Flott hvatningarmynd í tilefni af Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsmál. Sjá myndband neðst á þessari síðu:
http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=4879&Itemid=5001
Nattura.info is a desire for a renewal in discussion and debate on Icelandic resources; a desire for bridges between different spheres of knowledge, news, composition and productive ideas on self-sustainable evolution, on cluster of start-up companies and other ways than heavy industry
Flott hvatningarmynd í tilefni af Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsmál. Sjá myndband neðst á þessari síðu:
http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=4879&Itemid=5001
Umhvefisdagurinn er í dag og er hann tileinkaður grænum störfum og atvinnuuppbyggingu. Málþing verður haldið í Iðnó í dag kl. 13.00 – 15.00 og verða þar 7 fyrirtæki sem ræða m.a um framtíðarsýn sína. Eftir þingið verða svo pallborðsumræður.
Kuðungurinn, umhverfisviðurkenning umhverfisráðherra verða afhent. Spennandi verður að sjá hverjir hafa staðið sig vel í þágu umhverfismála í ár. Einnig verða afhvent verðlaun um Varðliða umhverfisins. En það eru verkefnasamskipti sem grunnskólabörn 5-10 bekkjar taka þátt í.
(tekið af vef umhverfisráðuneytisins)
Græn störf – málþing um vistvæna nýsköpun
Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um Græn störf og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.
Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.

Skaftafell
Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.
Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.

Obama og Ólafur Ragnar á ráðstefnu um loftslagsmál í Alaska í fyrra. Obama væntanlega með forláta bækling með myndum af landinu. Mynd frá prince.org
Obama sagði á fundi í Strassburg um daginn að við hljótum öll að vita að tíminn er að renna út, hlýnun jarðar er í hraðri þróun og að við verðum að bregðast við. Hann hvetur iðnþjóðirnar til að hugsa stórt og vera ábyrgar í umhverfismálum og að hugsa um nýsköpun í orkumálum og atvinnusköpun í samhengi jarðarinnar og umhverfisins og leita að betri og grænni nýtingu endurnýjanlegrar orku og að grænum fjárfestingartækifærum. Hann sýndi því áhuga að koma til Íslands , sagðist alltaf hafa langað til að koma þangað, og að hann vildi rannsaka möguleikana sem við höfum til nýsköpunar í jarðvarmavirkjunum og lofstslagslausnum. Þvílíkt tækifæri sem slík heimsókn væri til kynningar á nýrri grænni tækni og nýrri skapandi hugsun! Hvað væri gaman ef við gætum boðið hann velkominn og allan heiminn til að skoða okkar náttúruauðlindir og mannauð í formi hugmynda og grænna framkvæmda, svo heimurinn mætti læra af öðru en mistökum okkar! Og hvað væri líka gaman ef gætum sýnt gott fordæmi á Kaupmannahafnarfundinum og hætt að reyna að væla út órættmætar og óraunsæjar undanþágur. Ef við gætum bara tekið risastökk núna og sett allt á fullt í átt að sjálfbærri og vistvænni framtíð!
Hér að neðan eru tvær klausur um Obama og Ísland, og pistill af Vísindavefnumum jarðvarma: Hvað er jarðhiti?
Það er ljóst að leit okkar að farsælli leið verður að eiga sér stað í öflugri samræðu á milli vísindamanna, þeirra sem hafa reynslu af landinu og virkjun orkuauðlinda þess, hinna sem eiga sér drauma, fjárfesta, fræðimanna, stjórnmálamanna etc. etc. Við verðum að endurskoða svo margt og slík endurskoðun þarfnast þátttöku allra!
Obama: Atvinnusköpun má ekki vera á kostnað umhverfisins (more…)

Táknmynd millilandaferjunnar Smyrils eða Norrænu, sem fer frá Seyðisfirði til Færeyja og áfram út í norðrið
Norræn umhverfisáætlun
Framkvæmdaáætlun 2009-2012
Loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, sjálfbær neysla og framleiðsla, eru stærstu drættirnir í stefnumótun norrænu ráðherranefndarinnar í umhverfismálum til þriggja ára. Embættismannanefnd ber ábyrgð á framkvæmdinni, en norrænu umhverfisráðherrarnir á pólitískum þáttum samstarfsins. Jafnframt hefur verið gefin út norræn áætlun um sjálfbæra þróun.
Fréttatilkynning:
Norræna ráðherranefndin hefur gefið út framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2009-2012. Í áætluninni er stefnumótun í norrænu umhverfisstarfi tíunduð og m.a. fjallað um loftslagsmál, hafið, líffræðilega fjölbreytni og sjálfbæra neyslu og framleiðslu.
Norrænu umhverfisráðherrarnir bera meginábyrgð á pólitískum þáttum umhverfissamstarfsins en embættismannanefnd skipuð af ráðherrunum ber ábyrgð á framkvæmd umhverfisáætlunarinnar.

