Obama og Ísland : Sýnum í verki að við horfum til framtíðar ! Saman!

Obama og Ólafur Ragnar á ráðstefnu um loftslagsmál í Alaska. Obama er með einhvern forláta bækling líklega með myndum af landinu. Mynd frá prince.org

Obama og Ólafur Ragnar á ráðstefnu um loftslagsmál í Alaska í fyrra. Obama væntanlega með forláta bækling með myndum af landinu. Mynd frá prince.org

Obama sagði á fundi í Strassburg um daginn að við hljótum öll að vita að tíminn er að renna út, hlýnun jarðar er í hraðri þróun og að við verðum að bregðast við. Hann hvetur iðnþjóðirnar til að hugsa stórt og vera ábyrgar í umhverfismálum og að hugsa um nýsköpun í orkumálum og atvinnusköpun í samhengi jarðarinnar og umhverfisins og leita að betri og grænni nýtingu endurnýjanlegrar orku og að grænum fjárfestingartækifærum. Hann sýndi því áhuga að koma til Íslands , sagðist alltaf hafa langað til að koma þangað, og að hann vildi rannsaka möguleikana sem við höfum til nýsköpunar í jarðvarmavirkjunum og lofstslagslausnum. Þvílíkt tækifæri sem slík heimsókn væri til kynningar á nýrri grænni tækni og nýrri skapandi hugsun! Hvað væri gaman ef við gætum boðið hann velkominn og allan heiminn til að skoða okkar náttúruauðlindir og mannauð í formi hugmynda og grænna framkvæmda, svo heimurinn mætti læra af öðru en mistökum okkar!  Og hvað væri líka gaman ef gætum sýnt gott fordæmi á Kaupmannahafnarfundinum og hætt að reyna að væla út órættmætar og óraunsæjar undanþágur. Ef við gætum bara tekið risastökk núna og sett allt á fullt í átt að sjálfbærri og vistvænni framtíð!

Hér að neðan eru tvær klausur um Obama og Ísland, og pistill af Vísindavefnumum jarðvarma: Hvað er jarðhiti?

Það er ljóst að leit okkar að farsælli leið verður að eiga sér stað í öflugri samræðu á milli vísindamanna, þeirra sem hafa reynslu af landinu og virkjun orkuauðlinda þess, hinna sem eiga sér drauma, fjárfesta, fræðimanna, stjórnmálamanna etc. etc. Við verðum að endurskoða svo margt og slík endurskoðun þarfnast þátttöku allra!

Obama: Atvinnusköpun má ekki vera á kostnað umhverfisins (more…)


Frumsýning í kvöld: Draumalandið !

Stillimynd úr Draumalandinu

Stillimynd úr Draumalandinu

hreindyr2Draumalandið er frumsýnd í kvöld og þvílík tilhlökkun! Sjá stillimyndir og upplýsingar á vef myndarinnar: www.draumalandid.is

Draumalandið: Veggspjald (pdf)

Kvikmynd í fullri lengd í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar Draumalandið er ein mest selda og umtalaðasta bók síðustu ára á Íslandi. Kvikmyndinni er leikstýrt af Þorfinni Guðnasyni og Andra Snæ Magnasyni. Myndin hefur verið þrjú ár í vinnslu og er líklega ein viðamesta heimildarmynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Þorfinnur Guðnason hefur áður getið sér gott orð fyrir myndir sínar um Lalla Johns, Hagamúsina og Hestasögu sem hafa verið sýndar víða um heim. Andri Snær hefur skrifað skáldverk, fræðirit, ljóð og þrjú leikrit en þetta er hans fyrsta kvikmyndaverkefni. Verk hans hafa verið þýdd á meira en 20 tungumál. Draumalandið er líklega eitt viðamesta heimildarmyndaverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi. (more…)


Sjálfbærni-sproti: Mengun umbreytt í eldsneyti

209Nú þurfum við að sjá fleiri þessháttar sprota vaxta: þá sem stuðla að sjálfbærninni, ekki aðeins í efnahagslegu ljósi, heldur jafnframt vegna virkni sinnar í sjálfu sér: hér er verið að breyta mengunarvaldi vegna koltvísýringsútblætri jarðvarmavirkjunar í bílaeldsneyti.

