Vöruþróun á Vestfjörðum

454238aFrá mbl.is : hvatt_til_voruthrounar_a_vestfjordum

Vöruþróun á Vestfjörðum er verkefni á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð sem fer af stað í ár. Er verkefnið, að sögn Bæjarins besta, ætlað starfandi fyrirtækjum á Vestfjörðum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Þannig er markmið verkefnisins m.a. að þróa þjónustu eða vöru á innanlandsmarkað eða til útflutnings, að veita faglegan og fjárhagslegan stuðning við þróun á þjónustu eða vöru og að koma samkeppnishæfri vöru eða þjónustu á markað innan 18 mánaða frá upphafi verkefnisins.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 12. janúa


Niðurskurður í nýsköpun

Í Morgunblaðinu er í dag birt frétt um erfiða stöðu Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks, en þeir sjóðir eru eða voru mikil styrkjastoð nýsköpunar á Íslandi og því eru þetta mjög slæmar fréttir:

„Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti núna. Við vitum ekki hvar við stöndum,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs og stjórnarformaður Frumtaks, um áformað afnám laga um ráðstöfun söluandvirðis Landssímans. Alls átti Nýsköpunarsjóður að fá 2,5 milljarða af andvirðinu. Þar af runnu 1.000 milljónir til sjóðsins árið 2005. 1.500 milljóna viðbótarframlag átti að koma til 2007-2009 til að standa undir hlutdeild sjóðsins í stofnun nýrra samlagssjóða með lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestum í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. 100 milljónir af þessu hafa skilað sér.

„Við trúum því ekki að ríkisstjórnin ætli að hætta við að standa við þessi framlög til nýsköpunar í landinu. Hafi einhvern tíma verið þörf á því, þá er það núna. Við finnum fyrir gríðarlegri eftirspurn eftir þátttöku bæði Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks í verkefnum.“ (more…)


Styrkur Tækniþróunarsjóðs til vistvænna verkefna

Halla Jónsdóttir, verkefnisstjóri umhverfis- og orkutæknisviðs nmi

Halla Jónsdóttir, verkefnisstjóri umhverfis- og orkutæknisviðs nmi

Á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er með stolti sagt frá fjórum verkefnum sem hafa verið unnin með þátttöku miðstöðvarinnar og sem öll eru vistvæns eðlis :

Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákvað á fundi sínum þriðjudaginn 25. nóvember 2008 að gengið skyldi til samninga um stuðning úr sjóðnum við 18 ný verkefni. Af þessum 18 verkefnum eru þrjú verkefni með þátttöku Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands: Íblöndun vetnis í dísilskipsvélar, Eldsneyti úr innlendu hráefni og Hvatar og ferli til efna- og eldsneytisframleiðslu. Að auki var samþykkt að veita forverkefnisstyrk í verkefnið Orkuframleiðsla með seltuvirkjunum. Íblöndun vetnis í dísilskipsvélar (more…)


Sjálfbærni á tímamótum

Félag umhverfisfræðinga efnir til málþings þriðjudaginn 2. des. kl. 15:00 – 17:30. Málþingið er haldið á Hótel Sögu, Yale-fundarsal, 2. hæð.

Á málþinginu verður rætt um mikilvægi sjálfbærrar þróunar í uppbyggingu þjóðfélagsins eftir áföll síðustu vikna. “Breyttar aðstæður í þjóðfélaginu kalla á endurskoðun þeirra gilda og hugmynda sem við byggjum samfélag og efnahagskerfi okkar á. Bent hefur verið á að í slíkri uppbyggingu sé nauðsynlegt að horfa til hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, þeirrar þróunar sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar, án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum. Þannig þurfi þróun efnahagslífs, félagslegur jöfnuður og umhverfisvernd að fara saman ef tryggja eigi öllum jarðarbúum og komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði.Í þeirri umræðu sem nú fer fram í samfélaginu er mikilvægt að auka skilning á raunverulegu gildi sjálfbærrar þróunar við uppbyggingu samfélagsins, ekki síst í nýsköpun.”

