An institution called Public Services International has published several reports on the consequences of privatisation of public utilities, including energy and water. A recent report “Global experience with electricity liberalisation” by Professor David Hall et al shows that in the OECD countries privatisation always leads to higher energy prices and less consumer satisfaction.
It’s not about being against private ownership in general. It’s not about wanting the Soviet model of public ownership. It’s about facts: The privatisation of the energy has neglected the public, the nature and innovation. Now we need find new ways of a public ownership in close relationship with new active democracy !
Here is this extremely interesting report in pdf-form : http://www.orkuaudlindir.is/docs/Global%20Experience%20with%20privatization.pdf
Einkavæðing á orkugeiranum: Stofnun sem kallast Public Services International hefur gefið út margar skýrslur um afleiðingar einkavæðingar á orku og veitufyrirtækjum. Nýleg skýrsla “Global experience with electricity liberalisation” eftir Prófessor David Hall kemst að þeirri niðurstöðu að í öllum OECD löndunum hafi einkavæðing leitt til hærra orkuverðs og verri þjónustu.
English, Hot Topics, Ný orkustefna, græn tækni, heildræn sýn, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Kristján Friðriksson skrifaði um smáiðnað og sjálfbæra þróun fyrir þrjátíu árum. Hann stofnaði verðlaunasjóð iðnaðarins í þeirri von að geta stutt við fjölbreytileika sprotavaxtar smáiðnaðarins. Nú síðast fengu tvö íslensk sprotafyrirtæki verðlaun úr sjóðnum: Farmer's Market og Íslensk hollusta (sjá www.kf.is). Samtök iðnaðarins hýsa sjóðinn. Það er synd að framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vilhjálmur Egilsson, skuli í spám sínum um hag landsins vera svona langt á eftir samtímanum, í gömlum órum um stóriðjuna og hennar reddingar sem allar eru óraunsæjar.
Hagfræðingurinn Joseph Stiglitz sagði í fyrirlestri sínum á Íslandi í september s.l. að mönnum hætti til að rugla saman annars vegar leið að markmiði og hins vegar markmiðinu sjálfu: sjá t.d. efnahaginn sem markmið í sjálfu sér en ekki leið að öðru marki sem væntanlega er hag- og farsæld. Eins lítur út fyrir að menn séu fyrir löngu síðan hættir að sjá stóriðjuna sem leið að hagsæld en sjá hana öllu heldur sem markmið í sjálfu sér. Það er sama hversu margir hagfræðingar og erlendir og innlendir sérfræðingar og ráðgjafar vara ítrekað við aukinni stóriðjuþróun á Íslandi og sýna fram á hversu óhagstæð hún er til lengdadr í öllu tilliti- en mæla öllu heldur með aukinni sjálfbærni, þá er eins og ekkert komist að en stóriðja; að stækka álverin og fjölga þeim.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag mátti heyra spádómsrödd framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins, Vilhjálms Egilssonar sem taldi að fjárfesting Landsvirkunar í Búðarhálsvirkjun og stækkun álvers Alcan gæti markað upphafið að endalokum kreppunnar, því þá færu hjól atvinnulífsins að snúast af alvöru, sjá http://www.ruv.is/frett/miklar-fjarfestingar-i-budarhalsi . Engin fréttaskýring fylgdi, engin athugasemd. Hvað er búið að sýna oft fram á það með alls konar útreikningum og hagspám að stækkun álvera og frekari stóriðja á ekki eftir að bjarga okkur út úr kreppunni heldur grafa okkur enn dýpra ofan í leðjuna?