Morgunblaðið í dag segir frá Metanólverksmiðju á Svartsengi
METANÓLVERKSMIÐJA sem framleiðir nýtanlegt hráefni sem eldsneyti á bíla verður reist í Grindavík á þessu ári ef áætlanir ganga eftir. Fyrirtækið Carbo…

Útblásturinn nýttur Hitaveita Suðurnesja og Carbon Recycling International hyggja á framkvæmdir.

METANÓLVERKSMIÐJA sem framleiðir nýtanlegt hráefni sem eldsneyti á bíla verður reist í Grindavík á þessu ári ef áætlanir ganga eftir.

Fyrirtækið Carbon Recycling International hefur undirritað samstarfssamninga við Orkuveitu Suðurnesja hf. að því er fram kemur á vef Grindavíkurbæjar, og liggur skipulag verksmiðjunnar þegar fyrir. Hún verður staðsett á svæði Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi og verður fyrsta verksmiðja sinnar tegundar í heiminum, en starfsemin snýst um að breyta koltvísýringsútblæstri, frá jarðvarmavirkjuninni við Svartsengi, í metanól sem er fljótandi eldsneyti fyrir bíla og önnur farartæki. (more…)


Helguvík: Skattaskjól, óvissa og áhætta

Draumur. Olíumálning á striga eftir Henri Rousseau

Draumur. Olíumálning á striga eftir Henri Rousseau

Helguvíkurfrumvarpið var afgreitt á Alþingi fyrir nokkrum dögum en mikil óvissa ríkir þó um framtíð samninganna. Vinstri græn snerust gegn frumvarpinu en samt fór það svo að iðnaðarráðherra hefur umboð til áframhaldandi samninga við álrisana. Hvernig má þetta vera? Eftir allt og allt? Hví í ósköpunum?

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri Grænna, skrifar á Smuguna um þessa snjáðu samninga og víðsjála framtíð þeirra og forsendur og birtir nefndarálit sitt um fjárfestingarsamningana:

Óverjandi samingur um Helguvík
Skattaskjól, óvissa og áhætta

Fjárfestingarsamningur um álver í Helguvík gæti endað í höndum kröfuhafa Century Aluminium haldi hlutabréf álfyrirtækisins áfram að falla. Verðfall og erfiðleikar í áliðnaði auka á áhættu Íslendinga af samningnum. Þetta er mat Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna, í nefndaráliti minnihluta iðnaðarnefndar vegna fjárfestingasamnings um álver í Helguvík.

Tilkynning:

Leyfi mér að vekja athygli fjölmiðla á nefndaráliti mínu í iðnaðarnefnd Alþingis vegna fjárfestingasamnings um Helguvík: http://www.althingi.is/altext/136/s/0910.html (more…)


Hefur einhver nýverið séð Svartþröst?

Turdus merula og félagar, svartþröstur, söngþröstur og skógarþröstur

Turdus merula og félagar, svartþröstur, söngþröstur og skógarþröstur

Fugl dagsins er Svartþröstur af Fuglavefnum: http://www1.nams.is/fuglar/details.php?val=1&id=63

Um Svartþröst af Vísindavefnum: Svartþröstur (Turdus merula, e. blackbird) er afar algengur víða í Evrópu en nýlegur landnemi á Íslandi. Hér verpir hann meðal annars á innnesjum svo sem í Reykjavík og er talið að varpstofn hans á höfuðborgarsvæðinu sé á bilinu 60 til 100 pör. Hann er meðal annars nokkuð algengur í Laugardalnum og má sjá hann þar allan ársins hring. Eins og við er að búast er svartþrösturinn svartur á lit. Það á þó aðeins við um karlfuglinn, kvenfuglinn er brúnmóleitur. (more…)


Í dag frá fimm til sjö: Stóriðjustefna stjórnvalda í ljósi náttúruverndar, hnattvæðingar og efnahagslegs sjálfstæðis

Minnismerki um Hróa hött og baráttu hans

Minnismerki um Hróa hött og baráttu hans fyrir réttlæti og betra lífi í sátt við náttúruna

Háskólatorginu í dag frá fimm til sjö, stofu 102 er meiriháttar UPPGJÖR VIÐ STÓRIÐJUSTEFNUNA:  Er allt uppi á borðinu ? / Is everything on the table?

