Leiðrétting á miklum misskilningi ! Um nýjan hugsunarhátt í orkuauðlinda- og lýðræðismálum

Í  umræðu um nýja orkustefnu og almannaeign á orkuauðlindum gætir oft þess misskilnings að þeir sem eru á móti einkavæðingu á nýtingu orkuauðlinda á Íslandi séu sjálfkrafa hlynntir sovéski ríkisvæðingu og stýringu á orkuauðlindunum. Í þessari grein minnir Oddný Eir Ævarsdóttir á að við erum ekki lengur í kalda stríðinu og að þessi uppsetning er falskur valkostur: Við getum vel ímyndað okkur opinberan rekstur þar sem hagsmuna almennings er í alvörunni gætt og þar sem almenningur hefur eitthvað um orkustefnuna að segja. Nýir möguleikar í orkumálum á Íslandi tengjast lýðræðisumbótum órofa böndum. Hins vegar hefur þrjátíu ára reynsla sýnt okkur að einkavæðing í orkugeira hefur hvergi verið almenningi eða nýsköpun til ábóta.

Eins hefur gætt þess misskilnings í umræðunni að þeir sem eru á móti erlendri yfirtöku á náttúruauðlindum Íslands séu á móti útlendingum og samstarfi við erlenda aðila. En raunin er sú að heilbrigð tengsl við umheiminn þurfa ekki að byggjast á nýlenduherra/ nýlenduþjóðar tengslum þar sem alþjóðlegt stórfyrirtæki yfirtekur auðlindir almennings heldur ættu tengslin öllu heldur að byggjast á réttlæti og fjölbreytni þar sem allir hagnast og vaxa af viðskiptunum, ekki síst sjálf náttúran, grundvöllur lífs okkar og starfs!

“Við getum valið að byggja upp framsækinn og ábyrgan orkuiðnað þar sem nýstárlegur opinber rekstur í samvinnu við fjölbreyttan erlendan og innlendan einkarekstur, sprotafyrirtæki og þekkingarstofnanir, stuðlar að nýsköpun og framsækinni atvinnuþróun í sjálfbæru, arðbæru, vistvænu og lýðræðislegu ferli sem endurnýjar orku okkar og réttlæti.”

Framundan eru tímamótaákvarðanir um orkustefnu, um eign og nýtinu orkuauðlindanna og eignarhald á orkufyrirtækjum landsins. En hver á að taka þessar ákvarðanir?
(more…)