Í sambandi við heimagróðurhús, má minna á rannsóknir Róberts Dell sem getið hefur verið um hér á náttúra.info, á nýtingu umframjarðhita eða ónotaðs jarðhita til garðhitunar, en Dell hefur stundað þær í Cooper University og við Háskólasetrið í Hveragerði. Eins og áður hefur komið fram virðist ekkert benda til þess að ákvörðun um að leggja Háskólasetrið niður verður breytt, en þá má minna á að við Háskólasetrið starfar annar tveggja vatnavistfræðinga á Íslandi, Tryggvi Þórðarson, en latneska orðið yfir vatnavistfræði er limnology og það er orð dagsins á náttúra.info. Þá má einnig minna á vefsíðuna nedrias.is og tengla þaðan á útgefið efni Háskólasetursins, m.a. um mengunarflokkun vatna og aðrar merkilegar skýrslur um flokkun vatna.
Flokkar
Um vefinn
Radio nattura.info
Nattura.info er þrá eftir endurnýjun í umræðunni um auðlindir Íslands; þrá eftir brúm á milli sviða faglegrar umfjöllunar, frétta, fróðleiks og frjórra hugmynda um sjálfbæra þróun, sprota-vöxt og aðrar leiðir en stóriðju til virkjunar náttúruauðlinda og mannauðs
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- CoolPlanet 2009
- Draumalandið : Bíó
- Dreamland
- Eþikos
- Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
- Fornleifastofnun Íslands
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gagnlegar jarðfræðiglósur !
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hlutir: nýjasta tækni
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Hugmyndaráðuneytið
- Hveravefsíðan
- INCA- Iceland Nature Conservation Association
- Innovit
- Keilir
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Landvernd
- MATÍS
- Náttúra – the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrufræðistofa Kópavogs
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Rammaáætlun
- Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Seeds Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Stofnun Sæmundar Fróða
- Svartárkot
- Ted.com
- Tilraunavefur H.Í.
- Umhverfisstofnun
- UMÍS ehf. Environice
- VATNAVINIR
- Veðurstofa Íslands
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Orð dagsins: Limnology ! Flokkun VATNA og mengunarþátta !!!
Nýr upplýsingavefur: Norrænar orkurannsóknir og -lausnir

Skák upp á líf og dauða: Kyrra úr mynd Ingmars Bergmann Sjöunda innsiglið, sem fyrst var sýnd árið 1957, sá ljósi er leikinn af hinum stórkostlega leikara Max von Sydow
Nýr vefur fyrir norrænar lausnir á öllu varðandi orkutækni var opnaður 26.febrúar 2009; www.nordicenergysolutions.org
Norrænar orkurannsóknir : www.nordicenergy.net/
Nýr vefur vekur athygli á norrænum orkulausnum
Norræna ráðherranefndin telur að Norðurlöndin eigi að verða leiðandi í útflutningi á sjálfbærum orkulausnum. Nú verður opnaður nýr vefur sem vekur athygli á áherslu svæðisins á slíkar lausnir.
Árið 2007 urðu norrænu forsætisráðherrarnir sammála um sameiginlegt átak til að kynna norrænar sjálfbærar orkulausnir.
Gegn afneitun: Glóðvolgar og gleðjandi heimildir um heilsulindarmenningu á Íslandi
Nú er bara eins og stjörnustríð á Íslandi: dregnir upp gamlir útreikningar og nýir og þeir vegnir á vogaskálum: Hvað mun bjarga Íslandi? Hér eru nokkrar glóðvolgar og gleðjandi heimildir um möguleika stórtækrar uppbyggingar á heilsulindarmenningar, sérstaklega á sviði heilsutengdrar ferðaþjónustu. Á mbl.is í morgun er birt þessi líka fína skýrsla eftir Hrefnu Kristmannsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, en skýrslan var gefin út að vori 2008 og birtist á Náttúra.info síðsumars, en er hér endurbirt, ásamt nokkrum öðrum góðum, m.a. greinargerð um baðlækningar við afneitun á afleiðingum stóriðjustefnu og bréfi Hrefnu Kristmannsdóttur til vefs Náttúra.info um heilsutengda ferðaþjónustu: (meira …)
Heilsulandið Ísland: Vatnavinir á Vestfjörðum í dag !
Vatnavinir í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða boða til
vinnufundar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl. 12.30 – 15.30, mánudaginn 26.
janúar 2009 til að kynna verkefnið Heilsulandið Ísland.
DAGSKRÁ
12.30 – 13.00
Sigurður Þorsteinsson, iðnhönnuður
– Kynnir verkefnið Heilsulandið Ísland á landsvísu
13.00 – 13.20
Olga Guðrún Sigfúsdóttir og Sigrún Birgisdóttir, arkitektar
– Kynna verkefnið Heilsulandið Ísland á Vestfjörðum
13.20 – 13.40
Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (meira …)
Fræðasetur NLFÍ í Hveragerði
Við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði var árið 1995 sett á stofn fræðasetur í minningu Jónasar Kristjánssonar læknis.
