
Paul Hawken er umhverfisverndarsinni, kaupsýslumaður og rithöfundur. Frá 20 ára aldri hefur hann helgað sig sjálfbærni og því að breyta sambandinu á milli viðskipta og umhverfisins. Hann hefur meðal annars komið á legg og rekið vistfræðileg fyrirtæki, skrifað og kennt um áhrif viðskipta á lífkerfi, veitt ríkisstjórnum og fyrirtækjum ráðgjöf um efnahagsþróun, iðnaðarvistfræði og umhverfisstefnumál.
Hann hefur komið fram í fjölmörgum fjölmiðlum, þar á meðal Today Show, Larry King, Talk of the Nation, Charlie Rose, og um hann hefur verið fjallað í hundruðum greina til að mynda í Wall Street Journal, Newsweek, Washington Post, Business Week, Esquire, og US News and World Report. Skrif hans hafa birst í Harvard Business Review, Resurgence, New Statesman, Inc, Boston Globe, Christian Science Monitor, Mother Jones, Utne Reader, Orion, og í yfir hundrað öðrum ritum. (more…)

