Græðum sár líðandi stundar, græðum framtíðina! Paul Hawken á Íslandi

paulHinn heimskunni umhverfisverndarsinni og hugmyndafræðingur um grasrót og sjálfbærni, Paul Hawken, kom til landsins í fyrra í boði Bjarkar Guðmundsdóttur og hélt opinn fyrirlestur í bókasal Þjóðmenningarhússins og talaði til Íslendinga á erfiðum tímum. Hann hafði þá sett sig inn í stöðu okkar og miðlaði af reynslu sinni og gaf góð ráð. Ég fékk leyfi til að afskrá upptöku af fyrirlestrinum og endursegja aðalatriðin og undirstrika. Paul Hawken hefur tekið virkan þátt í að undirbúa þjóðfund Íslendinga sem verður haldinn 14. nóvember 2009 en hann  talaði einmitt fyrir slíkum fundi í þessum fyrirlestri. Oddný Eir.

Fyrirlestur Paul Hawken í bókasal Þjóðmenningahússins 13. desember, 2008.

Þið virðist vera sú þjóð í heiminum einmitt núna í miðri kreppunni sem hefur mesta möguleikana, sagði Hawken og bætti við að það væri að stórum hluta vegna orkunnar okkar. Og sagðist ekki segja þetta ekki af því hann væri hérna í góðu skapi í fallegu veðri, heldur vegna þess að hann hafi verið að skoða skýrslur og bera saman möguleika þjóðanna í þessum örlagatímum…

Í hvaða formi ætlið þið að flytja út orkuna? Áli, bjórdósum? Er það framtíðarsýn ykkar? Er það arfleifð ykkar spurði Hawken, og hvort við vildum á þann veg sýna komandi kynslóðum fordæmi og virðingu. Hann vildi gefa okkur þau ráð að rannsaka alla möguleikana, á alla vegu, í litlum hópum, í virku borgarasamfélagslegu skipulagi, í háskólum, í vísindastofnunum, í stjórnmálum í viðskiptum. Rannsaka alla aðra möguleika sem við höfum.

Hvað vantar hérna á Íslandi? Þið hafið allt, sagði Hawken. En hvað gæti manni sýnst vanta hér komandi að utan, spurði hann og svaraði því til að sér virtist sem ábótavant væri skilningi á mikilvægi ferlisins: Að gefa sér tíma til að safna saman reynslusögum og upplýsingum, staðreyndum og niðurstöðum rannsókna, skoðunum og hugmyndum;  að sjá ákvarðanatöku sem frjósamt ferli í átt að landinu sem við viljum búa í, heiminum sem við viljið búa í.

Við verðum að horfa til ferla sem framleiða ekki fátækt, heldur farsæld, og sem eru raunveruleg nýsköpun í sjálfu sér. Farvegur sköpunarkrafts, frumherjahugsunar, nýrra viðskiptaleiða… Að það grói! Ekki í skilningnum gamla að græða, græða, græða, heldur að viðhalda ferlum sem viðhalda lífinu, græða lífið, græða sárin sem eru núna opin, og reyna að verðja réttlát og sjálfbær, vinsamleg, örlát, hlý og þess verð að börn okkar séu stolt af okkur!

-
Björk Guðmundsdóttir bauð hann velkominn og þá kumpána báða, John Picard og Paul Hawken, og sagði að þeir væru heimsmeistarar í “grænku”.  Salurinn var þéttsetinn af fólki og í lok fyrirlesturs voru miklar og áhugaverðar samræður.

Hawken sagðist ekki ætla að stinga upp á neinum tilbúnum skyndilausnum fyrir Ísland, þótt það væri vissulega aðkallandi. Hann vildi hins vegar deila með okkur nokkrum hugmyndum varðandi erfiða stöðu Íslands og mögulegar lausnir á vandanum.

