanet sem manni finnst sýkja alla hugsun, allar framkvæmdir í nýsköpun. Það er fátt að frétta af Frumtakssjóðnum sem átti að brúa nýsköpunargjánna og við þurfum yfirleitt á allri okkar þolinmæði að halda þegar vorar og mann langar til að sjá sprotana blómstra.

Hér er fréttaskot frá mbl.is með viðtali við Össur þar sem hann harmar að útrásin skyldi ekki hafa verið í nafni eins fyrirtækis og síðan berst umræðan að spillingunni og í gegnum línurnar má lesa fyrirstöðu þess að skapa í sameiningu nýja orkustefnu fyrir Ísland: Annarleg hagsmunatengsl. Hvers konar uppgjör þarf að eiga sér stað frekara til að hægt verði að koma sér saman um nýja orkustefnu sem tekur farsæld framtíðarinnar og alla þætti hennar inn í myndina? Hvað þarf að gera? Er jákvætt að huga að nýrri útrás, núna orkuútrás? Hvers slags ætti hún þá að vera og undir hvaða formerkjum? Hvernig liti sú aðgerðaráætlun út? Það er spurning dagsins á náttúra.info.


Obama og Ísland : Sýnum í verki að við horfum til framtíðar ! Saman!

Obama og Ólafur Ragnar á ráðstefnu um loftslagsmál í Alaska. Obama er með einhvern forláta bækling líklega með myndum af landinu. Mynd frá prince.org

Obama og Ólafur Ragnar á ráðstefnu um loftslagsmál í Alaska í fyrra. Obama væntanlega með forláta bækling með myndum af landinu. Mynd frá prince.org

Obama sagði á fundi í Strassburg um daginn að við hljótum öll að vita að tíminn er að renna út, hlýnun jarðar er í hraðri þróun og að við verðum að bregðast við. Hann hvetur iðnþjóðirnar til að hugsa stórt og vera ábyrgar í umhverfismálum og að hugsa um nýsköpun í orkumálum og atvinnusköpun í samhengi jarðarinnar og umhverfisins og leita að betri og grænni nýtingu endurnýjanlegrar orku og að grænum fjárfestingartækifærum. Hann sýndi því áhuga að koma til Íslands , sagðist alltaf hafa langað til að koma þangað, og að hann vildi rannsaka möguleikana sem við höfum til nýsköpunar í jarðvarmavirkjunum og lofstslagslausnum. Þvílíkt tækifæri sem slík heimsókn væri til kynningar á nýrri grænni tækni og nýrri skapandi hugsun! Hvað væri gaman ef við gætum boðið hann velkominn og allan heiminn til að skoða okkar náttúruauðlindir og mannauð í formi hugmynda og grænna framkvæmda, svo heimurinn mætti læra af öðru en mistökum okkar!  Og hvað væri líka gaman ef gætum sýnt gott fordæmi á Kaupmannahafnarfundinum og hætt að reyna að væla út órættmætar og óraunsæjar undanþágur. Ef við gætum bara tekið risastökk núna og sett allt á fullt í átt að sjálfbærri og vistvænni framtíð!

Hér að neðan eru tvær klausur um Obama og Ísland, og pistill af Vísindavefnumum jarðvarma: Hvað er jarðhiti?

Það er ljóst að leit okkar að farsælli leið verður að eiga sér stað í öflugri samræðu á milli vísindamanna, þeirra sem hafa reynslu af landinu og virkjun orkuauðlinda þess, hinna sem eiga sér drauma, fjárfesta, fræðimanna, stjórnmálamanna etc. etc. Við verðum að endurskoða svo margt og slík endurskoðun þarfnast þátttöku allra!

Obama: Atvinnusköpun má ekki vera á kostnað umhverfisins (more…)


Líf úr eggjum að vori

Æðaregg í hreiðri að vori. Senan í Draumalandinu þar sem virkjunarlónið flæðir innundir gæsarhreiðrið svo það skolast í burtu og ungarnir drepast á floti, er ein af áhrifaríku senunum í myndinni

Æðaregg í hreiðri að vori. Mynd af vefnum strandir.is. Senan í Draumalandinu þar sem virkjunarlónið flæðir innundir gæsarhreiðrið svo það skolast í burtu og ungarnir drepast á floti, er ein af mörgum áhrifaríkum senum í myndinni.

Náttúra.info óskar öllum gleðilegrar páskahátíðar, með von um líf úr eggjum, frjósemi vorsins og sprotavöxt sjálfbærninnar !


Sjálfbær þróun: Ný stefna fyrir Norðurlönd: 2009-2012

Táknmynd millilandaferjunnar Smyrils, sem fer frá Seyðisfirði til Færeyja og áfram út í norðrið

Táknmynd millilandaferjunnar Smyrils eða Norrænu, sem fer frá Seyðisfirði til Færeyja og áfram út í norðrið

Norræna á fleygiferð!

Norræna á fleygiferð!

Norræn umhverfisáætlun
Framkvæmdaáætlun 2009-2012

Loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, sjálfbær neysla og framleiðsla, eru stærstu drættirnir í  stefnumótun norrænu ráðherranefndarinnar í umhverfismálum til þriggja ára. Embættismannanefnd ber ábyrgð á framkvæmdinni, en norrænu umhverfisráðherrarnir á pólitískum þáttum samstarfsins. Jafnframt hefur verið gefin út norræn áætlun um sjálfbæra þróun.

