Flokkar
Um vefinn
Radio nattura.info
Nattura.info er þrá eftir endurnýjun í umræðunni um auðlindir Íslands; þrá eftir brúm á milli sviða faglegrar umfjöllunar, frétta, fróðleiks og frjórra hugmynda um sjálfbæra þróun, sprota-vöxt og aðrar leiðir en stóriðju til virkjunar náttúruauðlinda og mannauðs
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- CoolPlanet 2009
- Draumalandið : Bíó
- Dreamland
- Eþikos
- Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
- Fornleifastofnun Íslands
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gagnlegar jarðfræðiglósur !
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hlutir: nýjasta tækni
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Hugmyndaráðuneytið
- Hveravefsíðan
- INCA- Iceland Nature Conservation Association
- Innovit
- Keilir
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Landvernd
- MATÍS
- Náttúra – the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrufræðistofa Kópavogs
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Rammaáætlun
- Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Seeds Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Stofnun Sæmundar Fróða
- Svartárkot
- Ted.com
- Tilraunavefur H.Í.
- Umhverfisstofnun
- UMÍS ehf. Environice
- VATNAVINIR
- Veðurstofa Íslands
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Núna: Ráðstefna um tísku og sjálfbærni
Í dag á milli klukkan 9.30 og 12.30 er í Norræna Húsinu ráðstefna um tísku og sjálfbærni, með þátttöku Kristínar Völu Ragnarsdóttur, nýja forseta verk- og náttúrufræðisviðs Háskólans en hún er sérfræðingur í sjálfbærri þróun, með Ann Thorpe, sem við kynntum í gær, sem skrifaði sjálfbærniatlasinn, og Karin Stenmar, einn af stofnendum Dem Collective og Malin Eriksson, einn stofnenda Hreinna Klæða. Ráðstefnan er á dagskrá Norræna tískutvíæringsins
Tíska snýst ekki einungis um ytra útlit, gæði né verðmiða. Tískuiðnaðurinn er einn mengaðasti iðnaðurinn í heiminum í dag. Hönnuðir og framleiðendur þurfa því að horfast í augu við samfélagslega ábyrgð sína í framleiðsluferlinu. Svo tískuhönnun geti talist sjálfbær þarf að taka tillit til margra þátta s.s. sanngjarnra viðskiptahátta, lífræns fatnaðar, dýraverndar og þróun textíls.
Þeir fyrirlesarar sem taka þátt í ráðstefnunni eru sérfræðingar á sínu sviði og munu varpa ljósi á margvíslegar hliðar er snerta sjálfbæra fataframleiðslu og hönnun. (meira …)
Hönnunarmars Hönnunarmiðstöðvar
Hönnunardagar í Reykjavík verða dagana 26-29 mars, þessir dagar hafa hlotið nafnið Hönnunarmars eða e: Design March, sjá vef Hönnunarmiðstöðvarinnar
Hönnunarmiðstöð stendur í fyrsta sinn í ár fyrir hönnunardögum undir heitinu HönnunarMars sem mun verða árlegur viðburður. Dagskrá fyrsta HönnunarMarsins er glæsileg og eru yfir 150 viðburðir í boði af eins fjölbreyttum toga og víðfeðmi hönnunar gefur tilefni til. (meira …)
Í hádeginu í dag: Höfundur Sjálfbærni-atlass heldur fyrirlestur um hönnun sem aðgerð
Í dag klukkan tólf til eitt heldur Anne Thorpe fyrirlestur um hönnun sem aðgerð (pólitísk aðgerð?).
Anne hefur rannsakað þróun sjálfbærra sjónarmiða í hönnun og beitingu hönnunar í uppbyggilegar aðgerðir seinna ára og skrifað bók um efnið, The Designer’s Atlas of Sustainability. Hún kennir við arkitektúrskólann Bartlett við University College of London og Open University í Bretlandi. Anne er á Íslandi í tilefni af Norræna tískutvíæringurinn í Norræna húsinu. The Designer’s Atlas of Sustainability : http://www.designers-atlas.net blog: http://designactivism.net
Fyrirlesturinn er haldinn í Opna Listaháskólanum, að Skipholti 1, stofu 113. Aðgangur er opinn öllum og ókeypis.
Í hádeginu í dag: Norræni tískutvíæringurinn: Sjálfbærni og hönnun
Norræni tískutvíæringurinn hefst í dag. Um er að ræða samstarf tísku- og hönnunargeira Íslands, Færeyja og Grænlands.
Mikið verður um dýrðir og í dag ríður Karl Aspelund á vaðið með fyrirlestur á ensku: Hvað þarf að kenna, hvað þurfum við að læra varðandi sjálfbærni í fatahönnun og klæðaburði. Fyrirlesturinn er klukkan 12-13 í Norræna Húsinu, aðgangur opinn og ókeypis.
Í dag klukkan 17.00 heldur svo Kristine Jensen landslagsarkitekt fyrirlestur um að fanga anda staðar í hönnun, einnig í Norræna húsinu.
Nánar um hátíðina á: http://nordicfashionbiennale.com og á vef Hönnunarmiðstöðvar Íslands (meira …)
Lífhermunar-tengslanet og gagnagrunnar um sjálfbærar byggingar

Lífhermun er tækni sem fær næringu sína frá náttúruvirkni til að þróa nýja verkfræðilegar lausnir og iðnhönnun sem hermir eftir hönnun náttúrunnar. Lykilorð í þessu fagi og umræðu um það eru þessi: að herma eftir náttúrunni, módel, hönnun, vistfræðilegur grunnur, framleiðsluvara, ferli, svörunarkerfi, sjálfbærni, vistfræðileg viðmið, náttúruhönnun, líffræðileg hönnun, umhverfisleg sjálfbærni, iðhönnun, efnahagur, viðskipti, tækni, græn efnafræði. Sjá ensk orð og vídeo um lífhermun á http://www.wiserearth.org/aof/22
Sjá einnig:
Biomimetics Network for Industrial Sustainability promotes the application of Biomimetics (Design Inspired by Nature) in products and services and its use in education and training.
Biomimicry Institute naturalizes biomimicry in the culture by promoting the transfer of ideas, designs, and strategies from biology to sustainable human systems design.
Lífhermun
Lífhermun (biomimicry (orðsifjafræðilega frá gríska orðinu bios sem þýðir líf og gríska orðinu mimesis sem merkir að herma) er nýtt og spennandi áhugasvið og háskólafag sem hefur að markmiði að rannsaka leiðir náttúrunnar og hvernig megi herma eftir þeim til að finna lausnir á ýmsum skipulags- og samskiptavanda menningar okkar, með hönnun og verkfræðiferlum og á öðrum lausnarmiðuðum sviðum. Sjá ágætis upplýsingar um þetta fag á vef Lífhermunarstofnunarinnar, sem eru óháð samtök og á þeim vef má líka nálgast gagnagrunninn Ask Nature sem virðist vera nokku spennandi tæki og leifang: http://www.biomimicryinstitute.org/