Dagskrá málþings

Setning
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi

Umhverfisvernd sem höfuðgildi Íslendinga – gott orðspor í umhverfismálum
Gunnar Hersveinn, rithöfundur (more…)


Vistvænt eldsneyti : stefnumót um sjálfbæra þróun

Möguleikar á framleiðslu vistvæns eldsneytis hér á landi verða til umfjöllunar á 10. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun.

Á fundinum mun Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri Vettvangs um vistvænt eldsneyti hjá Orkustofnun, veita yfirlit yfir þá mög

uleika sem eru fyrir hendi. K. C. Tran, forstjóri Carbon Recycling International, mun fjalla um framleiðslu fyrirtækisins á metanóli út koltvísýringsútblæstri frá jarðvarmavirkjunum.

Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 3. desember kl. 12:00 til 13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál.

(more…)


Íslenskar uppfinningar, konur í nýsköpun

Á morgun, fimmtudag 27.nóvember, kl.16, mun Orkuveita Reykjavíkur og KVENN, félag kvenna í nýsköpun skrifa undir samstarfssamning um að veita árlegar uppfinningarviðurkenningar og halda sýningar á íslenskum uppfinningum.

Athöfnin verður í Orkuveituhúsinu á Bæjarhálsi en þar hefur staðið yfir sýning á uppfinningum Leonardo Davinci og lýkur henni 28.nóv. Verður það hluti af dagskránni að skoða hana.


Markmiðið er að vekja athygli á uppfinningum, fólkinu á bak við þær og skapa góðar fyrirmyndir. Þannig hvetjum við fleiri til þess að virkja hugvitið.


Í þetta skiptið verða veittar tvær viðurkenningar til kvenna.
(more…)


Málþing um hlutverk vísinda í framtíð Íslands

Málþing á vegum Vísindafélags Íslendinga verður haldið í Tjarnarsali Ráðhúss Reykjavíkur, föstudaginn 28. nóvember, kl. 14-16 um hlutverk vísinda í framtíð Íslands. Spurt verður hvernig við getum tryggt gæði vísinda á tímum aðhalds í ríkisrekstri?

(more…)


Lifir landsbyggðin án kvenna?

Lifir landsbyggðin án kvenna? Kyn og byggðaþróun á Íslandi og á norðurslóðum

Á morgun, fimmtudaginn 13. nóvember, klukkan 16.00-1800 verður haldið málþing um kyn og byggðaþróun í Háskóla Íslands á vegum RIKK í stofu 101, Lögbergi.

Sérstakur gestur málþingsins er Dr. Rasmus Ole Rasmussen, prófessor í hagrænni landfræði við Roskilde Háskólann í Danmörku og forstöðumaður NORS, rannsóknastofnunar um byggðaþróun Norður – Atlantshafs svæðanna. Hann flytur fyrirlestur um nauðsyn þess að endurskoða gildandi áherslur í byggðaþróun til þess að stuðla að fjölbreyttu mannlífi á landsbyggðinni. Vífill Karlsson, Anna Karlsdóttir og Magnfríður Júlíusdóttir bregðast síðan við erindi hans út frá rannsóknum sínum á þróun atvinnulífs og búsetu á Íslandi.

Dagskrá:

Rasmus Ole Rasmussen, prófessor í hagrænni landfræði: Endurmótun áherslna í byggðaþróun: Kyn, lífsskeið og hreyfanleiki á hnattvæðingartímum.

Vífill Karlsson, lektor í hagfræði við Háskólann á Akureyri: Hagrænt mikilvægi kvenna.

Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í landfræði: Jafnrétti á jaðrinum. Kynjasögur úr stefnu og framkvæmd byggðamála.

