Falleg mynd af framtíðinni?

Flott hvatningarmynd í tilefni af Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsmál. Sjá myndband neðst á þessari síðu:

http://www.dvoted.net/index.php?option=com_content&task=view&id=4879&Itemid=5001


Cool Planet : Nýr upplýsingavefur um loftslagsmál !!!

friends-thumb-1Góðar fréttir: Nýr og öflugur vefur Upplýsingadeildar Evrópu í Un í loftslagsmálum (UNRIC) er nú kominn í loftið og heitir á höfuðið á baráttunni gegn hlýnun jarðar: Cool Planet 2009, sjá vefinn www.coolplanet2009.org. Hér er bréf frá okkar manni á staðnum, Árna Snævarr að þessu gleðilega tilefni:

CoolPlanet2009.orgthe new website of the UN’s European public information campaign on climate change (UNRIC) is live!

CoolPlanet, was formally launched at a meeting of five Nordic prime ministers on 26 February 2009 at the Nordic Globalization Forum at the Blue Lagoon in Iceland.

Help the UN-lead negotiations on the new Climate Treaty to be finalized in December 2009 in Copenhagen by getting involved on our inter-active website.

Tell us about your projects, innovations, events and projects and see what others in Europe are doing.

And please, could you link to our website (we will publish your link too!)  www.CoolPlanet2009.org and ask everyone to get involved?

Best regards from UNRIC, Árni Snævarr.


Opið evrópskt bréf: Við höfum 300 daga til að verða ábyrg og græn í afstöðu

Verum með ! Orð úr þjóðsöng Íslendinga meitlað í stein, hluti af verki Rúríar sem var sett upp á Eyjabökkum til að mótmæla uppistöðulóni þar. Mynd: Oddný Eir.

Verum með ! Orð úr þjóðsöng Íslendinga meitlað í stein, hluti af verki Rúríar sem var sett upp á Eyjabökkum til að mótmæla uppistöðulóni þar. Mynd: Oddný Eir.

Þær þjóðir sem taka loftslagsógnina alvarlega eru með mjög markvissum hætti farnar að undirbúa Kaupmannahafnarfundinn svokallaða, en þar mun Kyoto-sáttmálinn vera endurskoðaður og endurnýjaður og mjög mikið í húfi að fundurinn verði ekki bara að karpi og prúttfundi heldur alvöru og ábyrgur stefnumótunarfundur til framtíðar. Víða hittast samtök á minni fundum og ráðstefnum til að undirbúa stóra fundinn í lok ársins, og til að mynda þrýsting á stjórnvöld að taka fundinn alvarlega og sjá loftslagsvandann í stærra samhengi réttlætis heimsins, þar sem þriðji heimurinn þjáist mest vegna óábyrgrar hegðunar Vestrænna ríkja í loftslagsmálum. Náttúruverndarsamtök Íslands eru meðal þeirra evrópsku umhverfisverndarsamtaka sem í opnu bréfi til ríkisstjórna heims skora á leiðtoga að missa ekki sjónar af ógninni sem starfa af loftslagsbreytingum og að nota vel þá 300 daga sem við höfum til að undirbúa ábyrga afstöðu okkar: An open letter to EU Heads of State and Government about the climate crisis.



Nýr tími í stjórnmálum heimsins

Náttúruverndarsamtök Íslands telja niður til þess tíma þegar Obama og hans ráðafólk taka við embættum sínum og byrja að vinna að umbótum m.a. í loftslagsmálum, en Obama réð nóbelsverðlaunahafa í embætti orkumálaráðherra. Þá verður vonandi ekki lengur litið á Bandaríkin sem dragbít á vettvangi umhverfisbaráttu á alþjóðavettvangi, heldur öllu heldur litið til stefnu þeirra sem fyrirmyndar. Á vef náttúruverndarsamtaka Íslands eru þessi orð um tímamótin:

(meira …)


Okkar maður á staðnum: Fréttir frá Poznan !

Loftslagsþing Sameinuðu Þjóðanna í Poznan stendur núna yfir frá því á mánudag og okkar maður á staðnum er Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann sendir okkur fréttir af vettvangi svo við Íslendingar megum fylgjast með framgangi þeirra samninga sem við erum aðilar að og veitir víst ekki af smá upplýsingu.

Við opnun loftslagsþings Sameinuðu þjóðanna í Poznan, Póllandi, á mánudag, sagði formaður Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóanna um loftslagsbreytingar, nóbelsverðlaunahafinn, Rajendra Pachauri nauðsynlegt sé að endurskoða hvort 2°C hitnun andrúmslofts jarðar, að meðaltali væri nægilega lágt viðmið, efri mörk, fyrir hættulegar loftslagsbreytingar.
(meira …)


VIP á Nordic Climate Solutions!

Ef einhver getur og hefur áhuga þá get ég útvegað VIP á Nordic Climate Solutions í Danmörku í næstu viku. Veit að þetta er stuttur fyrirvari, en ef að ske kynni að einhver var á ferðinni. Hér er krækja http://www.nordicclimatesolutions.com/?section=1000 Endilega látið mig vita.

Med vennlig hilsen / Best regards / Kær kveðja

Sigridur Thormodsdottir
Senior innovasjonsrådgiver / Senior innovation advisor

Nordisk InnovationsCenter
Stensberggata 25 | NO-0170 Oslo | Tel (+47) 915 76 577
s.thormodsdottir@nordicinnovation.net | www.nordicinnovation.ne


Norrænt framlag til loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

Norrænu umhverfisráðherrarnir greindu frá áætlunum Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndarinnar um framlag til loftslagsfundar Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður í byrjun desember í Poznan í Póllandi.

Þetta kom fram á fundi umhverfisráðherranna í dag á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki, en þar ræddu ráðherrarnir einnig hvaða árangri skyldi stefnt að á fundinum í Kaupmannahöfn 2009 og hvernig norrænar aðgerðir og aðgerðir í hverju landi fyrir sig gætu stuðlað að bindandi alþjóðlegu loftslagssamkomulagi. (meira …)


Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna (IPCC)

Halldór Björnsson skrifar um Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna og loftlagsbreytingaúttektir hennar, faglega ritrýni og stöðumat.

Á vegum Sameinuðu þjóðanna starfar vísindanefnd sem fjallar um loftslagsbreytingar. Á ensku heitir nefndin Intergovernmental Panel on Climate Change sem er skammstafað IPCC, en á íslensku er nefndin kölluð milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Nefndin hefur það hlutverk að taka saman vísindalegar, tæknilegar, félags- og efnahagslegar upplýsingar um grundvöll þekkingar á loftslagsbreytingum af mannavöldum. Úttektirnar fjalla um vísindalega þekkingu á loftslagsbreytingum af mannavöldum, um afleiðingar þessara breytinga og um aðlögun og viðbrögð til að sporna við þessum breytingum. (meira …)


Norðurlönd eiga að vera í fararbroddi !

Norðurlandaráð hefur samþykkt tillögu að framkvæmdaáætlun um umhverfisvænar samgöngur á Norðurlöndum. Þingmennirnir leggja til við ráðherrana að lögð verði fram áætlun á þingi Norðurlandaráðs að ári áður en leiðtogafundurinn um loftslagsmál verður haldinn í Kaupmannahöfn. (meira …)