Síðastliðin 40 ár hefur Ísland, lítið land í norðurhöfum, leitað stórra lausna í orku-, atvinnu-, og efnahagsmálum.  Á þessu málþingi verður fjallað um stóriðjustefnu stjórnvalda í ljósi náttúruverndar, hnattvæðingar og efnahaglegs sjálfstæðis.

Sérstakur gestur á málþinginu verður bandaríski rithöfundurinn John Perkins, höfundur The Confessions of an Economic Hitman. Perkins er staddur hér á landi í tilefni af frumsýningu heimildamyndarinnar Draumalandið, sem byggð er á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, en Perkins kemur fram í myndinni.

Programme:

17:00 Introduction
17:10 John Perkins, höfundur Confessions of an Economic Hitman
Economic crisis: Hitmen hit Iceland and the world
18:00 Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur
What is Iceland´s benefit when dealing with foreign investors?
18:15 Hjálmar Gíslason, DataMarket
What does the data tell us?
18:30 Pallborðsumræður/Panel Discussion
19:00 Fundarlok/End



Fundastjóri er Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.

John Perkins starfaði um árabil sem “efnahagslegur málaliði” (Economic Hitman) hjá stóru ráðgjafafyrirtæki í Bandaríkjunum.  Perkins segir efnahagslega málaliða vera hálaunamenn sem svíkja milljarð (more…)


Klukkan fimm dimmalimm í dag: John Perkins heldur æsispennandi fyrirlestur á Háskólatorgi

Metsölubókin hans

Metsölubókin hans Perkins sem var sjötíu vikur á metsölulista í Ameríku og hefur verið þýdd á rúmlega þrjátíu tungumál. Næsta bók sem hann skrifaði: Leynileg saga ameríska heimsveldisins, er áætlun um sjálfbært, réttlátt og friðsamleg samfélag.

Í dag, fyrsta mánudag Dymbilviku*

heldur John Perkins ** fyrirlestur á Háskólatorgi, klukkan fimm og ókeypis inn fyrir alla sem vilja heyra æsispennandi fyrirlestur hans og greiningu á efnahagsklúðri okkar, en viðtal Egils við Perkins í Silfri Egils í gær má sjá  hér. Í sama þætti var áhugavert viðtal við lögfræðinginn Ketil Sigurjónsson að ræða um hugsanlegt gjaldþrot Landsvirkjunar og olíuleit á Drekasvæðinu.

Á Háskólatorginu í dag er ráðstefna undir stjórn Kristínar Völu Ragnarsdóttur um stóriðjustefnuna, sjá næstu færslu.

John Perkins er á landinu í tilefni af frumsýningu Draumalandsins á morgun, en þar er viðtal við hann.

Spurningin er sú hvort sé vísvitandi verið að selja auðlindir okkar í hendur erlendra auðhringa og búa til efnahagslegana vítahring…

*dymbilvika (dymbildagar, efsta vika, kyrra vika), síðasta vikan fyrir páska. Nafnið mun dregið af áhaldi sem notað var í klukku stað í kirkjum þessa viku (sbr. dumb bjalla). Sums staðar virðist trékólfur hafa verið notaður í stað venjulegs kólfs og þá kallaður dymbill. (Sjá skýringar við almanak Háskóla Íslands.) Minnir á búsáhaldatónlistina.

**sjá heimasíðu John Perkins, með ýmsum upptökum og tenglum: http://www.johnperkins.org/


Ómar: Um landið sem áætlað er að hverfi undir stóriðjuna

Frá Þeistareykjum, mynd Ómars

Frá Leirhnjúkssvæði, mynd Ómars

Ómar Ragnarsson fer með okkur í vettvangsferð á líklega væntanleg virkjunarsvæði, á bloggi sínu, og lýsir upplifun sinni og undrum þessa svæðis: að Leirhnjúkur-Gjástkki séu jafnvel merkilegri svæði en sjálf Askja, og er þá mikið sagt en sjálfsagt ekki ofsagt. og hann segir: Nýlega var í Morgunblaðinu heilsíðugrein um djúpborunina. Ekkert um umhverfisáhrifin. Tæknin heillar jú alla og náttúruundrið, sem fórna á fyrir þetta, skiptir ekki máli. :

Fór í dag í myndatökuflug yfir Leirhnjúk og Gjástykki sem eru næst á lista yfir svæði sem á að virkja fyrir álver í 70 kílómetra fjarlægð. Hef áður bloggað um það að þetta svæði eigi engan sinn líka í heiminum.