Mary Robinsson, fyrrum forseti Írlands og Björk Guðmundsdóttir á ráðstefnu Road to Copenhagan þar sem undanþágur voru til umræðu í undirbúningi Kaupmannahafnarfundarins. Björk lýsti því yfir að Íslandi væri ekki sómi að því að sækja um frekari eða áframhaldandi undanþágur þar sem stóriðjan er undanskilin í útreikningum á mengun loftslagsins
Árni Finnsson forsvarsmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sendir okkur bréf um undanþágur Íslands í loftslagsmálum. Í ljósi þess að verið var að afgreiða málið í nefnd á Alþingi þar sem bæði Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn ályktuðu um mikilvægi þess að Íslendingar fengu áfram sínar undanþágur, sem í sjálfu sér er úrelt krafa, er bréf Árna mjög aktúelt. Hann rekur óheilindi og falsanir, ónákvæm vinnubrögð þar sem illa er vísað til heimilda og fyrri skuldbindinga.
Bréf frá Árna:
Siv Friðleifsdóttir er fyrsti flutningsmaður að þingsályktunartillögu sem ber titilinn „… hagsmuni Íslands í loftslagsmálum.” Ekki er ljóst hvað tillagan felur í sér en samkvæmt flutningsmönnum er það markmiðið að Ísland fái frekari undanþágur fyrir útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju í samningaviðræðum um framhald Kyoto-bókunarinnar sem fram fara í Kaupmannahöfn í desember.
Samtals nemur aukning í losunarheimildum Íslands nær 60% á tímabilinu 2008 – 2012 miðað við 1990. Næst þar á eftir kemur Ástralía með 8% aukningu. Nú skal sækja mengunarheimildir fyrir stóriðju langt umfram þær sem Ísland aflaði sér þegar endanlega var gengið frá Kyoto-bókuninni í Marakech haustið 2001. (more…)
Nú fer ríkið á undan með góðu fordæmi. Ábyrgð einstaklinga og ábyrgð Íslands alls fer saman. Á vef Umhverfisráðuneytisins er sagt frá undirritun Kolbrúnar Halldórsdóttur, umhverfisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, sem fjármálaráðherra um vistvæn innkaup ríkisins og áherslur á umhverfissjónarmið í öllum innkaupum, sem gæti orðið mjög fordæmisgefandi, dregið úr kostnaði og hvatt til nýsköpunar:
Ríkisstjórnin samþykkir stefnu um vistvæn innkaup
Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk fyrir meira en 100 milljarða króna á ári sem er um fjórðungur af útgjöldum ríkisins. Með því að hafa umhverfissjónarmið til hliðsjónar við þessi innkaup, getur ríkið komið miklu til leiðar í umhverfismálum. Með skýrum kröfum um umhverfissjónarmið stuðlar ríkið að því að markaðurinn bjóði fram nýja og betri valkosti til að mæta kröfum um minna álag á umhverfið. Þar sem vitund manna um að vernda þurfi umhverfið eykst ár frá ári um heim allan, getur þessi stefna leitt af sér bættari samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja á alþjóðavettvangi, bregðist markaðurinn við kröfum ríkisins um umhverfisvænni valkosti. Hagsmunir ríkisins og einkamarkaðarins, og þar með samfélagsins alls, fara því tvímælalaust saman þegar kemur að því að taka aukið tillit til umhverfisins við opinber innkaup. (more…)

