
Þari (ljósmynd tekinn af www.ljosmyndari.is)
Fræknar konur fengu góða styrki til atvinnumála kvenna um daginn frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Fullt af frábærum hugmyndum sem skemmtilegt verður að fylgjast með í framtíðinni, þ.á.m. þaraböð á Reykhólum, baðhús á Stykkishólmi og umhverfisvænar byggingaeiningar.
tekið af vef atvinnumálakvenna.is;
Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutar 25 milljónum króna til atvinnumála kvenna
Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.
Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Nú eru til úthlutunar 25 milljónir króna. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna.
(more…)