111. meðferð á ám

Mynd af ÞJórsársvæði eftir Jóhann Ísberg, fengin á Náttúrukortinu: http://www.natturukortid.is/svaedi/thjorsa/

Mynd af Þjórsársvæði eftir Jóhann Ísberg, fengin á Náttúrukortinu: http://www.natturukortid.is/svaedi/thjorsa/

Íslendingar eru nú ekki heimsmeistarar í “málsmeðferðum” og þeim hefur hingað til ekki þótt neitt atriði að virða formsatriði sérstaklega, hjálpi okkur að ganga í Evrópubandalagið eða eiga frekari samskipti við gamlar kerfisþjóðir!  Hér er frétt frá Smugunni þar sem segir frá ýmsum göllum í málsmeðferð skipulagstillögu um virkjun Þjórsár og frá kröfu um að umhverfisráðherra ógildi tillöguna:
Niðurstöðu sveitarstjórnar verði hafnað :

Krafa um ógildingu á samþykkt skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir virkjun Þjórsár í byggð var afhent umhverfisráðherra í dag. Atli Gíslason lögmaður fer fram á að umhverfisráðherra ógildi skipulagstillögu Skeiða og Gnúpverjahrepps eða vísi henni til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar. Atli afhenti umhverfisráðherra kröfu um þetta í dag.  (more…)


Hvað er Staðardagskrá 21 ?

Af vef UMÍS ehf, Environice sem er ráðgjafarfyrirtæki á umhverfissviði sem veitir alhliða umhverfisráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga, sjá fróðlegan vef þeirra: http://www.environice.is

Staðardagskrá 21 (e: Local Agenda 21) er áætlun sem öllum sveitarstjórnum heimsins er ætlað að gera í samræmi við ályktun Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiró 1992. Nánar tiltekið er hér um að ræða áætlun um þau verk sem vinna þarf í hverju samfélagi um sig til að nálgast markmiðið um sjálfbæra þróun á 21. öldinni, þ.e.a.s. þróun sem tryggir komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði. (more…)


Hrokinn og leyndardómarnir

Í hugvekju Viðars Hreinssonar, framkvæmdastjóra ReykjavíkurAkademíunnar og sérfræðingi í höfundarverki Stephans G. rifjar hann upp spurningu Hannesar Péturssonar: Áttum við skilið í reynd -árvatnið kalt, tært sem rann -um hendur okkar á heiðalöndunum grónu? -Vorum við sjálfir -samboðnir því?  í þessari hugvekju frá því í fyrra þegar Íslendingar voru enn moldríkir, þá minnir Viðar á moldina og að náttúran í öllum sínum óútreiknanleika og leyndardómi sé okkur mikilvægur spegill. (more…)


Lífsins pólitík

ljósmynd af votlendi: gpo

Guðmundur Páll Ólafsson, rithöfundur og frumkvöðull í náttúruverndarbaráttu á Íslandi hélt eftirfarandi erindi við opnun Náttúrusjóðs Auðlindar (sjá www.audlind.org) á fullveldisdaginn s.l. Opnunarhátíðin var haldin á Þjóðminjasafni Íslands og þar var margt um manninn og góður andi, söngur og sérlega áhugaverð erindi um átaksverkefni Auðlindar: Votlendið og Arnarlíf á Íslandi. Síðan var boðið upp á enn meiri tónlist og laufabrauð. Nattura.info fékk að birta erindi Guðmundar Páls um lífsins pólitík

Enn eigum við drauma og vonir og þrár

Náttúrusjóðurinn Auðlind snýst um drauma og vonir og … um pólitík lífsins; vegna þess að umhyggja fyrir náttúruauðæfum varðar hag okkar allra, hag landsins, hag barna okkar og niðja landsins. (more…)


Stofnun náttúrusjóðs Auðlindar

ljósmynd: gpo

Auðlind – Náttúrusjóður - verður stofnaður formlega, í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu, á fullveldisdaginn 1. desember, 2008 kl. 17:00. Allir eru velkomnir, sjá boðskort: audlind-1des

Áhugafólk um náttúruauðæfi Íslands hefur um árabil unnið að stofnun náttúrusjóðs. Hann er öllum opinn og stofnaður til að standa vörð um auðlindir, lífsgæði og fjölbreytni íslenskrar náttúru. Honum er ætlað að stuðla að verndun og efla virðingu fyrir þeim fágæta þjóðararfi sem náttúra Íslands er.

Stutt ávörp flytja: Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur og náttúrufræðingur, Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor, Kristinn Haukur Skarphéðinsson dýravistfræðingur og Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur. Tónlist flytja: Tómas R. Einarsson, Skólakór Kársnesskóla og karlakór sex ungra söngvara. Kynnir verður María Ellingsen leikkona.

Sjóðurinn á sér ekki fyrirmyndir hér á landi, en erlendis eru til hliðstæðir sjóðir, oft samsarfsvettvangur einkaaðila, fyrirtækja og hins opinbera, sem vinna að verklegum framkvæmdum á sviði umhverfisverndar. (more…)


Óraunsæi ?

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, skákdrottning og umhverfisverndarsinni, Vinstri grænum, skrifaði grein þann tíunda febrúar s.l. um Þjórsá og segir um náttúruvernd: “Baráttan er í algleymingi og það er barátta sem ekki er hægt að slá á frest og enginn getur vikið sér undan.”

