Hljómur nýsköpunar

“Við verðum við að hafa trú á sjálfum okkur og ekki svíkja sjálf okkur. Það er mikilvægt öllum samfélögum – ekki einungis Íslandi. Allt sem er gott vex hægt og nýsköpun mun verða lykillinn að framtíðinni” segir Björk Guðmundsdóttir í viðtali við tímaritið Nordic Innovation (www.nordicInnovation.is).

Nordic Innovation er frítt veftímarit um nýsköpun, frumkvöðla og hönnuði á Norðurlöndunum. Klak – Viðskiptasmiðjan gefur út Nordic Innovation með það að leiðarljósi að auka faglega umræðu um verðmætasköpun á Norðurlöndunum. Þema tímaritsins að þessu sinni var “hljómur nýsköpunar” eða “the sound of innovation” og er m.a. fjallað um sprotafyrirtæki í tónlistargeiranum, Iceland Airwaves og Bergen sem tónlistarborg Noregs. Þá eru viðtöl við tónlistarkonuna Björk, danska jazzpíanistann Carsten Dahl og Hollywoodskáldið Veigar Margeirsson.


Sprotaþing og Seed forum Iceland ráðstefna 3. apríl

 Græðlingur 3 - Ég læri um fræ, rót og stofn. Náms-bæklingur Námsgagnastofnunar, sjá nams.is

Græðlingur 3 - Ég læri um fræ, rót og stofn. Náms-bæklingur Námsgagnastofnunar, sjá nams.is

Tilkynning frá formanni Sprotaþings Íslands og Klaks, dr. Eyþóri Ívari Jónssyni, um ráðstefnu þann 3. apríl n.k. um sprotajarðveg Íslands:

Um Sprotaþing Íslands og Seed Forum Iceland

Seed Forum Iceland ráðstefnan er rekin af Spotaþingi Íslands en er ráðstefnurnar eru haldnar í nánu samstarfi við Seed Forum International sem heldur utan um fjárfestingarþing í 19 löndum. Reykjavík var þriðja borgin sem Seed Forum var haldið í, á eftir Osló og London, og hefur jafnan verið notað sem fordæmi fyrir Seed Forum í öðrum löndum. Stjórnarformaður Sprotaþings Íslands á hverjum tíma hefur einnig hjálpað til við að byggja upp hin alþjóðlegu samtök. Stjórnarformaður Sprotaþings Íslands er Eyþór Ívar Jónsson.

Fyrsta Seed Forum þingið í Reykjavík var haldið þann 28. apríl 2005. Þingið 3. apríl næstkomandi er níunda þingið sem haldið er hér á landi. Íslensk fyrirtæki sem kynnt á Seed Forum Iceland eru m.a.:

AGR, Bio-Gels, CCP, GloboDent, Green Diamond, Orf Líftækni, Simdex, 3-plús, Stiki, Caoz, Mentis Cura, EcoProcess, Eykur, Genís, Lyfjaþróun, Mentor, Gogogic, Zemetech, Kine, Vdeca, A-Game Company, Carbon Recycling International, Eff2, Accel Jet, Hersir Investment, Mind, Trackwell, Gogoyoko, Marimo og Clara. (more…)


Skortir okkur kannski þekkingu? Gríðarlega upplýsandi grein

Jón Örn Pálsson rannsakar sjávarlífið. Mynd af vef tálknfirðings.

Jón Örn Pálsson rannsakar sjávarlífið. Mynd af vef tálknfirðings.

Jón Örn Pálsson, verkefnisstjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða skrifar á vef atvinnuþróunarfélagsins mjög gagnrýna og upplýsandi grein um stöðu mála í dag: hvernig okkur skortir þekkingu á raunverulegum aðstæðum til atvinnusköpunar og af hverju verður að styðja betur við frumkvöðlarannsóknir á auðlindum. Hann segir að sjálfbærni sé töfraorð til framtíðar, hann skýrir forsendur fjárfestinga í bláskeljabransanum og fer yfir stöðuna með mikilli yfirsýn, reynslu og þekkingu:


Í meginatriðum eru aðeins þrjár aðferðir við að skapa atvinnu og verðmæti. Það er í fyrsta lagi með því að nýta náttúruauðlindir eingöngu, í öðru lagi með því að nýta þekkingu eina og sér og í þriðja lagi má skapa störf með því að blanda þessum tveimur þáttum saman. Nýting náttúruauðlinda leiðir til þekkingar á verklagi og skapar reynslu sem er miðlað milli kynslóða án þess að skólabókarlærdómur komi þar nærri. Vestfirðingar hafa lært að lifa af í sínu umhverfi gegnum aldirnar og hefur nýting náttúruauðlinda svæðisins byggst á reynslu á tilteknu verklagi. En þetta dugir ekki lengur.

