
Mynd og lýsing á Bjarmasóley og vexti hennar á vef Lystigarðs Akureyrar: Vefur sig upp þræði/net, virkar oft hálfdauðaleg að vori, greinar þunnar og gráar árssprotar, hærðir framan af aldri. Blöðin gagnstæð, heil eða fjöðruð, smáblöðin aflöng-lensulaga, lanagydd, stundum 2-3 sepótt, órleglulega gróflega gistennt, tennur vísa beint út, um 5cm á lengd, gagnstæð, græn til grágræn og hærð í fyrstu en síðar hárlaus. Blómin á fyrraársgreinum, yfirleitt stök allt að 8 cm í þvermál, hanga stök á uppréttum hærðum löngum stilkum, silkihærð að utanverðu og á jöðrum, aldin með langan loðinn stíl og mynda (fjölmörg) saman fallega biðukollu , gulir haustlitir Heimkynni: NV Kína, Mongólía, M Asía
Kristín Þóra Kjartansdóttir sagnfræðingur í AkureyrarAkademíunni birti sinn reglulega pistil um garðrækt og matjurtamenningu í Bændablaðið núna síðast og leyfir okkur að endurbirta það hér til gamans, enda eru orð Kristínar í tíma töluð eins og venjulega og forsjáin meiri en kappið, enda er kappið ekki rétti kosturinn þegar á að byggja upp garð og gera tilraunir. Þá er fyrirhyggja, þolinmæði, auðmýkt og gleði betri kostir.
Kæri lesandi.
Vita Sackville-West skrifaði garðagreinar fyrir breska blaðið Observerí ein fjórtán ár. Vita var rithöfundur og garðræktandi en er ekki síður þekkt sem náin vinkona rithöfundarins Virginiu Woolf. Vita var ekki skólagengin í garðrækt heldur lærði hana af reynslunni. Hún og maður hennar, Harold Nicolson, gerðu garðinn við kastalann í Sissinghurst nálægt Canterbury á Bretlandi, þar sem þau bjuggu. Kastalinn var lengi og er, held ég, enn í opinberri eigu og garðurinn að því er ég best veit opinn almenningi og örugglega verður skoðunar. Ef einhver er á leiðinni til Bretlands…
Einlitir garðar
Eitt af því sem Vita skrifaði um voru einlitir garðar: „Það er mjög skemmtilegt að gera garð sem er í einum lit. Hann þarf ekki að vera aflokaður en ef svo er þá helst með þéttu limgerði, það fer best.
Ef slíkt er ekki til staðar þá er nóg að um sé að ræða hluta af garði eða garðhorn. Já, eða jafnvel bara rönd meðfram garðjaðrinum. Þegar staður fyrir einlitt garðstæði er valinn þá þarf að hafa heildarskipulag
(more…)