Eftir því sem hann kannaði málið betur, með lestri á ýmiskonar fróðleik um land og þjóð og stöðu mála, þá sæi hann að allt sem þjóðin þarfnast sé til staðar í landinu og að við þörfnumst einskis að utan; Að við höfum auðlindirnar, svörin, mannauðinn og tækniþekkinguna, allt sem við þörfnumst til að umbylta íslensku efnahagslífi. Kannski er vandinn sá að stjórnendur nýta sér ekki þessa þekkingu sem býr með þjóðinni, allavega sé einhversstaðar vöntun á upplýsingaflæði, því það sé auðséð að hvergi í heiminum séu jafn útúr flæðandi uppsprettur orku og þekkingar. Og hvergi á sínum ferðum um heiminn hefur hann séð þjóð jafn tilbúna til að takast á við 21. öldina. Svo miklu færari séum við um það heldur en til dæmis hans landar, Bandaríkjamenn, þótt þeir verði mjög framarlega núna með nýjum leiðtoga.

Vandinn er hins vegar sá, sagði Hawken, að þegar eitthvað svona hrikalegt gerist eins og kreppan okkar, þá höfum við tilhneigingu til að einblína á vandann og horfa í gegnum hann til framtíðarinnar; varpa upp mynd af framtíðinni út frá forsendum vandans. En hann sagðist einmitt vilja vara við því að slíkt sé gert. Vegna þess að efnahagsvandinn er bundinn hringrás og að það sé dauðadæmt að áætla um framtíðina út frá lögmálum slíkrar hringrásar, það sé sjálfhelda, vítahringur. Öllu heldur verði að huga að lengri tíma ferlum sem hafi virk áhrif á þetta hér land og jafnframt öll önnur lönd í heiminum. Og þau ferli, sú virkni gerði Hawken að aðalefni fyrirlesturs síns, nefnilega orkan. Orkumálin yrðu lykilmál þessarar aldar og án þess að skilja lögmál orkunnar kæmumst við fljótt í þrot. Og til skýringar á orkumálum vildi hann gera greinarmun á þremur tegundum orkunýtingar; Langvinnri, hægri og hraðri orkunýtingu (long, slow and fast). Hann taldi að sú skipting væri frekar til skýringar en hefðbundinn greinarmunur á endurnýjanlegri og óendunlýjanlegri orku.
(more…)


Aðvaranir Paul Hawken og nýleg frétt um óheilindi Alcoa

Helst Ísland á græna kortinu?  Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Helst Ísland á græna kortinu? Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Í frétt á stöð tvö fyrir viku síðan var lítil frétt um Alcoa á alþjóðavettvangi, þar sem sagt er frá ásökunum um mútur fyrirtækisins og óheilindi, jafnframt er rætt um óheilsusamleg skilyrði starfsmanna við álvinnslu, sjá myndskeið á blogg-síðu Láru Hönnu sem fylgist vel með fréttum. Óþægileg fréttin minnir á það sem Paul Hawken sagði þegar hann kom hingað til lands í desember s.l. og varaði m.a. við heilsuspillandi áhrifum álvera, bæði fyrir starfsmenn og íbúa í kring, og studdi mál sitt góðum rökum og haldbærum vísindalegum sönnunum. Hann benti líka á hversu fjárhagslega slæmur áliðnaðurinn væri fyrir Íslendinga í ljósi stöðu landsins. Til gamans má horfa á Hawken í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils þar sem hann talar um stöðu Íslands á tímamótum.


Grænar glósur úr Bókasal

a. durer

a. durer

Stefán Gíslason, framkvæmdastjóri UMÍS ehf. Environice mætti á fyrirlestur Hawken í Bókasal og tók glósur eins og almennilegur nemandi og birti á blogginu sínu: http://stefangisla.blog.is/blog/stefangisla/#entry-744504

Salurinn í Þjóðmenningarhúsinu var þéttskipaður í gær, en það sem Paul sagði á erindi við marga fleiri en þá sem þar voru. Þess vegna ætla ég að taka mér það bessaleyfi að birta nokkra punkta sem ég hripaði niður meðan ég hlustaði. (more…)


