Verum vakandi um náttúru Íslands

Skaftafell

Skaftafell

Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.

Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.

(more…)


Á morgun: Stund jarðarinnar

images-1Náttúra.info tekur undir áskorun Náttúruverndarsamtaka Íslands um þátttöku í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. I dag kynna Natturuverndarsamtökin áminningar-athöfn sem nefnist Stund Jarðar, sem er lýst hér að neðan. Þá má líka minna á aðra stund, þá elleftu og The Eleventh hour, og brot úr viðtali við Paul Hawken úr þeirri mynd sem er raunsæi og bjartsýni Paul Hawken sem kom hingað til lands til að benda Íslendingum á möguleika í stöðunni, græna möguleika og breytta hugsun. Hann segir að hlutskipti okkar sé einstakt, því núna verðum við og höfum tækifæri til að endurhugsa alla okkar afstöðu til heimsins, til að nota þekkingu okkar og tæknikunnáttu á nýjan hátt og hlusta á heiminn, herma eftir lífinu sjálfu og fyllast von um að við getum stuðlað að sjálfbærri þróun lífs okkar á jörðunni.

Stund Jarðar – vonast til að einn milljarður jarðarbúa taki þátt í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum

Vonast er til að um milljarður jarðarbúa sem búa í stærstu borgum heims slökkvi ljósin heima hjá sér í klukkustund nk. laugardag, kl. 20:30 að staðartíma. Þetta tengist  Earth Hour – Stund Jarðar. Íbúar heims eru hvattir til aðgerða gegn loftlagsbreytingum. (more…)


Eco Procura: ráðstefna um vistvæn innkaup 25-27. mars

i88-l-green-shopping-1Opnað hefur verið fyrir skráningu á sjöundu alþjóðlegu EcoProcura ráðstefnuna um vistvæn innkaup en hún verður haldin í Reykjavík 25.–27. mars 2009. „Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir skoðanaskipti um vistvæn innkaup, auk þess sem athyglinni verður beint að hlut vistvænna innkaupa í baráttunni gegn hlýnun jarðar, “ segir Eygerður Margrétardóttir framkvæmdastýra Staðardagskrár 21 hjá Reykjavíkurborg. Sjá nánar á vef Náttúran.is


Róttækt endurmat á því hvað ógnar okkur. Kalda stríðið er búið…

ástandið verður ekki verst fyrir vesalings birnina þegar allt fer að bráðna á enn meiri hraða en nú

ástandið verður ekki verst fyrir vesalings birnina þegar allt fer að bráðna á enn meiri hraða en nú

Árni Finnsson, náttúruverndarforsprakki skrifar um Áhættumatsskýrsluna og segir að það sé morgunljóst að loftslagsbreytingar verði efst á blaði yfir ógnir sem steðja að okkur, og eins sé það ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn neyðist til að endurmeta afdankaða afstöðu sína til umhverfismála.

Og vonandi að það róttæka endurmat eigi sér stað á fleiri vígstöðvum. Við þurfum aldeilis að hressa upp á umhverfisvitund okkar STRAX og forgangsraða smá betur: ath. að kalda stríðið er búið og nú er önnur barátta í gangi, hryðjuverkalógíkin nær skammt þegar allt er að bráðna undan okkur. Sýn um sjálfbæra þróun er ekki bara eitthvað spari-hjal, það er spurning um líf og dauða.

Sjá grein Árna


Volunteers in Iceland: in tents under the glacier or in 101 Reykjavik


photo: from the rescue team of reykjavik: www.bjorgunarsveit.is

Volunteers’ work is not very common in Iceland, but now times are changing in all regards. In Timesonline they list a volunteer work in Iceland on top ten for environmental work and VAKTIN, an Icelandic NGO asks for local volonteers:

From Timesonline: If olive harvest from the British Trust for Conservation Volunteers sounds like an excuse for a week of subsidised gluttony, its Iceland adventure is more ascetic. Living, working and sleeping (in your own tent) in the heart of the Skaftafell Vatnajokull National Park, you’ll spend a fortnight building and repairing hiking trails alongside volunteers from the Icelandic environment ministry.
From Charlotte Ólof Jónsdóttir Ferrier: VAKTIN is an Icelandic, Non-Governmental Organisation – working at grassroots level to enhance the look & feel of Reykjavík and surrounding area. Using community volunteers, as well as manpower from WorldWide Friends and the Green Army we aim to enhance and maintain the appearance of our immediate environment. In coming months, we aim to focus on the cleanliness of Reykjavík, and by the summer we look forward to spreading the volunteer initiative all over the country. We will initially focus on 101 Reykjavík, improving the appearance of the buildings and streets. During the summer we will work on a broader scale, planting trees, preparing fields for planting, cleaning the shoreline and endless other tasks! We hope to encourage people not take what we have for granted, to live more sustainably and realise the importance of living within the limits of the natural world, so we can preserve the future of our country, and the planet for future generations.


Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza

Í dag klukkan þrjú í Háskólabíói munu fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök sameinast undir kjörorðunum: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA.

Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur. Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, ávarpar fundinn. Fjölbreytt tónlistardagskrá verður á fundinum: Trio Nordica, Barnakór Kársnes, Hulda Björg Garðarsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Lay Low og fleira.

Eftirtaldir hafa nú þegar staðfest aðild að fundinum:
ASÍ, BSRB, Félagið Ísland-Palestína, Frjálslyndi flokkurinn, KÍ, Landssamband sjálfstæðiskvenna, SFR, Samiðn, Samfylkingin, Starfsgreinasambandið og Vinstrihreyfingin – grænt framboð


Framtíðin er komin… og hún er ábyrg og græn

1517900520_01c98e1126Í ljósi frétta kvöldsins um ásókn sumra Íslendinga í fleiri álver, þá er hollt að vita hvað er að gerast á sama tíma úti í heiminum. Hér er frétt frá mbl.is um félagasamtök rafiðnaðarneytanda í Bretlandi þar sem fram kemur að neytendur vilji frekar eignast hlutdeild í grænni tækniþróun og að þeir vilji fá tryggingu fyrir því að það sem þeir kaupa sé ekki afurð mengandi og mannskemmandi ferlis.
Það hversu umhverfisvæn, eða „græn“, raftæki eru mun hafa mikil áhrif á það hvort kaupendur kaupi það eður ei. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var birt fyrir raftækjasýninguna CES (Consumer Electronic Show), sem hefst með formlegum hætti á morgun í Las Vegas í Bandaríkjunum. (more…)