Categories
About
Radio nattura.info
Nattura.info is a desire for a renewal in discussion and debate on Icelandic resources; a desire for bridges between different spheres of knowledge, news, composition and productive ideas on self-sustainable evolution, on cluster of start-up companies and other ways than heavy industry
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- CoolPlanet 2009
- Draumalandið : Bíó
- Dreamland
- Eþikos
- Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
- Fornleifastofnun Íslands
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gagnlegar jarðfræðiglósur !
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hlutir: nýjasta tækni
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Hugmyndaráðuneytið
- Hveravefsíðan
- INCA- Iceland Nature Conservation Association
- Innovit
- Keilir
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Landvernd
- MATÍS
- Náttúra – the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrufræðistofa Kópavogs
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Rammaáætlun
- Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Seeds Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Stofnun Sæmundar Fróða
- Svartárkot
- Ted.com
- Tilraunavefur H.Í.
- Umhverfisstofnun
- UMÍS ehf. Environice
- VATNAVINIR
- Veðurstofa Íslands
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Nýsköpunarkeppni Vestfjarða og nýtt frumkvöðlasetur
Þættir um íslenska frumkvöðla
Ný sjónvarpsþáttaröð á Ínn tv um íslenska frumkvöðla. Hér er slóð á þættina: http://inntv.is/Horfaáþætti/Frumkvöðlar/tabid/655/Default.aspx
Umsjónarkona er Elínóra Inga Sigurðardóttir, sem sjálf er frumkvöðull og var formaður frumkvöðla og uppfinningamanna 1998-2007 en stofnaði þá KVENN, félag kvenna í nýsköpun, sjá http://nattura.info/article/kvenn-tengslanet/
Elínóra býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á málefnum nýsköpunar hérlendis og erlendis og þeir sem vilja nánari upplýsingar eða vilja bjóða sig fram í þættina eru hvattir til þess að hafa samband við hana í gegnum uppfinning@gmail.com
Sjálfbær nýsköpun

Björk kynnir Kalda í lok góðs vinnufundar um nýsköpun og sjálfbærni í október 2008. Mynd: Morgunblaðið.
Nýsköpun er eitt af þeim orðum sem hressir aðeins kreppuna, sjá umræðu um gildi nýsköpunar hér að neðan. Í Fréttablaði dagsins er lítill kálfur sem ber nafnið Nýsköpun og þar má finna góðar fréttir af ýmsum sprotum sem eru Nátturu.info kunnugir; (more…)
Lífpólitík í lýðræðissamfélagi

Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki í Háskóla Íslands, virtasti og virkasti siðfræðingur á Íslandi og sérfræðingur í siðfræði líf- og læknavísinda, heldur fyrirlestur á morgun, föstudag, 23. janúar, í fyrirlestraröð Siðfræðistofnunar Siðfræði og samfélag. Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15:15 í Þjóðarbókhlöðu og nefnist Lífpólitík í lýðræðissamfélagi.
(more…)
Lífhermunar-tengslanet og gagnagrunnar um sjálfbærar byggingar