Í upphaf árs 1978 gaf Kristján Friðriksson út smárit með fyrirlestri sínum Hagkeðjan í hnotskurn, þar sem hann kynnir framtíðarsýn byggða á sjálfbærni og smáiðnaði. Hann notaði að vísu ekki orðið “sjálfbærni” enda varð það ekki viðtekið hugtak fyrr en árið 1987 í Brundtland-skýrslunni frægu sem skýrði út mikilvægi þess að styðja við sjálbæra þróun í heiminum. En hann ræðir um alla þá þætti sem einkenna sjálfbæra þróun: að gæta að því að fiskistofnarnir geti endurnýjað sig, að hlusta betur á líffræðinga og vistfræðinga til að vita hvenær og hvar megi veiða á hverjum tíma. Og að tengja veiði Íslendinga við aðra iðju í heildstæðri uppbyggingarstefnu; byggja upp rannsóknir í sjávarútvegi, efla þekkingu á lífkeðjunni og tengja hana við veiðiútgerðina og við þekkingu á handverki og auka jafnt og þétt við fjölbreytni í smáiðnaði á svokölluðum umbreytingarsvæðum út um land þar sem gerðar væru tilraunir með umhverfisvænan og hátæknilegan smáiðnað sem væri öllum stéttum til hagsbóta, svo sem fullvinnslu í málmvinnslu, rafmagnsbílatilraunum, vindorkuframleiðslu, textíliðnað og fleira. (more…)
Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Nú þurfum við að sjá fleiri þessháttar sprota vaxta: þá sem stuðla að sjálfbærninni, ekki aðeins í efnahagslegu ljósi, heldur jafnframt vegna virkni sinnar í sjálfu sér: hér er verið að breyta mengunarvaldi vegna koltvísýringsútblætri jarðvarmavirkjunar í bílaeldsneyti.
Morgunblaðið í dag segir frá Metanólverksmiðju á Svartsengi
METANÓLVERKSMIÐJA sem framleiðir nýtanlegt hráefni sem eldsneyti á bíla verður reist í Grindavík á þessu ári ef áætlanir ganga eftir. Fyrirtækið Carbo…
Útblásturinn nýttur Hitaveita Suðurnesja og Carbon Recycling International hyggja á framkvæmdir.
METANÓLVERKSMIÐJA sem framleiðir nýtanlegt hráefni sem eldsneyti á bíla verður reist í Grindavík á þessu ári ef áætlanir ganga eftir.
Fyrirtækið Carbon Recycling International hefur undirritað samstarfssamninga við Orkuveitu Suðurnesja hf. að því er fram kemur á vef Grindavíkurbæjar, og liggur skipulag verksmiðjunnar þegar fyrir. Hún verður staðsett á svæði Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi og verður fyrsta verksmiðja sinnar tegundar í heiminum, en starfsemin snýst um að breyta koltvísýringsútblæstri, frá jarðvarmavirkjuninni við Svartsengi, í metanól sem er fljótandi eldsneyti fyrir bíla og önnur farartæki. (more…)
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn | Athugasemdir: 0 »
Nemendur í Sjálfbærni-námskeiði Kristínar Völu Ragnarsdóttur í Háskóla Íslands verða með kynningu á veggspjöldum í Norræna húsinu í dag klukkan fjögur og allir velkomnir. Þar verða kynnt ólík sjálfbærnisjónarmið Háskólans, Landsvirkjunar, tískuheimsins og Sólheima, Hveragerðisbæjar, Reykjavíkurborgar og Íslands í heild. Þessi umræða er hluti af tískutvíæringnum þar sem Færeyjar, Grænland og Ísland settu sig í samhengi sjálfbærninnar í tísku dagsins. Veggspjald Náttúra.info með drögum að kortlaggningu á náttúruverndarlandslagi Íslands verður m.a. til kynningar.