Nýlega var innréttuð íbúð til afnota fyrir fræðimenn úr heilbrigðisstétt sem er boðin afnot af íbúðinni til þess að stunda rannsóknir sínar. Æskilegt er að þessar rannsóknir tengist meðferðarstefnu Heilsustofnunar NLFÍ. Í því samhengi er heilsuvandi einstaklinganna skoðaður með það í huga að líta þurfi á andlegt, líkamlegt og félagslegt ástand í samhengi. Meðferðarstefnan felur m.a. í sér þá viðleitni að koma á og viðhalda eðlilegum og heilbrigðum tengslum á milli einstaklingsins og umhverfis hans og efla varnir líkama og sálar gegn hverskonar vanheilsu og sjúkdómum. (meira …)
Skráning á íslenskum baðlaugum
Í þessari skýrslu er fjallað um niðurstöður rannsóknar á viðhorfum heimamanna til
nýtingar á náttúrulegum baðlaugum sem þeir hafa yfirráð yfir. Gagna var aflað
sumarið 2004 og unnið úr þeim í kjölfarið. Verkefnið er hluti af stærri rannsókn sem 
miðaði að því að fá heildaryfirlit yfir baðlaugar á Íslandi, bæði almennar upplýsingar
um laugarnar sjálfar auk upplýsinga um gerð og efnainnihald vatnsins.
Að verkefninu í heild komu Háskólasetrið í Hveragerði, Ferðamálasetur Íslands,
Ferðamálaráð Íslands og Prokaria ehf. Þá var verkefnið styrkt af Byggðastofnun og
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Verkefnisstjóri heildarrannsóknarinnar er Tryggvi Þórðarson hjá Háskólasetrinu
í Hveragerði. Viðhorfskönnunin var megin viðfangsefni Ferðamálaseturs Íslands í
þessu samstarfsverkefni en yfir þeim hluta rannsóknarinnar er Bergþóra Aradóttir
starfsmaður Ferðamálasetursins. Sigurvin Bárður Sigurjónsson var svo fenginn sem
aðstoðarmaður til verkefnisins og vann hann einkum að viðhorfsrannsókninni, bæði
gagnaöflun og úrvinnslu. Samhliða henni sá hann um gagnaöflun fyrir
heildarrannsóknina.
Vonast er til að niðurstöðurnar hér varpi ljósi á sýn heimamanna til nýtingar á
náttúrulegum baðlaugum í tengslum við þróun ferðamennsku í sínu héraði.
Wellness country Iceland
WELLNESS COUNTRY ICELAND
by Vatnavinir ( Waterfriends )
Water is an artery of life
Wellness country Iceland is a concept to promote health related tourism in Iceland. The abundance of water and geothermal energy is a unique resource of Iceland. The network of water arteries in nature offer an inspiration to join efforts in a network supporting interrelated initiatives for future economic regeneration.
Forming of interdependent alliences of interest will support innovations in water related treatment centres locally and nationally. The network of treatment centres and communities will maintain, develop and proliferate their own identities in mutually enriching ways. The centres can be found in semi-urban, rural or natural settings, by the shoreline, in the countryside or the mountains.
By treading lightly the human footprint is minimized. The unique natural setting of Iceland demands unique responses, with respect for nature and local context guiding any interventions. Thus every centre will be unique in nature and experience providing multiple choices of journeys between differenct wellbeing centers across Iceland.
(meira …)
Skýrslur um baðlækningar og jarðhitanýtingu
- Skýrsla Dr. Ólafs Gríms Björnssonar um áhrif baðlækninga á heilsuna, sjá skráarviðhengi: www.ferdamalastofa.is/ ResearchLoader.asp?cat_id=564& Page=Research&Tab=2&ID=3&rID= 74
- Skýrsla um jarðhitanýtingu og baðlækningar: www.samorka.is/Apps/ WebObjects/Samorka.woa/1/ swdocument/1000510/ Baðlækningar,+Hrefna+ Kristmannsdóttir.pdf ;
- Skýrsla um heilsutengda ferðaþjónustu á Húsavík, unnin af nemendum í Viðskiptaháskólanum Bifröst: www.heilthing.is/Files/Skra_ 0009044.pdf
- Skýrsla Hrefnu Kristmannsdóttur: Jarðhitaauðlindir, tækifæri til atvinnusköpunar á Norðausturlandi með heilsutengdri ferðaþjónustu útgefinni af Ferðamálasetri Íslands og Háskólanum á Akureyri
- www.fmsi.is/Skyrslur/jardhiti% 20vefútgáfa.pdf
Heilsulandið Ísland, skýrsla
Skýrsla þessi er unnin er fyrir samgönguráðherra af nefnd sem skipuð var í lok ársins 1999 og
starfaði fram á vorið 2000. Tilgangur nefndarinnar var að greina þær (stjórnvalds)aðgerðir sem
mættu verða til að stuðla að frekari framgangi heilsutengdrar ferðaþjónustu á Íslandi, bæði fyrir
innlenda og erlenda ferðamenn.
Ferðaþjónusta á Íslandi hefur vaxið verulega á síðustu árum og vænta má mikils af þessari
atvinnugrein á komandi árum. Heilsutengd ferðaþjónusta er nú þegar nokkur í landinu og getur
vaxið verulega ef vel er á haldið. (meira …)













