“Við verðum við að hafa trú á sjálfum okkur og ekki svíkja sjálf okkur. Það er mikilvægt öllum samfélögum – ekki einungis Íslandi. Allt sem er gott vex hægt og nýsköpun mun verða lykillinn að framtíðinni” segir Björk Guðmundsdóttir í viðtali við tímaritið Nordic Innovation (www.nordicInnovation.is).
Nordic Innovation er frítt veftímarit um nýsköpun, frumkvöðla og hönnuði á Norðurlöndunum. Klak – Viðskiptasmiðjan gefur út Nordic Innovation með það að leiðarljósi að auka faglega umræðu um verðmætasköpun á Norðurlöndunum. Þema tímaritsins að þessu sinni var “hljómur nýsköpunar” eða “the sound of innovation” og er m.a. fjallað um sprotafyrirtæki í tónlistargeiranum, Iceland Airwaves og Bergen sem tónlistarborg Noregs. Þá eru viðtöl við tónlistarkonuna Björk, danska jazzpíanistann Carsten Dahl og Hollywoodskáldið Veigar Margeirsson.
English, Fréttir, Hot Topics, Neisti : Vinnufundir, Sprotavöxtur - Sjálfbærni, Tengsl nýsköpunar og sjálfbærni, Tækni, tónlist og undur náttúrunnar, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

WWW.PHOTO.IS - Íslenskur myndabanki ©2006 Kjartan Pétur Sigurðsson
Málþing um framtíð Ólafsdals í Gilsfirði, haldið fimmtudaginn 23. apríl, sumardaginn fyrsta, í Dalabúð, Búðardal kl. 13:00-17:30
Málþingið er haldið í samvinnu við Landbúnaðarsafn Íslands á
Hvanneyri. Það er öllum opið en æskilegt að skrá sig fyrirfram.
af vef nat.is: Ólafsdalur í Dalasýslu er u.þ.b. 5 km langur suður úr innanverðum Gilsfirði. Þar er samnefndur bær, þar sem Torfi Bjarnason (1838-1915) stofnaði fyrsta búnaðarskóla landsins af eigin rammleik. Þessi skóli starfaði á árunum 1880-1907, þegar hið opinbera tók við búnaðarfræðslunni.
Torfi var mesti landbúnaðarfrömuður sins tíma og lagði mikið til betri vinnubragða og tækniframfara. Hann smíðaði og flutti til landsins skozka ljái, sem voru kenndir við hann og nefndir Torfaljáir. Hann rak tóvinnslu og mikið var smíðað af jarðvinnsluverkfærum í Ólafsdal. Torfa og Guðlaugu Zakaríasdóttur, konu hans, var reistur minnisvarði í Ólafsdal árið 1955. Nú er bærinn í eyði en er skólasel Menntaskólans við Sund í Reykjavík.
Fréttir, Nýsköpunarlandið, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Lambagras landsins. Kort Náttúrufræðistofnunar Íslands af útbreiðslu Lambagrass

Lambagras. Harðær urt. Vex í hnöppum uppi á öræfum og í erfiðum jarðvegi. Mynd a vef flóru Íslands
Stefna Vísinda- og tækniráðs – drög
Starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs birta hér með tillögur að stefnu ráðsins fyrir árin 2009 til 2012. Nefndirnar hafa haft langtímauppbyggingu rannsókna og nýsköpunar að leiðarljósi í vinnu sinni. Þær munu skila tillögunum í hendur nýs Vísinda- og tækniráðs sem tekur við í vor. Nýja ráðið fær tillögurnar til umfjöllunar og notar við að móta stefnu sína.
Nefndirnar hafa unnið tillögurnar í víðtæku samráði og hafa meðal annars haldið þrjá opna fundi um stefnumótunina. Áhugasömum er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og nefndirnar munu taka mið af athugasemdunum við endanlegan frágáng tillagnanna.
Drögin að stefnu má finna hér.
Vinsamlega sendið athugasemdir í síðasta lagi mánudaginn 20. apríl á netfangið: sunna.vidarsdottir@mrn.stjr.is
Sjá nánar
http://www.vt.is/fundargatt-nefnda/fundargatt-sameiginlegra-funda/nr/1818/
Fréttir, Nýsköpunarlandið, Vaxtarskilyrði sprota, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