Paul Hawken í Silfri Egils

Paul Hawken hélt sérlega áhugaverðan og uppörvandi fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu í gær og svaraði spurningum úr sal svo mynduðust líflegar og alvöru umræður um stöðu Íslands. Hawken var í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils í dag, það var síðasta viðtal Egils fyrir jól, aftast í þættinum, en þátturinn er endurtekinn í kvöld og viðtalið þá textað, sjá vef Ríkisútvarpsins:

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4440910


Fyrirlestur Hawken: Í dag kl. 14.00 í Þjóðmenningarhúsinu

Í dag heldur Paul Hawken fyrirlestur í Þjóðmenningarhúsinu, en hann er á landinu, ásamt John Picard, í boði Bjarkar Guðmundsdóttur, til að taka þátt í samræðu um atvinnumöguleika Íslands í framtíðinni og til að gefa góð ráð. Því þeir félagar hafa gríðarlega dýrmæta reynslu á sviði atvinnu-uppbyggingar á mörgum sviðum og eru eftirsóttir um allan heim til ráðgjafar. Það má segja að Paul Hawken sé leiðandi nýrrar umhverfishugsunar í heiminum og spennandi að heyra hvað hann hefur að segja um stöðu mála á Íslandi. (more…)


Björk býður Paul Hawken og John Picard upp í samræðu

Björk Guðmundsdóttir frumflutti lag sitt Náttúra á vinnufundi um íslenskt samfélag, sem hún skipulagði í október. Lagið var síðan selt á vef Nattura.info. Ágóðinn af sölunni fer í að flytja til landsins einn atkvæðamesta fræða- og athafnamann á sviði sjálfbærrar þróunar, tengslamyndunar og sprotavaxtar, hinn bandaríska Paul Hawken. Hann kemur, ásamt öðrum heimsþekktum umhverfisverndarsinna, John Picard, sem er ráðgjafi um grænkun athafnalífsins og tók m.a. þátt í að gera Hvíta húsið grænt undir stjórn Clintons. Þann 11. desember koma Hawken og Picard til landsins og hitta ráðamenn, forstöðumenn nýsköpunar- og atvinnusamtaka, forsprakka í sprotafyrirtækjum og samtökum um sjálfbærni og samfélagslega, efnahaglega og umhverfislega ábyrgð. Þeir koma til að skoða stöðu mála á Íslandi, taka þátt í samræðu um atvinnu- og fyrirtækjatækifæri og gefa góð ráð um samfélagslega þróun í átt að sjálfbærni. (more…)


Um Natural Capitalism

Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, skrifar hér grein fyrir Náttúra.info um bókina Natural Capitalism eftir Paul Hawken, Amory Lovins og L.Hunter Lovins, en bókin kom út í Bandaríkjunum og Bretlandi árið 1999. Í bókinni er því m.a. lýst yfir að iðnbyltingunni sé lokið! Þorkell setur bókina í samhengi við ástandið á Íslandi og dregur fram styrkleika hugsunarinnar á okkar tímamótum.

(more…)


Paul Hawken : Á elleftu stundu

Síðastliðið sumar kom út heimildamyndin Á elleftu stundu, the Eleventh hour, þar sem Leonardo di Caprio ræðir um alvarleg áhrif hlýnunar jarðar og fjöldi vísindamanna og hugsuða skýrir ástand heimsins og bendir á mikilvægi þess að taka afstöðu með heiminum, það sé ekki seinna vænna fyrir okkur. Paul Hawken er einn þeirra sem kemur fram í myndinni og honum tekst, þrátt fyrir hræðilegar staðreyndir sem eru sýndar, að benda á jákvæðar hliðar: Að hlutskipti okkar sé einstakt, því núna verðum við og höfum tækifæri til að endurhugsa alla okkar afstöðu til heimsins, til að nota þekkingu okkar og tæknikunnáttu á nýjan hátt og hlusta á heiminn, herma eftir lífinu sjálfu og fyllast von um að við getum stuðlað að sjálfbærri þróun lífs okkar á jörðunni. Í myndinni koma líka fram aðrar jákvæðar raddir um mikilvægi sjálfbærrar hönnunar og þróunar á lífhermitækni. Sjá kynningarstubb um þessa mynd, en hana má fá á vídeoleigum og kaupa á netinu:

The Eleventh hour,brot úr viðtalið við Hawken

The Eleventh hour, kynningarstubbur


Um Paul Hawken


Paul Hawken er umhverfisverndarsinni, kaupsýslumaður og rithöfundur. Frá 20 ára aldri hefur hann helgað sig sjálfbærni og því að breyta sambandinu á milli viðskipta og umhverfisins. Hann hefur meðal annars komið á legg og rekið vistfræðileg fyrirtæki, skrifað og kennt um áhrif viðskipta á lífkerfi, veitt ríkisstjórnum og fyrirtækjum ráðgjöf um efnahagsþróun, iðnaðarvistfræði og umhverfisstefnumál.

Hann hefur komið fram í fjölmörgum fjölmiðlum, þar á meðal Today Show, Larry King, Talk of the Nation, Charlie Rose, og um hann hefur verið fjallað í hundruðum greina til að mynda í Wall Street Journal, Newsweek, Washington Post, Business Week, Esquire, og US News and World Report. Skrif hans hafa birst í Harvard Business Review, Resurgence, New Statesman, Inc, Boston Globe, Christian Science Monitor, Mother Jones, Utne Reader, Orion, og í yfir hundrað öðrum ritum. (more…)


Blessað umrótið eftir Paul Hawken

Paul Hawken kemur til landsins í desember í boði Bjarkar Guðmundsdóttur til að skoða stöðu mála, gefa ráð og taka þátt í samræðu um atvinnulíf og sjálfbæra þróun. Paul Hawken hefur gefið út fjölda bóka sem flestar hafa verið metsölubækur í Bandaríkjunum. Hér er þýðing gerð fyrir Nattura.info á inngangi á nýjustu bók Hawken Blessed Unrest, eða Blessað umrótið, birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

UPPHAFIÐ

Undanfarin fimmtán ár hef ég haldið yfir eittþúsund erindi um umhverfið, og í hvert sinn hefur mér liðið eins og línudansara sem rembist við að halda fullkomnu jafnvægi. Fólk er vissulega forvitið að heyra um það sem er að gerast í heiminum, en enginn ræðumaður vill þó skilja áheyrendur sína eftir niðurdregna, sama hversu myrk og skelfileg spá þeirra vísinda, sem rannsaka (more…)


Paul Hawken : Fyrirlestrar og viðtöl

Paul Hawken er meðal eftisóttustu fyrirlesurum í heimi. Suma af lestrum hans má finna á netinu, t.a.m.:
http://www.youtube.com/watch?v=N1fiubmOqH4
http://www.youtube.com/watch?v=aiJNeln-1zs
http://www.youtube.com/watch?v=UGDXnoamGuI

Viðtöl við við Hawken:

Viðtal um m.a. stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum, um hlýnun jarðar og sjálfbæra þróun, tekið í janúar í fyrra:  http://ads.treehugger.com/thtv_files/audio/TH%20Radio/Podcasts/Paul%20Hawken.mp3

Upplýsandi viðtal John Stauber við Paul Hawken eftir útkomu Blessed unrest, birt í Counter Punch 21. júní 2007: http://www.counterpunch.org/stauber06212007.html

World Changing vef-viðtal við Paul Hawken og Bill McKibben vegna útgáfu metsölubóka þeirra, tekið í september 2007. Þar lýsa þeir nálgun sinni og hugsun: http://www.worldchanging.com/archives/008686.html

Viðtal Democracy Now! við Paul Hawken um Blessed unrest: http://www.democracynow.org/2007/5/23/author_paul_hawken_on_blessed_unrest

Paul Hawken talar um lífhermun í myndinni The Eleventh Hour: http://www.youtube.com/watch?v=TPVvDuyYQl4