Ég þreytist seint á að vitna í orð Jóhönnu Jóhannsdóttur frá Hamarsheiði í Gnúpverjahreppi, en Jóhanna hefur lifað nær heila öld með Þjórsá:

“Fegurðin var algjör. Mér varð hugsað til Landsvirkjunar sem ef til vill sekkur svo túnum í Haga, á þessari fallegu landnámsjörð, að ekki verður búandi hér lengur – og engin situr við glugga og dáist að fegurðinni, eða nýtur góðs af gæðum jarðarinnar. Það er mikið vald sem fáeinir gróðahyggjumenn taka sér.” (more…)


Urriðafoss er náttúruperla

Að gefnu tilefni vilja landeigendur, bændur og meginþorri íbúa á áhrifasvæði fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar minna á afstöðu sína varðandi framkvæmdir við Urriðafossvirkjun.

Við teljum ávinning af framkvæmdinni lítinn miðað við þær fórnir sem við og aðrir landsmenn þurfa að færa vegna framkvæmdarinnar.

Stjórnvöld hafa að undarförnu gefið út yfirlýsingar um að umtalsverðar stóriðjuframkvæmdir séu leið út úr efnahagsþrengingunum. Við teljum þessa leið ófæra og ekki líklega til að skapa almenna samstöðu og þann samtakamátt sem þarf til að endurbyggja efnahagslíf þjóðarinnar.

Við krefjumst þess að stjórnvöld og Landsvirkjun láti sem fyrst af öllum áætlunum um Urriðafossvirkjun. Slík yfirlýsing mun létta af óvissu og auka bjartsýni okkar, íbúa svæðisins. Það mun auðvelda okkur að vinna okkur út úr efnahagslægðinni.

Vinir Urriðafoss


Náttúruverndarsamtök Íslands

Náttúruverndarsamtök Íslands eru frjáls félagasamtök áhugafólks um náttúruvernd með yfir 1300 skráða félaga. Náttúruverndarsamtökin eru opin öllum sem aðhyllast markmið samtakanna og vilja starfa í samræmi við lög þess. Árgjaldið er 3000 kr. Eitt mikilvægasta stefnumið Náttúruverndarsamtaka Íslands er að vernda miðhálendi Íslands. Formaður stjórnar og eini fasti starfsmaður er Árni Finnsson.

Samtökin voru formlega stofnuð þann 29. maí 1997 og er ætlað að vera málsvari þeirra sem láta sig náttúruvernd og umhverfismál miklu skipta. (more…)


Landvernd

Landvernd er frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að bæta lífsgæði almennings nú og í framtíðinni. Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir, náttúru og umhverfi. Framkvæmdastjóri Landverndar er Bergur Sigurðsson og formaður er Björgólfur Thorsteinsson.

www.landvernd.is


Náttúran.is – vefur með umhverfis vitund

Náttúran.is - vefur með umhverfis vitund, hefur gengið í gegnum langt ferli og hefur mótast í samvinnu við fjölda aðila þann tíma sem vefurinn hefur verið í þróun eða frá árinu 2004. Fjöldi sérfræðinga og listamanna hafa komið að þróun og gerð vefsins en frumkvöðull verkefnisins er Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður. Vefsetrið Náttúran.is var síðan opnað af umhverfisráðherra þann 25. apríl, á Degi umhverfisins, árið 2007.

Náttúran.is er starfrækt sem upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt. Mikil og góð samvinna er við fjölda fyrirtækja, félög, stofnanir og ráðuneyta í landinu enda leitast Náttúran.is við að flytja fréttir og tengja á milli hugtaka í hinu stóra samhengi. Við vinnum út frá því að umhverfismeðvitund geti svo auðveldlega orðið raunveruleg á hverju heimili og í hverju fyrirtæki ef upplýsingar eru framreiddar og tengingar myndaðar milli áhugasviða, viðmiða og framboðs.
Á Grænum síðum má finna alla þá aðila sem hafa einhverjar umhverfisvottanir eða starfa að vistvænni þróun á einhvern hátt. Þar má líka á Grænu Íslandskorti staðsetja alla þessa aðila og finna samkvæmt skilgreiningu GreenMap.org kerfisins sem er alþjóðlegt. Náttúran.is var fyrst til að kortleggja heilt land samkvæmt þeirri aðferðafræaði.

Á Náttúrumarkaði er hægt að kaupa ýmsar vörur sem hafa umhverfisvottun, lífræna vottun, eru unnar samkvæmt hugmyndafræði FairTrade eða eru vandfundin íslensk framleiðsla. Að kaupa vörur á netinu er iðulega mun þægilegra og hagkvæmara en aka jafnvel langar leiðir til að finna sérstakar vörur.

Sjá nánar á www.náttúran.is


Náttúruvaktin

Baráttuhópurinn, sem hlaut nafnið Náttúruvaktin eldsnemma á degi Hálendisgöngunnar í febrúar 2003, varð til vegna þess einfaldlega að allt virtist hafa brugðist í náttúruverndarmálum í forleik síðustu virkjunarframkvæmda. Við höfðum ansi mörg þá óþægindatilfinningu að hafa verið svikin um þau sjálfsögðu mannréttindi að vita í tæka tíð, svikin um upplýsingar og umhugsunarfrest, svikin um orðið, svikin um eðlileg skoðanaskipti og gjörsamlega svikin um ákvörðunarrétt. (more…)