Anna Karlsdóttir, lektor í landfræði og ferðamálafræði: Konur og auðlindanýting. (more…)


Um skýrslu um nýsköpun

Vefnum barst bréf frá Elínóru Ingu Sigurðardóttur hönnuði um skýrslu Evrópusambandsins um nýsköpun:

Í skýrslu (síðan 2004) frá Evrópusambandinu “Innovate for a competitive Europe” a new action plan for innovation, kemur fram að nýsköpun er grundvöllur endurnýjunar og atvinnusköpunar. Nýsköpun er viðskiptaferli og er því tæknileg nýsköpun aðeins einn liður þar í. Það þarf að styðja vel við ALLA nýsköpun og auka samvinnu ólíkra stétta. Það þarf meira flæði af fróðleik á milli aðila, það þarf að skiptast á reynslu og þekkingu. Það þarf að hvetja alla til nýsköpunar og gera þá sýnilega sem stunda hana með því að veita viðurkenningar og gera hinn einstaka hugvitsmann sýnilegan. Það þarf að skapa góðar fyrirmyndir.

(more…)


2020 Framtíðarsýn Vísinda- og Tækniráðs

Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum er mörkuð af Vísinda- og tækniráði.
Umfjöllun ráðsins er undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd.

Á grundvelli stefnu Vísinda- og tækniráðs 2006-2009 hafa vísindanefnd og tækninefnd ráðsins hrint úr vör greiningu á framtíðarsýn fyrir afmörkuð áherslusvið íslensks þjóðfélags þar sem vísindi, tækni og samfélag geta fléttast saman og skilað þjóðinni enn meiri ávinningi. Í febrúar tóku 90 manns úr ýmsum þjóðfélagshópum þátt í opinni hugarflugsráðstefnu um hvaða svið geti verið að ræða. Hafa nefndirnar unnið úr niðurstöðum ráðstefnunnar og orðið ásáttar um að flokka hugmyndirnar undir fjórar meginyfirskriftir:

1. Náttúruauðlindir, umhverfi og sjálfbær nýting
2. Heilsa, heilbrigði og hollusta
3. Styrkur smáþjóðar – menningar-, samfélags- og efnahagslegir innviðir
4. Viðskipti, fjármögnun og nýsköpun

Tilgangurinn með þessu verkefni er að stuðla að aukinni samvinnu milli vísinda- og tæknisamfélags og hagsmunaaðila – þ.m.t. fyrirtækja, háskóla, rannsóknastofnana, opinberra aðila, félagasamtaka og einstakra þjóðfélagshópa, svo og stjórnvalda. Þessir aðilar geta treyst stöðu sína með virkara samstarfi, ýtt undir nýsköpun í atvinnulífi og opinberri þjónustu og um leið eflt vísinda- og tæknirannsóknir hér á landi.

Sjá nánar: http://vt.is/framtidarsyn/


Bréf frá Sigríði Þormóðsdóttur um vistvæna nýsköpun

Heil og sæl.

Fyrst af öllu er frábært að þessi farvegur finnst fyrir þá umræðu sem nú þarf að eiga sér stað um nýsköpun – og þá einnig þá orku sem finnst hjá fólki sem getur og vill taka þátt.

Ég vil reyna að leggja mitt af mörkum. Ég er að vinna að nýsköpun á norrænum vettvangi, sem hefur hingað til þótt frekar púkalegt á Íslandi þ.e. norrænt – en ég held að íslendingar hafi ekki nýtt sér sem skildi þá möguleika sem að þar bjóðast. Það finnst bæði reynsla og þekking sem að er aðgengileg fyrir okkur. NICe er sjóður sem hægt er að sækja um styrki til fyrir norræn verkefni. Mín reynsla er sú að oft eru umsóknirnar frá Íslandi svo “fljótfærnislega” unnar að þó að maður sé að öllum vilja gerður að þá tapa þær í samkeppninni við aðrar. Þetta er mjög skiljanlegt þar sem að þekking og reynsla til að skrifa umsóknir er ekki hjá fyrirtækjunum eða hjá þeim sem eru að sækja um. Það væri t.d. mjög fínt ef að hægt væri að virkja kunnáttufólk úr bankakerfinu til að hjálpa litlum fyrirtækjum að komast í erlent samstarf og með þeim hætti auka nýsköpunarmátt sinn. (more…)