
Verum með ! Orð úr þjóðsöng Íslendinga meitlað í stein, hluti af verki Rúríar sem var sett upp á Eyjabökkum til að mótmæla uppistöðulóni þar. Mynd: Oddný Eir.
Þær þjóðir sem taka loftslagsógnina alvarlega eru með mjög markvissum hætti farnar að undirbúa Kaupmannahafnarfundinn svokallaða, en þar mun Kyoto-sáttmálinn vera endurskoðaður og endurnýjaður og mjög mikið í húfi að fundurinn verði ekki bara að karpi og prúttfundi heldur alvöru og ábyrgur stefnumótunarfundur til framtíðar. Víða hittast samtök á minni fundum og ráðstefnum til að undirbúa stóra fundinn í lok ársins, og til að mynda þrýsting á stjórnvöld að taka fundinn alvarlega og sjá loftslagsvandann í stærra samhengi réttlætis heimsins, þar sem þriðji heimurinn þjáist mest vegna óábyrgrar hegðunar Vestrænna ríkja í loftslagsmálum. Náttúruverndarsamtök Íslands eru meðal þeirra evrópsku umhverfisverndarsamtaka sem í opnu bréfi til ríkisstjórna heims skora á leiðtoga að missa ekki sjónar af ógninni sem starfa af loftslagsbreytingum og að nota vel þá 300 daga sem við höfum til að undirbúa ábyrga afstöðu okkar: An open letter to EU Heads of State and Government about the climate crisis.