Fréttatilkynning:

Norræna ráðherranefndin hefur gefið út framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012. Í áætluninni er stefnumótun í norrænu umhverfisstarfi tíunduð og m.a. fjallað um loftslagsmál, hafið, líffræðilega fjölbreytni og sjálfbæra neyslu og framleiðslu.

Norrænu umhverfisráðherrarnir bera meginábyrgð á pólitískum þáttum umhverfissamstarfsins en embættismannanefnd skipuð af ráðherrunum ber ábyrgð á framkvæmd umhverfisáætlunarinnar.

(more…)


Bréf frá Árna Finnssyni um sögufalsanir og undanþágur Íslands

Mary Robinsson, fyrrum forseti Írlands og Björk Guðmundsdóttir á ráðstefnu Road to Copenhagan þar sem undanþágur voru til umræðu í undirbúningi Kaupmannahafnarfundarins. Björk lýsti því yfir að Íslandi væri ekki sómi að því að sækja um frekari eða áframhaldandi undanþágur þar sem stóriðjan er undanskilin í útreikningum á mengun loftslagsins

Mary Robinsson, fyrrum forseti Írlands og Björk Guðmundsdóttir á ráðstefnu Road to Copenhagan þar sem undanþágur voru til umræðu í undirbúningi Kaupmannahafnarfundarins. Björk lýsti því yfir að Íslandi væri ekki sómi að því að sækja um frekari eða áframhaldandi undanþágur þar sem stóriðjan er undanskilin í útreikningum á mengun loftslagsins

Árni Finnsson forsvarsmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sendir okkur bréf um undanþágur Íslands í loftslagsmálum. Í ljósi þess að verið var að afgreiða málið í nefnd á Alþingi þar sem bæði Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn ályktuðu um mikilvægi þess að Íslendingar fengu áfram sínar undanþágur, sem í sjálfu sér er úrelt krafa, er bréf Árna mjög aktúelt. Hann rekur óheilindi og falsanir, ónákvæm vinnubrögð þar sem illa er vísað til heimilda og fyrri skuldbindinga.

Bréf frá Árna:

Siv Friðleifsdóttir er fyrsti flutningsmaður að þingsályktunartillögu sem ber titilinn „… hagsmuni Íslands í loftslagsmálum.” Ekki er ljóst hvað tillagan felur í sér en samkvæmt flutningsmönnum er það markmiðið að Ísland fái frekari undanþágur fyrir útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju í samningaviðræðum um framhald Kyoto-bókunarinnar sem fram fara í Kaupmannahöfn í desember.

Samtals nemur aukning í losunarheimildum Íslands nær 60% á tímabilinu 2008 – 2012 miðað við 1990. Næst þar á eftir kemur Ástralía með 8% aukningu. Nú skal sækja mengunarheimildir fyrir stóriðju langt umfram þær sem Ísland aflaði sér þegar endanlega var gengið frá Kyoto-bókuninni í Marakech haustið 2001. (more…)


Í kvöld: Upp með fagurfræðina í stjórnmálum!

Hvað er fagurfræði? Mynd af wikipediu: Esthétique

Hvað er fagurfræði? Mynd af wikipediu: Esthétique

Fagurfræði er grein innan heimspeki sem rannsakar tengsl skynfæranna, innsæis og skynjunarinnar við heiminn og við aðra þætti dómgreindar okkar svo sem rökhugsun og dómgreind… eða eitthvað í þá átt…

Stefán Snævarr, prófessor í heimspeki við háskólann í Lillehammer í Noregi, flytur fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar og Félags áhugamanna um heimspeki miðvikudaginn 8. apríl kl. 20 í stofu HT-101 í Háskóla Íslands (Háskólatorgi). Fyrirlesturinn ber heitið „Niður með hugmyndafræði, upp með fagurfræði!“.

Í lestrinum hyggst Stefán færa rök fyrir því að takmarka beri hlutverk hugmyndafræði og hugmyndakerfa í allri stjórnmálaumræðu. Fyrir því færir hann margvísleg rök en einnig fyrir því að hugmyndafræði verði heldur ekki algjörlega úthýst þaðan. Í stað hennar boðar Stefán aukna hlutdeild hins „estetíska“ og sterkra tilfinninga í veröld stjórnmálanna, t.d. réttlætiskenndarinnar. Með því yrði ímyndunaraflinu einnig beitt í auknum mæli til þess að finna góða pólitíska kosti. Skáldskapurinn yrði þá að sama skapi metinn þar að verðleikum í þeim skilningi að hæfileikinn til þess að segja sögur um tiltölulega vel afmarkaða atburði leysti af hólmi öld stórsagnanna sem hugmyndafræðin byggir á. Eins og Stefán kemst að orði: „Skáldskapur og ljóðrænt líkingarmál er oft besta tækið til að varpa ljósi á djúpar og erfiðar tilfinningar, t.d. skelfingu helfararinnar.“

Nánari lýsingu á lestrinum er að finna hér fyrir neðan.

(more…)