Wednesday, green day: Visit of energy companies and Movie moment at the Nordic house

Energy windmills. Could be a solution for the Westfjords of Iceland where there is enough of wind

Energy windmills. Could be a solution for the Westfjords of Iceland where there is enough of wind

The Green days of Gaia in the University of Iceland continue throughout the week. Tomorrow the program is exciting, with a confrontation with the biggest energy companies of Iceland:

11:00 – 14:00
Energy Companies, Háskólatorg

Various energy companies will be visiting Háskolatorg: Landsvirkun, Nýorka, Geysir Green Energy and Metan.

Energy and human wellbeing are inextricably linked. Energy affects all aspects of development, the social, the economic, and the environmental, including livelihoods, access to water, agricultural productivity, health, population levels, education, and gender-related issues.

(more…)


Opið evrópskt bréf: Við höfum 300 daga til að verða ábyrg og græn í afstöðu

Verum með ! Orð úr þjóðsöng Íslendinga meitlað í stein, hluti af verki Rúríar sem var sett upp á Eyjabökkum til að mótmæla uppistöðulóni þar. Mynd: Oddný Eir.

Verum með ! Orð úr þjóðsöng Íslendinga meitlað í stein, hluti af verki Rúríar sem var sett upp á Eyjabökkum til að mótmæla uppistöðulóni þar. Mynd: Oddný Eir.

Þær þjóðir sem taka loftslagsógnina alvarlega eru með mjög markvissum hætti farnar að undirbúa Kaupmannahafnarfundinn svokallaða, en þar mun Kyoto-sáttmálinn vera endurskoðaður og endurnýjaður og mjög mikið í húfi að fundurinn verði ekki bara að karpi og prúttfundi heldur alvöru og ábyrgur stefnumótunarfundur til framtíðar. Víða hittast samtök á minni fundum og ráðstefnum til að undirbúa stóra fundinn í lok ársins, og til að mynda þrýsting á stjórnvöld að taka fundinn alvarlega og sjá loftslagsvandann í stærra samhengi réttlætis heimsins, þar sem þriðji heimurinn þjáist mest vegna óábyrgrar hegðunar Vestrænna ríkja í loftslagsmálum. Náttúruverndarsamtök Íslands eru meðal þeirra evrópsku umhverfisverndarsamtaka sem í opnu bréfi til ríkisstjórna heims skora á leiðtoga að missa ekki sjónar af ógninni sem starfa af loftslagsbreytingum og að nota vel þá 300 daga sem við höfum til að undirbúa ábyrga afstöðu okkar: An open letter to EU Heads of State and Government about the climate crisis.



Fjármálakreppan, Færeyjar, nýsköpun og Bláa lónið

Um bláa lit lónsins er fjallað á Vísindavef H.Í.: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4919

Um bláa lit lónsins er fjallað á Vísindavef H.Í.: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4919

Er kreppa tími biðar, hægðar og iðrunar eða öllu heldur eða jafnframt tími áræðni og endurnýjaðrar ábyrgðar? Það er mikið tilhlökkunarefni að sjá í Bláa lóninu -sem í sjálfu sér er sigursælt viðskipta- og heilsudæmi búið til úr umhverfisslysi, forsvarsmenn litlu ríkjanna og stærri norðurlandaríkja ræða um mikilvægi nýsköpunar og ábyrgðar í loftslagsmálum.  (more…)


Gjaldþrota stóriðjustefna

Hjörleifur Guttormsson náttúruverndarfrumkvöðull og sjálfbærnihugsuður skrifar stórgóða grein í Morgunblaðið í dag um “Gjaldþrota stóriðjustefnu” og afturhvarf til nýlendustefnu. Hann bendir á grein Indriða H. Þorlákssonar, fyrrverandi Ríkisskattstjóra um álver sem fjárhagslega vondan kost og segir að þau orð ættu að vera skyldulesning -sjá grein Indriða, sem var birt á náttura.info í síðustu viku. Og víst er að skrif Hjörleifs sjálfs í gegnum tíðina, studd rannsóknum og þekkingu, ættu að vera skyldulesning í öllum skólum landsins.

Ölfus - kd (http://6000k.net)

Ölfus - kd (http://6000k.net)

(more…)


Bergur í Landvernd um Árósasamninginn

Bergur er gleðst yfir Árósarsamningnum

Bergur gleðst yfir Árósarsamningnum

Bergur Sigurðsson hjá Landvernd skrifar um Árósarsamninginn og þrjár stoðir hans í grein á Smugunni, Árósarsamningurinn fullgiltur. Í batnandi landi er best að lifa, eftir Berg Sigurðsson, en í greininni er hann með tengil yfir á skýrslu unna af umhverfisráðuneytinu um það sem þarf að gera í kjölfar samþykktar.Þessi grein Bergs er mjög góður leiðarvísir um umræðuna um Árósarsamninginn og góð áminning um mikilvægi hans og sögu samþykktar og ekki-samþykktar hans.

(more…)


Loksins, loksins… einhver heildarsýn í umhverfis- og efnahagsmálaumræðu heimspólitíkurinnar?

Mynd af heild. Sýning á verkum Kjarvals sem lengi hafa kúrt í geymslu Listasafns Reykjavíkur

Mynd af heild. Sýning á verkum Kjarvals sem lengi hafa kúrt í geymslu Listasafns Reykjavíkur

Náttúruverndarsamtök Íslands standa vaktina og benda á nýja tíma í Bandaríkjunum og um heim allan, þar sem saman fara efnahagsaðgerðir og loftslagsráðstafanir. Á tímamótum íslenskra stjórnvalda má gera sér vonir, í fyrsta sinn, um að Íslendingar verði í fararbroddi þessara umbreytingatíma í umhverfismálum, en ekki dragbítar.