Þetta er eini staðurinn í heiminum þar sem hægt er að upplifa og sjá myndir af því hvernig Ameríka fór frá Evrópu og hraun kom upp í gjánum sem mynduðust og til varð nýtt land.Myndirnar voru teknar í níu eldgosum sem þarna urðu 1975-84.

Þarna hafa alheimssamtök um ferðir til mars valið sér æfingasvæði fyrir marsfarana á svipaðan hátt og Askja var valin fyrir tunglfarana 1967.Leirhnjúkur-Gjástykki er því merkilegra en sjálf Askja. (more…)


Rangar forsendur gefnar í útreikningum á arðsemi álversuppbyggingar

Dauður mosi í kringum virkjanir, mynd af vef Náttúrufræðistofnunar Íslands: www.ni.is

Dauður mosi í kringum virkjanir, mynd af vef Náttúrufræðistofnunar Íslands: www.ni.is

Hrund Skarphéðinsdóttir og Sigurður Jóhannesson, sem skrifaði grein um óhagstæða fyrirgreiðslu til álvera fyrir vef náttúra.info í haust, eru hér með góða grein birta á vef Framtíðalandsins, um rangar forsendur sem hafa verið gefnar í útreikningum á arðsemi álversframkvæmda.
RÍKISSTYRKIR TIL ÁHÆTTUSAMRA STÓRIÐJUFRAMKVÆMA

Álver í Helguvík er hannað til framleiðslu á allt að 360.000 tonnum af áli á ári, en áætlað er að byggja það í fjórum 90.000 tonna áföngum. Ráðgert er að álbræðsla hefjist í fyrsta áfanga árið 2011. Áætlað er að fullbúið álver og virkjanir fyrir það kosti um 195 milljarða króna. Þar af má ætla að kostnaður við orkumannvirki sé tæplega helmingur, en hann bera fyrirtæki í eigu íslenskra sveitarfélaga. Álverið verður í eigu Century Aluminum sem einnig rekur Norðurál. Félagið er skráð á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum. (more…)


Svipmynd af Draumalandinu okkar

vötn á Kringilsárrana sem fór undir vatn við Kárahnjúkavirkjunina. mynd af vef saving iceland

vötn á Kringilsárrana sem fór undir vatn við Kárahnjúkavirkjunina. mynd af vef saving iceland

Bíómyndin Draumalandið sem er gerð eftir samnefndri bók Andra Snæs

verður frumsýnd á miðvikudaginn, á svo hárréttum tíma að það hálfa væri nóg: þegar skilur á milli feigs og ófeigs.

Í Kastljósi kvöldsins á Rúv var viðtal við leikstjórana og sýnd brot úr myndinni: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4431354/2009/04/02/3/


Aðvaranir Paul Hawken og nýleg frétt um óheilindi Alcoa

Helst Ísland á græna kortinu?  Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Helst Ísland á græna kortinu? Sjá græna kort á vefnum náttúran.is

Í frétt á stöð tvö fyrir viku síðan var lítil frétt um Alcoa á alþjóðavettvangi, þar sem sagt er frá ásökunum um mútur fyrirtækisins og óheilindi, jafnframt er rætt um óheilsusamleg skilyrði starfsmanna við álvinnslu, sjá myndskeið á blogg-síðu Láru Hönnu sem fylgist vel með fréttum. Óþægileg fréttin minnir á það sem Paul Hawken sagði þegar hann kom hingað til lands í desember s.l. og varaði m.a. við heilsuspillandi áhrifum álvera, bæði fyrir starfsmenn og íbúa í kring, og studdi mál sitt góðum rökum og haldbærum vísindalegum sönnunum. Hann benti líka á hversu fjárhagslega slæmur áliðnaðurinn væri fyrir Íslendinga í ljósi stöðu landsins. Til gamans má horfa á Hawken í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils þar sem hann talar um stöðu Íslands á tímamótum.