Eru þeir, sem þekkja gjár nýsköpunar, sáttir við nýja vísinda- og tæknistefnu?

Nýsköpunargjárnar þarf að brúa svo sprotarnir vaxi og nýsköpun á Íslandi verði sjálfbær. Mynd af peningagjánni á Þingvöllum er fengin á vef North adventure travel, nat.is

Nýsköpunargjárnar þarf að brúa svo sprotarnir vaxi og nýsköpun á Íslandi verði sjálfbær. Mynd af peningagjánni á Þingvöllum er fengin á vef North adventure travel, nat.is

Á morgun, 4. mars, frá 14 til 17 að Hótel Loftleiðum er fundur á vegum RANNÍS um vísinda- og tæknistefnu 2009 til 2012.

Sérlega jákvætt verður að teljast að hagsmunaaðilar og þeir sem hafa þekkingu á vísinda- og nýsköpunarumverfinu séu boðnir til samræðunnar um gildi nýrrar stefnu. Er þessi stefna rétt í ljósi sprotaþarfar og sjálfbærni? Er verið að huga að því að brúa svokallaðar nýsköpunarbrýr? Nýsköpunarbrýrnar þarf að brúa til að sprotarnir vaxi eitthvað af ráði og nýsköpun á Íslandi verði sjálfbær.

Í lok janúar efndu vísindanefnd og tækninefnd til opinna funda til að undirbúa nýja stefnu Vísinda- og tækniráðs. Nú boða nefndirnar til fundar þar sem fyrstu drög að nýrri stefnu verða kynnt. Markmiðið er að ræða stefnuna með hagsmunaaðilum, fá gagnrýni og ábendingar til að nota við lokaundirbúning stefnunnar.

Allir hagsmunaaðilar í vísindum, tækniþróun og nýsköpun eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á mótun nýrrar stefnu.

Dagskrá:

14:00 Kynning á drögum að stefnu Vísinda- og tækniráðs 2009 til 2012 (more…)


Sjálbær þróun- Styrkir: Auðlindir sjávar, samstarf þjóða, ferðaþjónusta, upplýsingartækni, nýsköpun og samgöngur

Brú yfir Jökulsá á Fjöllum. Styrkir til að byggja brýr, á milli Norðurlanda og í kollum

Styrkir til að byggja brýr, á milli Norðurlanda og í kollunum okkar. Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum, bylting síns tíma.

Byggðastofnun auglýsir verkefnastyrki NORA, verkefnastyrki Norrænu Atlantsnefndarinnar 2009 um samstarf á Norður-Atlantssvæðinu, en næsti umsóknarfrestur er mánudagurinn 2. mars.

Frá vef Byggðastofnunar: Norræna Atlantsnefndin (NORA) styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu í þeim tilgangi að byggja uppsterkt norrænt svæði og efla sjálfbæra þróun. Ein af leiðunum að þessu markmiði er að veita styrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna. Þátttakendur skulu vera frá a.m.k tveimur af fjórum NORA-löndum (Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs).

Hér með er auglýst eftir umsóknum og er þetta fyrri umsóknarfrestur árið 2009.

Sækja má um styrki til verkefna sem falla undir eftirtalin megin áherslusvið NORA: Auðlindir sjávar-Ferðaþjónusta-Upplýsingatækni-Samgöngur-Samstarf milli þjóða-Nýsköpun (more…)