Í kvöld og á laugardagskvöld: Fiskahljóð, kveðskapur, nýsköpun

Steindór Andersen kvæðamaður krunkar við Jónsa í Sigurrós

Steindór Andersen kvæðamaður krunkar við Jónsa í Sigurrós

Umræðuvettvangurinn Spegill fortíðar- silfur framtíðar kynnir tvær uppákomur, aðra í kvöld í Reykjavík, hina á Norðfirði á laugardaginn. Í kvöld mun Ágúst Georgsson, fagstjóri Þjóðháttasafnsins halda fyrirlesturinn : Fiskurinn hefur fögur hljóð – fiskveiðar, bátar og veiðafæri frá öndverðu til loka 19.aldar. Síðan mun Steindór Andersen kveða við haf og strönd. Það er hátíð í hvert sinn sem Steindór kveður og tilefni til að leggja leið sína í Sjóminjasafn Reykjavíkur, Víkinni við Grandagarð 8 í Reykjavík. Í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan átta. Allir velkomnir, kaffi á könnu og opið fjörlegum umræðum.

Í Egilsbúð á Norðfirði á laugardaginn hefst síðan mjög metnaðarfull dagskrá Spegilsins þar sem m.a. er velt fyrir sér sögu vitans og því hvað Austfirðingar eiga:

Dagskrá:
Kl. 12:30 Setning málþings
Kl. 12:40 Vitar og nýsköpun- hvernig nýta grannþjóðir okkar vita og
strandmenningu? Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins
Kl. 13:10 Saga vitans á Austfjörðum. Kristján Sveinsson, sagnfræðingur hjá
Siglingastofnun
Kl. 13:00 Hvað eiga Austfirðingar? Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur (more…)


Uppgangur í atvinnulífi á Tálknafirði

Hliðstæð baðsvæði: heit og köld með útsýni. Sjá sundlaugar.is

Hliðstæð baðsvæði: heit og köld með útsýni. Sjá sundlaugar.is

Á vefnum Talknafjordur.is segir frá uppgangi á staðnum: Dýrfiskur ehf. byrjar seiðaeldi í Tálknafirði. Í liðinni viku voru flutt voru flutt 250 þús. seiði af regnboga í fiskeldisstöðina í Botni í Tálknafirði. Fyrirtækið hefur tekið eldsstöðina á leigu og mun á næstu mánuðum auka starfsemina í Botni.  Seiðin verða  síðan flutt í sjóeldiskvíar í Dýrafirði næsta sumar. Starfsemin í Tálknafirði mun skapa 1-2 stöðugildi fyrst í stað, en áætlanir eru um að byggja upp rekstrarhæfa einingu sem mun skapa 20-30 stöðugildi, segir Jónatan Þórðarson sem veitir starfseminni forstöðu.

Á vefnum kemur líka fram að meginuppistaðan í atvinnulífinu á Tálknafirði hafi verið fiskvinnsla og er enn. “Mikill fjöldi smábáta kemur til Tálknafjarðar á hverju sumri. Fjölbreytnin í atvinnulífinu er þó stöðugt að aukast og er mestur vöxtur í ferðamannaiðnaðinum. Tálknafjörður er þátttakandi í Fjord Fishing verkefninu sem notið hefur mikilla vinsælda. Auk þess eru á staðnum öflug trésmiðja og bleikjueldi.”


Vör: Líf svifþörunga og dýrasvifs

Erla var þátttakandi í samræðu Neista á vegum Náttúra.info, H.R. og Bjarkar Guðmundsdóttur

Erla Björk, sjávarrannsóknasetrinu Vör, sem er spennandi rannsóknarstofnun. Erla Björk var þátttakandi í samræðu Neista á vegum Náttúra.info, H.R. og Bjarkar.

Mánudaginn 23. febrúar kl.15 flytur Erla Björk Örnólfsdóttir erindi í Ásgarði á Hvanneyri. Erindið nefnist Vör – Sjávarrannsóknasetur við Breiðafjörð – Starfsemi og stefna. Vör er sjálfseignarstofnun sem vinnur að rannsóknum á lífríki Breiðafjarðar. Rannsóknasetrið var stofnað 12. maí 2006 og er því að verða þriggja ára. Í erindinu verður stuttlega gerð grein fyrir starfsemi setursins. Greint verður frá þeim rannsóknarverkefnum sem unnið er að, m.a. á svifþörungum og dýrasvifi. Fjallað verður um þá anga starfseminnar sem tengjast þekkingarmiðlun og hlutverk setursins.
(more…)


Heimavinna í boði: prjón prjón!