Ísafjörður í blárri móðu fjarlægðar og drauma
Spennandi ráðstefna um nýsköpun og ferðaþjónustu verður haldin á Ísafirði í lok mánaðarins, en skráning og bókun á flugi er hafin, á heimasíðu ferðamálasotuf. Á vefnum er líka tilkynnt um styrki til uppbyggingar sjálfbærrar ferðaþjónustu, sjá neðar í þessari færslu. Nú þarf að huga til framtíðar og undirbúa sig í tíma! Og uppgötva kosti innanlandsflugsins!
Norræn ráðstefna á Ísafirði
Iðnaðarráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Norræna Nýsköpunarmiðstöðin, í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina, efna þann 28. apríl næstkomandi til norrænnar ráðstefnu á Ísafirði sem fengið hefur heitið Nordic Tourism. Ráðstefnustjóri er Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.
Á ráðstefnunni verður áhersla lögð á nýsköpun í ferðaþjónustu, uppbyggingu áfangastaða og viðbrögð ferðaþjónustunnar við efnahagserfiðleikum. (more…)
Fréttir, Nýsköpunarlandið | Athugasemdir: 0 »

Græðlingur 3 - Ég læri um fræ, rót og stofn. Náms-bæklingur Námsgagnastofnunar, sjá nams.is
Tilkynning frá formanni Sprotaþings Íslands og Klaks, dr. Eyþóri Ívari Jónssyni, um ráðstefnu þann 3. apríl n.k. um sprotajarðveg Íslands:
Um Sprotaþing Íslands og Seed Forum Iceland
Seed Forum Iceland ráðstefnan er rekin af Spotaþingi Íslands en er ráðstefnurnar eru haldnar í nánu samstarfi við Seed Forum International sem heldur utan um fjárfestingarþing í 19 löndum. Reykjavík var þriðja borgin sem Seed Forum var haldið í, á eftir Osló og London, og hefur jafnan verið notað sem fordæmi fyrir Seed Forum í öðrum löndum. Stjórnarformaður Sprotaþings Íslands á hverjum tíma hefur einnig hjálpað til við að byggja upp hin alþjóðlegu samtök. Stjórnarformaður Sprotaþings Íslands er Eyþór Ívar Jónsson.
Fyrsta Seed Forum þingið í Reykjavík var haldið þann 28. apríl 2005. Þingið 3. apríl næstkomandi er níunda þingið sem haldið er hér á landi. Íslensk fyrirtæki sem kynnt á Seed Forum Iceland eru m.a.:
AGR, Bio-Gels, CCP, GloboDent, Green Diamond, Orf Líftækni, Simdex, 3-plús, Stiki, Caoz, Mentis Cura, EcoProcess, Eykur, Genís, Lyfjaþróun, Mentor, Gogogic, Zemetech, Kine, Vdeca, A-Game Company, Carbon Recycling International, Eff2, Accel Jet, Hersir Investment, Mind, Trackwell, Gogoyoko, Marimo og Clara. (more…)
Fréttir, Tengsl nýsköpunar og sjálfbærni, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Í dag á milli klukkan 9.30 og 12.30 er í Norræna Húsinu ráðstefna um tísku og sjálfbærni, með þátttöku Kristínar Völu Ragnarsdóttur, nýja forseta verk- og náttúrufræðisviðs Háskólans en hún er sérfræðingur í sjálfbærri þróun, með Ann Thorpe, sem við kynntum í gær, sem skrifaði sjálfbærniatlasinn, og Karin Stenmar, einn af stofnendum Dem Collective og Malin Eriksson, einn stofnenda Hreinna Klæða. Ráðstefnan er á dagskrá Norræna tískutvíæringsins
Tíska snýst ekki einungis um ytra útlit, gæði né verðmiða. Tískuiðnaðurinn er einn mengaðasti iðnaðurinn í heiminum í dag. Hönnuðir og framleiðendur þurfa því að horfast í augu við samfélagslega ábyrgð sína í framleiðsluferlinu. Svo tískuhönnun geti talist sjálfbær þarf að taka tillit til margra þátta s.s. sanngjarnra viðskiptahátta, lífræns fatnaðar, dýraverndar og þróun textíls.