Lífhermun er tækni sem fær næringu sína frá náttúruvirkni til að þróa nýja verkfræðilegar lausnir og iðnhönnun sem hermir eftir hönnun náttúrunnar. Lykilorð í þessu fagi og umræðu um það eru þessi: að herma eftir náttúrunni, módel, hönnun, vistfræðilegur grunnur, framleiðsluvara, ferli, svörunarkerfi, sjálfbærni, vistfræðileg viðmið, náttúruhönnun, líffræðileg hönnun, umhverfisleg sjálfbærni, iðhönnun, efnahagur, viðskipti, tækni, græn efnafræði. Sjá ensk orð og vídeo um lífhermun á http://www.wiserearth.org/aof/22
Sjá einnig:
Biomimetics Network for Industrial Sustainability promotes the application of Biomimetics (Design Inspired by Nature) in products and services and its use in education and training.
Biomimicry Institute naturalizes biomimicry in the culture by promoting the transfer of ideas, designs, and strategies from biology to sustainable human systems design.
Lífhermun
Lífhermun (biomimicry (orðsifjafræðilega frá gríska orðinu bios sem þýðir líf og gríska orðinu mimesis sem merkir að herma) er nýtt og spennandi áhugasvið og háskólafag sem hefur að markmiði að rannsaka leiðir náttúrunnar og hvernig megi herma eftir þeim til að finna lausnir á ýmsum skipulags- og samskiptavanda menningar okkar, með hönnun og verkfræðiferlum og á öðrum lausnarmiðuðum sviðum. Sjá ágætis upplýsingar um þetta fag á vef Lífhermunarstofnunarinnar, sem eru óháð samtök og á þeim vef má líka nálgast gagnagrunninn Ask Nature sem virðist vera nokku spennandi tæki og leifang: http://www.biomimicryinstitute.org/
Góðar fréttir: Áfram alvöru nýsköpun
Í dag kynnti Tækniþróunarsjóður starfsemi sína í Ráðhúsi Reykjavíkur. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hélt tölu og Sigurður Björnsson starfsmaður sjóðsins kynnti nokkur sprotafyrirtæki sem sjóðurinn hefur styrkt í gegnum árin. Össur minnti á að Valgerður Sverrisdóttir hefði komið þessum sjóð á fót fyrir fimm árum og væri það vel gert af henni. Hann vildi styrkja hann áfram, enda liti hann á sig sem sprotamálaráðherra, og dreymdi að vísu líka um að verða olíumálaráðherra. Hann fór yfir stöðu mála á Íslandi og ræddi um að menning og náttúra væru undirstaða ferðamála. Hann minntist ekkert á samninga um álver. En hann færði þrjár góðar nýsköpunarfréttir. Í fyrsta lagi að nú væri búið að reisa við nýsköpunarsjóðinn Frumtak og að Eggert Classen myndi stjórna honum áfram. (more…)
Í dag: Tækniþróun og sprotavöxtur ! og vonandi líka: heildræn, græn og ný tilraun til endurbóta
Á nýju ári virðist vera uppgangur í tækniþróun, nýsköpun og sprotavexti á Íslandi. Og vonandi að sjálfbærnin og fjölbreytileikinn séu leiðarljós, því án þess má nú víst sprotavöxturinn sín lítils í uppbyggingu Íslands. Nýsköpun og sprotavöxtur verður að vera hluti af heildrænum endurbótum, ábyrgum og lífvænlega grænum. Ef við styrkjum skapandi tækniþróun og fjölbreytilegan sprotavöxt, hverja einstaka nýsköpunartilraun í alvörunni, og ef við á sama tíma og um leið gleymum ekki skilyrðunum og tengslunum við aðra þætti uppvaxtar á Íslandi í sjálfbærri þróun, við ábyrga og græna viðskiptahætti, þá gæti leið okkar upp úr erfiðleikunum verið til eftirbreytni og árangur okkar leiðarljós.
Fréttatilkynning frá Rannís: Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kynnir nýjar áherslur Tækniþróunarsjóðs við opnun kynningar á starfsemi sprotafyrirtækja í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 9. janúar kl. 14:00.
Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi sprotafyrirtækja og opinberan
stuðning við nýsköpun. (more…)
Vöruþróun á Vestfjörðum
Frá mbl.is : hvatt_til_voruthrounar_a_vestfjordum
Vöruþróun á Vestfjörðum er verkefni á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð sem fer af stað í ár. Er verkefnið, að sögn Bæjarins besta, ætlað starfandi fyrirtækjum á Vestfjörðum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Þannig er markmið verkefnisins m.a. að þróa þjónustu eða vöru á innanlandsmarkað eða til útflutnings, að veita faglegan og fjárhagslegan stuðning við þróun á þjónustu eða vöru og að koma samkeppnishæfri vöru eða þjónustu á markað innan 18 mánaða frá upphafi verkefnisins.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 12. janúa
Niðurskurður í nýsköpun
Í Morgunblaðinu er í dag birt frétt um erfiða stöðu Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks, en þeir sjóðir eru eða voru mikil styrkjastoð nýsköpunar á Íslandi og því eru þetta mjög slæmar fréttir:
„Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti núna. Við vitum ekki hvar við stöndum,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs og stjórnarformaður Frumtaks, um áformað afnám laga um ráðstöfun söluandvirðis Landssímans. Alls átti Nýsköpunarsjóður að fá 2,5 milljarða af andvirðinu. Þar af runnu 1.000 milljónir til sjóðsins árið 2005. 1.500 milljóna viðbótarframlag átti að koma til 2007-2009 til að standa undir hlutdeild sjóðsins í stofnun nýrra samlagssjóða með lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestum í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. 100 milljónir af þessu hafa skilað sér.
„Við trúum því ekki að ríkisstjórnin ætli að hætta við að standa við þessi framlög til nýsköpunar í landinu. Hafi einhvern tíma verið þörf á því, þá er það núna. Við finnum fyrir gríðarlegri eftirspurn eftir þátttöku bæði Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks í verkefnum.“ (more…)
Straumlínulaga regluverk í líftækniumhverfi?
“Hér á landi er brýn þörf á rannsóknastofnun með þrautþjálfuðum og vel launuðum vísindamönnum, sem eru óháðir líftækniiðnaðinum og treysta má að geri óvilhallt mat á umsóknum um hagnýt líftækniverkefni. (more…)




