Góðir gestir : Hawken & Picard

Paul Hawken: Fyrirlestrar og viðtöl | Paul Hawken : Rit, vefir og verkefni | John Picard | Tengt fræðilegt efni | Hawken & Picard á Íslandi

Í desember kom fræða- og athafnamaðurinn Paul Hawken til landsins á vegum Bjarkar Guðmundsdóttur og vefs Náttura.info til að skoða stöðu mála á Íslandi og gefa ráð um þær leiðir sem hægt er að fara í átt að sjálfbæru samfélagi, í efnahagslegu, umhverfislegu og félagslegu tilliti.

Með Paul Hawken kom til landsins maður að nafni John Picard sem er heimsþekktur umhverfisverndarsinni, arkítekt og athafnamaður. Hann tók þátt í að umbreyta umverfisstefnu Hvíta hússins og gera hana “græna” í tíð Bill Clintons. Síðan þá hefur Picard veitt mörgum fyrirtækjum og byggingarverkefnum ráð um stefnubreytingu og sjálfbæra þróun.