Álverksmiðjan á Reyðarfirði. Á heimasíðu Alcoa Fjarðaráls, www.alcoa.com/iceland/ic/home.asp er sagt að verksmiðjan sé sú fullkomnasta í heimi, m.a. hvað varðar mengunarvarnir
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir skrifar grein á vef Smugunnar um falskar forsendur yfirlýsinga og almannatengslaplagga Alcoa og líkir þeim við sértrúarsöfnuð. Greinin er þarft innlegg í umræðuna um Loftslagsstefnu Alcoa þar sem sjálfbærni og annað umhverfislega jákvætt orðalag er óhikað notað í samhengi við sérstöðu Íslands, auk þess sem ábyrgð fyrirtækisins gagnvart Kyoto-bókuninni er ítrekuð, án þess að minnast á augljósa og of mikla mengun álframleiðslu á Íslandi. Ingibjörg vísar til þess í titli greinar sinnar að Landvernd styðji þessa stefnuyfirlýsingu. Er það rétt? Og þá hvers vegna? Það er spurning dagsins á Náttúra.info.
Sértrúarsöfnuður Alcoa: Trúboð Áliðnaðar innan Landverndar
Þann 27.mars s.l. barst mér sem stjórnarmanni í Landvernd bréf frá Alcoa á Íslandi. Með bréfinu fylgdi upplýsingablað um Loftslagsstefnu Alcoa og blað með svokölluðum staðreyndum um Alcoa Fjarðarál í Reyðarfirði. Um dæmigerð almannatengslaplögg er að ræða og er tilgangur þeirra að fá viðtakandann til þess að trúa því sem í plöggunum stendur. Hér er semsagt um trúboð að ræða í anda mormóna og Votta Jehóva, bara mun útsmognara. (more…)
Náttúra.info tekur undir áskorun Náttúruverndarsamtaka Íslands um þátttöku í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. I dag kynna Natturuverndarsamtökin áminningar-athöfn sem nefnist Stund Jarðar, sem er lýst hér að neðan. Þá má líka minna á aðra stund, þá elleftu og The Eleventh hour, og brot úr viðtali við Paul Hawken úr þeirri mynd sem er raunsæi og bjartsýni Paul Hawken sem kom hingað til lands til að benda Íslendingum á möguleika í stöðunni, græna möguleika og breytta hugsun. Hann segir að hlutskipti okkar sé einstakt, því núna verðum við og höfum tækifæri til að endurhugsa alla okkar afstöðu til heimsins, til að nota þekkingu okkar og tæknikunnáttu á nýjan hátt og hlusta á heiminn, herma eftir lífinu sjálfu og fyllast von um að við getum stuðlað að sjálfbærri þróun lífs okkar á jörðunni.
Stund Jarðar – vonast til að einn milljarður jarðarbúa taki þátt í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum
Vonast er til að um milljarður jarðarbúa sem búa í stærstu borgum heims slökkvi ljósin heima hjá sér í klukkustund nk. laugardag, kl. 20:30 að staðartíma. Þetta tengist Earth Hour – Stund Jarðar. Íbúar heims eru hvattir til aðgerða gegn loftlagsbreytingum. (more…)
Góðar fréttir: Nýr og öflugur vefur Upplýsingadeildar Evrópu í Un í loftslagsmálum (UNRIC) er nú kominn í loftið og heitir á höfuðið á baráttunni gegn hlýnun jarðar: Cool Planet 2009, sjá vefinn www.coolplanet2009.org. Hér er bréf frá okkar manni á staðnum, Árna Snævarr að þessu gleðilega tilefni:
CoolPlanet2009.orgthe new website of the UN’s European public information campaign on climate change (UNRIC) is live!
CoolPlanet, was formally launched at a meeting of five Nordic prime ministers on 26 February 2009 at the Nordic Globalization Forum at the Blue Lagoon in Iceland.
Help the UN-lead negotiations on the new Climate Treaty to be finalized in December 2009 in Copenhagen by getting involved on our inter-active website.
Tell us about your projects, innovations, events and projects and see what others in Europe are doing.
And please, could you link to our website (we will publish your link too!) www.CoolPlanet2009.org and ask everyone to get involved?
Best regards from UNRIC, Árni Snævarr.
Umsögn um þingsályktunartillög um undanþágur fyrir Ísland frá alþjóðlegum loftslagssamningum
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent umhverfisnefnd Alþingis umsögn um þingsályktuartillögu Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri um frekari undanþágur fyrir Ísland frá alþjóðlegum samningum um samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda, 2013 – 2020.
(more…)