Frá Náttúruverndarsamtökunum: Efnahagsaðgerðir stjórnvalda víða um heim bera með sér að ríkisstjórnir vilja einnig ná árangri í umhverfismálum. Þetta hefur BBC eftir Yvo de Boer, yfirmanni Skrifstofu Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Máli sínu til stuðnings bendir hann á áform um að auka fjárfestingar í endurnýjanlegri orku og almenningssamgöngum. Sjá fréttaskýringu BBC
(more…)


Tímaskekkja og tálsýnir þurfandi þjóðar

471986aIðnaðarráðherra opnaði í dag nýjan vef um útboð til olíuleitar á Drekasvæðinu við Ísland. Í hádegisfréttum var viðtal við Hjörleif Guttormsson, náttúrufræðing og umhverfisverndarforsprakka, sem einnig birti grein um efnið í Morgunblaðinu í gær. Af orðum Hjörleifs Guttormssonar má skilja að olíuleitin er algjör tímaskekkja:

“Því ber að setja stórt spurningarmerki við þau áform sem iðnaðarráðherra og Samfylkingin nú boða um olíuvinnslu á Drekasvæðinu ef kolvetnaleit ber þar árangur. Framtíðarhagsmunir okkar sem þjóðar felast í verndun norðurslóða fyrir mengun og að hlýnun fari þar ekki úr böndunum. Því ætti Ísland að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að öll áform um olíu- og gasvinnslu í Norður-Íshafi verði stöðvuð og alþjóðlegt samkomulag verði gert um verndun þessa svæðis í líkingu við það sem í gildi er umhverfis suðurheimskautið.”

Á vef Náttúruverndarsamtaka Íslands er þessi umræða um málið og tenglar á grein Hjörleifs, orð Össurar og loftslagsloforð ríkisstjórnar Íslands: (more…)


Obama og íslensk stjórnvöld…

Fdoug-obamaréttatilkynning um áhugaverðan fund Grænu handar Samfylkingarinnar um umhverfismál, hitamál framtíðarinnar:

Græna netið heldur fund um Barack Obama og umhverfismálin laugardaginn 10. janúar á kaffihúsinu Glætunni, Laugavegi 19 (gegnt Máli og menningu). Málshefjendur eru Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Fundurinn hefst kl. 11 árdegis. (more…)


Ísland fellur úr þriðja sæti í það þrettánda

Á 60 ára afmælisdegi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, 10. des, alþjóðlegum degi Mannréttinda, þá sendir Árni Finnsson okkur skýrslu frá loftslagsþingi Sameinuðu Þjóðanna í Poznan í Póllandi. Um er að ræða árlega skýrslu Germanwatch þar sem Ísland kemur ekki vel út í samanburði við aðrar iðnvæddar þjóðir heims, fellur úr þriðja sæti niður í það þrettánda! Árni skýrir út niðurstöður skýrslunnar og spyr sig um stefnumótun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum, hann vísar í greinargerð Náttúruvendarsamtaka Íslands þar að lútandi. Á meðan iðnríkin axla ekki ábyrgð sína í loftslagmálum, þá viðhelst og eykst óréttlætið gagnvart þriðja heiminum, því mengunin bitnar helst á vanþróuðum ríkjum, og þess vegna er vel við hæfi að ræða um loftslagsmál á degi alþjóðlegra mannréttinda.

(more…)


Stefna Íslands í samningum um loftslagsbreytingar

Í sérlega aðgengilegri, áhugaverðri og gagnrýnni grein eftir Auði H. Ingólfsdóttur sem kom út í bókinni nú í haust, er dregin upp mynd af Íslandi í alþjóðaviðræðum um loftslagsmál. Sú mynd kallar á nýja stefnumótun og miklu opnari umræðu um loftslagsmál en hefur verið. Greinin er birt með góðfúslegu leyfi höfundar og útgefenda. (more…)


Að Ísland verði leiðarljós heimsins í sjálfbærni

Road to Copenhagen er vettvangur til að þrýsta á um skýra stefnumótun og sýn fyrir næsta stóra samningafund alþjóðasamfélagsins í Kaupmannahöfn 2009, þar sem gerður verður sá bindandi samningur um umhverfismál sem tekur við af Kyoto sáttmálanum 2012. Næsti stóri undirbúningsfundurinn fyrir Kaupamannahafnarfundinn er í Poznan í Póllandi í lok ársins.

Ráðstefna og vinnubúðir Road to Copenhagen í Brussel 6. Nóvember s.l. miðaði að því að skerpa sýnina og meitla útgangspunktana fyrir samningaviðræðurnar sem skipta sköpum fyrir afdrif þessa heims. Björk Guðmundsdóttir og Nattura.info voru gestir ráðstefnunnar og blaðamannafundurinn þar sem Björk flutti ræðu var hluti af ráðstefnunni. Blaðamannafundurinn var haldinn af Unric, upplýsingamiðstöð Sameinuðu þjóðanna í Vestur Evrópu, sjá http://www.unric.org/index.php?option=com_content&task=view&id=20358&Itemid=42

“Það er athyglisvert að fregnir af þessum stórmerkilega viðburði skuli eingöngu vera skrumskæling af einu svari Bjarkar við ágengri spurningu blaðamanns, þar sem hún var spurð um afstöðu hennar til Evrópusambandsins, hvort Íslendingar ættu að gerast aðilar. Hún sagðist ekki vera rétta manneskjan til að svara því, það væri hins vegar fjöldinn allur af sérfræðingum á Íslandi að rannsaka þann möguleika einmitt núna.”

(more…)