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Leirpottar eru ótrúlega góðir til matreiðslu
Hönnunarmarsinn er byrjaður og hágæða dagskrá fyrir þá sem hafa áhuga á hönnun og þeim fjölmörgu sviðum sem skarast við hana. Seinnipartinn í dag, föstudag verður opnaður svokallaður leirpottur í Nýlistasafninu, en það er samvinnuverkefni hönnunarfyrirtækisins Borðið, Leirs 7 og matreiðslumeistara Friðriks sjöunda sem sýður saman pottrétt, frá kl.17.30-19.30 í kvöld og fram á sunnudag. Svo má aftur minna á atriði fyrir þá sem eru spenntir fyrir grænum arkítektúr og hönnun: Arkís er framsækin arkítektarstofa í Reykjavík sem sérhæfir sig í umhverfisvænni hönnun, og hefur á síðustu árum tekið þátt í fjölmörgum verkefnum í umhverfisvænni hönnun og skipulagi og starfsmenn hafa sótt nám í umhverfisvottun bygginga. Arkís tekur þátt í Hönnunarmarsi og verður með opið hús um vistvæna hönnun og skipulag, í Aðalstræti 6, 4. hæð. frá 12-18 frá föstudegi til sunnudags. Kynnt verða áhugaverð bygginga- og skipulagsverkefni og boðið upp á vistrænar veitingar. Allir velkomnir.

Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Lúpínan var mikið hitaefni á Íslandi og menn skiptust í fylkingar með og á móti. Nýjar aðferðir við að útrýma lúpínu voru kynntar á vef Ríkis vatnajökuls, myndin er þaðan

Fagurfræðilegt lúpínuhaf af vef Rannsóknarstofnunar Landbúnaðarins
Íslenskir skógarverðir, er það kannski málið? Sigurður Már Harðarson skrifar í Bændablaðið um nýstárlegar hugmyndir um atvinnu-uppbyggingu og vísar í landbúnðar- og matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða vinnumastofnunarinnar. Skógrækt og varsla er hluti af tilraun til að gera lönd sjálfbær í vistvænum skilningi en líka efnahagslegum eins og kemur fram í þessari grein, sem er skrifuð í tilefni af alþjóðlegri skógarviku og ráðstefnu í síðustu viku.
En á þetta við á Íslandi? Er vert að fylla hér landslagið af trjám? Hvað með melgresið? Og var lúpínan kannski vond tískubylgja, allir sammála um að hún er hryllingsblóm? Hvar eru samanburðarrannsóknirnar? Hefur Ísland ekki sérstöðu í Evrópu gróðurlega séð? Er “grænkun” Íslands úr annarri flóru? Stórt er spurt. Og ýmsar eru rannsóknarstofnarirnar á Íslandi sem hafa unnið í slíkum spurningum á síðustu árum. En hvað sem skógrækt líður, þá má allavega læra af þeim róttæka hugsunarhætti sem er til umfjöllunar í þessari grein: Þar sem kreppan er bókstaflega grædd.
(more…)
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn | Athugasemdir: 0 »
Í frétt Ríkisútvarpsins þann níunda mars var sagt frá Verkfræðistofunni Útrás á Akureyri sem vinnur með Bretum að hönnun og útfærslu á umhverfisvænum orkuverum í Bretlandi með nýrri tækni sem eykur orkuframleiðsluna. Hvert orkuver er sagt munu framleiða um 20 megawött , þar af um tólf megawött frá dísilvélum sem brenna lífrænu eldsneyti. Í fyrsta áfanga verða byggð átta orkuver og er hönnun hafin á tveimur fyrstu verunum. Þetta hljómar spennandi og spurning dagsins er þessi: Hver getur sagt okkur meira um þetta mál? Væri hægt að fá slík orkuver til Íslands? Eru þessi orkuver græn, þ.e. umhverfisvæn? Við þurfum að efla mjög umræðuna um hvað er grænt og vistvænt, nú þegar ýmislegt er sagt vera umhverfisvænt sem kannski er það ekki í raun.