Mark Fast - knittwear collection

Mark Fast - prjónalína

Vef Náttúru.info barst bréf með fyrirspurn um íslenskan starfskraft en bresk prjónalína auglýsir eftir prjóniðkendum á Íslandi fyrir nýju fínu prjónalínuna sína en við seljum það ekki dýrara en við keyptum það:


Þættir um íslenska frumkvöðla

Frumkvöðull

Frumkvöðull

Ný sjónvarpsþáttaröð á Ínn tv um íslenska frumkvöðla. Hér er slóð á þættina: http://inntv.is/Horfaáþætti/Frumkvöðlar/tabid/655/Default.aspx

Umsjónarkona er Elínóra Inga Sigurðardóttir, sem sjálf er frumkvöðull og var formaður frumkvöðla og uppfinningamanna 1998-2007 en stofnaði þá KVENN, félag kvenna í nýsköpun, sjá http://nattura.info/article/kvenn-tengslanet/

Elínóra býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á málefnum nýsköpunar hérlendis og erlendis og þeir sem vilja nánari upplýsingar eða vilja bjóða sig fram í þættina eru hvattir til þess að hafa samband við hana í gegnum uppfinning@gmail.com



Sjálfbær nýsköpun

Björk kynnir Kalda í lok góðs vinnufundar um nýsköpun og sjálfbærni í október 2008

Björk kynnir Kalda í lok góðs vinnufundar um nýsköpun og sjálfbærni í október 2008. Mynd: Morgunblaðið.

Nýsköpun er eitt af þeim orðum sem hressir aðeins kreppuna, sjá umræðu um gildi nýsköpunar hér að neðan. Í Fréttablaði dagsins er lítill kálfur sem ber nafnið Nýsköpun og þar má finna góðar fréttir af ýmsum sprotum sem eru Nátturu.info kunnugir; (more…)


Góðar fréttir: Áfram alvöru nýsköpun

taugafrumur_margar-1

Margar taugafrumur saman. Minnisrannsóknir. Af vísindavef H.Í.

Í dag kynnti Tækniþróunarsjóður starfsemi sína í Ráðhúsi Reykjavíkur. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hélt tölu og Sigurður Björnsson starfsmaður sjóðsins kynnti nokkur sprotafyrirtæki sem sjóðurinn hefur styrkt í gegnum árin. Össur minnti á að Valgerður Sverrisdóttir hefði komið þessum sjóð á fót fyrir fimm árum og væri það vel gert af henni. Hann vildi styrkja hann áfram, enda liti hann á sig sem sprotamálaráðherra, og dreymdi að vísu líka um að verða olíumálaráðherra. Hann fór yfir stöðu mála á Íslandi og ræddi um að menning og náttúra væru undirstaða ferðamála. Hann minntist ekkert á samninga um álver. En hann færði þrjár góðar nýsköpunarfréttir. Í fyrsta lagi að nú væri búið að reisa við nýsköpunarsjóðinn Frumtak og að Eggert Classen myndi stjórna honum áfram. (more…)


Í dag: Tækniþróun og sprotavöxtur ! og vonandi líka: heildræn, græn og ný tilraun til endurbóta

recyclewithearthÁ nýju ári virðist vera uppgangur í tækniþróun, nýsköpun og sprotavexti á Íslandi. Og vonandi að sjálfbærnin og fjölbreytileikinn séu leiðarljós, því án þess má nú víst sprotavöxturinn sín lítils í uppbyggingu Íslands. Nýsköpun og sprotavöxtur verður að vera hluti af heildrænum endurbótum, ábyrgum og lífvænlega grænum. Ef við styrkjum skapandi tækniþróun og fjölbreytilegan sprotavöxt, hverja einstaka nýsköpunartilraun í alvörunni, og ef við á sama tíma og um leið gleymum ekki skilyrðunum og tengslunum við aðra þætti uppvaxtar á Íslandi í sjálfbærri þróun, við ábyrga og græna viðskiptahætti, þá gæti leið okkar upp úr erfiðleikunum verið til eftirbreytni og árangur okkar leiðarljós.

Fréttatilkynning frá Rannís: Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kynnir nýjar áherslur Tækniþróunarsjóðs við opnun kynningar á starfsemi sprotafyrirtækja í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 9. janúar kl. 14:00.

Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi sprotafyrirtækja og opinberan
stuðning við nýsköpun. (more…)