Þeir fyrirlesarar sem taka þátt í ráðstefnunni eru sérfræðingar á sínu sviði og munu varpa ljósi á margvíslegar hliðar er snerta sjálfbæra fataframleiðslu og hönnun. (more…)
Fréttir, Lífhermun og sjálfbær hönnun, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Hönnunardagar í Reykjavík verða dagana 26-29 mars, þessir dagar hafa hlotið nafnið Hönnunarmars eða e: Design March, sjá vef Hönnunarmiðstöðvarinnar
Hönnunarmiðstöð stendur í fyrsta sinn í ár fyrir hönnunardögum undir heitinu HönnunarMars sem mun verða árlegur viðburður. Dagskrá fyrsta HönnunarMarsins er glæsileg og eru yfir 150 viðburðir í boði af eins fjölbreyttum toga og víðfeðmi hönnunar gefur tilefni til. (more…)
Fréttir, Lífhermun og sjálfbær hönnun, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Í dag klukkan tólf til eitt heldur Anne Thorpe fyrirlestur um hönnun sem aðgerð (pólitísk aðgerð?).
Anne hefur rannsakað þróun sjálfbærra sjónarmiða í hönnun og beitingu hönnunar í uppbyggilegar aðgerðir seinna ára og skrifað bók um efnið, The Designer’s Atlas of Sustainability. Hún kennir við arkitektúrskólann Bartlett við University College of London og Open University í Bretlandi. Anne er á Íslandi í tilefni af Norræna tískutvíæringurinn í Norræna húsinu. The Designer’s Atlas of Sustainability : http://www.designers-atlas.net blog: http://designactivism.net
Fyrirlesturinn er haldinn í Opna Listaháskólanum, að Skipholti 1, stofu 113. Aðgangur er opinn öllum og ókeypis.
Lífhermun og sjálfbær hönnun, Íslenska | Athugasemdir: 0 »
Norræni tískutvíæringurinn hefst í dag. Um er að ræða samstarf tísku- og hönnunargeira Íslands, Færeyja og Grænlands.
Mikið verður um dýrðir og í dag ríður Karl Aspelund á vaðið með fyrirlestur á ensku: Hvað þarf að kenna, hvað þurfum við að læra varðandi sjálfbærni í fatahönnun og klæðaburði. Fyrirlesturinn er klukkan 12-13 í Norræna Húsinu, aðgangur opinn og ókeypis.
Í dag klukkan 17.00 heldur svo Kristine Jensen landslagsarkitekt fyrirlestur um að fanga anda staðar í hönnun, einnig í Norræna húsinu.
Nánar um hátíðina á: http://nordicfashionbiennale.com og á vef Hönnunarmiðstöðvar Íslands (more…)
Fréttir, Lífhermun og sjálfbær hönnun, Íslenska | Athugasemdir: 0 »

íslensk hæna af vef henni til heiðurs: www.islenskarhaenur.is
Gulleggið 2009
Dómnefnd Frumkvöðlakeppni Innovit 2009 hefur lokið við að fara yfir allar viðskiptaáætlanir sem bárust í frumkvöðlakeppnina Gulleggið 2009. Tíu viðskiptaáætlanir eru komnar í úrslit og verða þær kynntar fyrir yfirdómnefnd og gestum Hugmyndaráðuneytisins næstkomandi laugardag.
Dagskrá hefst kl. 16:30 og er eftirfarandi:
* Ávarp borgarstjóra
* Andri Heiðar Kristinsson, Innovit
* Guðjón Már Guðjónsson, Hugmyndaráðuneytið
* Þátttakendur kynna 10 efstu viðskiptahugmyndirnar
* Verðlaunaafhending
Einstakt tækifæri til þess að hitta á nýjustu sprotafyrirtæki landsins!
Fréttir, Nýsköpunarlandið, Íslenska | Athugasemdir: 0 »