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Stefnumót Stofnunar Sæmundar Fróða eru alltaf spennandi og í samvinnu við Umhverfisráðuneytið verður núna tekið á grundvallarmálunum Umhverfis- og auðlindaákvæði í stjórnarskrám. Þetta er tólfta stefnumót stofnunar Sæmundar fróða, en stofnunin er rannsókna- og þjónustustofnun á sviði sjálfbærrar þróunar og þverfræðilegra viðfangsefna, sjá vef stofnunarinnar: www.ssf.hi.is. Á stefnumótinu ræður Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í umhverfisrétti um stjórnarskrárvernd umhverfisins, og Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstýra umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, ræðar um forgangsröðun og umhverfi.
Staður og stund: Þjóðminjasafnið, fundarsalur innaf kaffistofu, miðvikudaginn 18. mars klukkan 12-13.30 (more…)
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Robert Dell við kennslu utandyra í M.I.T.
Robert Dell var prófessor í M.I.T. í Bandaríkjunum og núna í hinum eftirsótta og virta skóla Cooper Union i New York. Hann hefur gert mjög áhugaverðar og sérstakar rannsóknir á mörkum lista og raunvísinda og hefur meðal annars stundað þær á Reykjum í Ölfusi í samstarfi við Háskólasetrið í Hveragerði, þar sem hann er gestaprófessor, eins og kom fram í umfjöllun um setrið og óvissa stöðu þess, hér á vefnum á föstudaginn. Í dag heldur herra Dell gríðarlega spennandi fyrirlestur um Örgrænar lausnir og leiðir sjálfbærrar þróunar, en það er einhverskonar ferðadagbók hans, m.a. um það hvernig má nýta umframorku til hitunar á görðum. Fyrirlesturinn er á milli tvö og þrjú í VR-II húsi Háskólans, stofu 158. Hér er kynning um kauða á ensku:
Micro-Green Solutions to Sustainable Living,
a Researcher’s Journey.
Work in Iceland and New York City
Professor Robert Dell, ASME, is the Director of the Laboratory for Energy
Reclamation and Innovation at The Cooper Union.
His work as author and Principal Investigator of 5 research grants from Consolidated Edison’s Steam Heat Division helped enable the development of his working thermoelectric generator to power control and monitoring systems in from New York City. The heat energy comes directly from the surface of steam and hot water pipes and it
functions without any moving parts.
(more…)
Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Í kvöld klukkan 20.15 er í Lögbergi, stofu 101 í Háskóla Íslands, málþing um loftslagsbreytingar og gildi endurnýjanlegra orkugjafa. Anita Rønne, dósent í auðlindarétti við Kaupmannahafnarháskóla heldur fyrirlestur sem nefnist “Climate change and energy – The role of renewable energy and how law can advance or impede developments” -um loftslagsbreytingar og orkuna, hvert sé hlutverk endurnýjanlegra orkugjafa og hvernig löggjöf getur haft áhrif á þróunina.
Fréttir, Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hinna Norrænu þjóða innan alþjóðastofnunar Sameinuðu þjóðanna, ritar á eyjubloggi sínu um grein Al Gore og Ban Ki-moon sem birtist á Náttúra.info í gær og útskýrir hvers vegna hann hafi valið að senda hana til birtingar á vef nattúra.info og segir m.a.: Málflutningur Bjarkar um sprotafyrirtæki og grænar áherslur ríma svo sannarlega vel við málflutning þjóðarleiðtoga á borð við Barack Obama og Gordon Brown að ekki sé minnst á þá “pennavinina” Al Gore og Ban Ki-moon.
Sjá blog-færslu Árna í heild sinni :
Hvarvetna í heiminum, hvort heldur sem er í Bandaríkjunum eða í Frakklandi, Kína eða Kóreu leita stjórnvöld leiða til þess að blása nýju lífi í kreppuhrjáð efnahagslífið. Athygli vekur að meira að segja nú þegar verulega kreppir að, þykir víðast hvar sjálfsagt að leita ýmiss konar grænna lausna.
(more…)
Sjálfbærni, ný tækni, ný sýn, Íslenska | Athugasemdir: 0 »