Lykilatriði um Magmamálið. Ræða Jóns Þórissonar á blaðamannafundi um orkuaudlindir.is

Jón Þórisson teiknar upp aðalatriði Magma-málsins fyrir blaðamenn. Mynd: Lára Hanna

Á blaðamannafundi þar sem undirskriftasöfnun á orkuaudlindir.is var kynnt fyrir blaðamönnum, hélt Jón Þórisson, aðstoðarmaður Evu Joly, erindi þar sem hann varpaði ljósi á fréttnæmustu punktana úr ábendingunni sem hann og Björk og Oddný Eir sendu til Umboðsmanns Alþingis varðandi magma-málið. Erindið er brýnt og birtist hér í heil en það má einnig finna á síðu ítarefnis á www.orkuaudlindir.is

Það er mikið í húfi núna, salan á HS Orku til Magma Energy Sweden AB er um það bil að verða að raunveruleika.

Ef ekkert verður að gert þýðir að við afsölum okkur nýtingu mikilvægra auðlinda til  næstu 65 ára og jafnvel 130 ára

Helstu rök þeirra sem hlynntir eru málinu eru þau að við höfum sjálf ekki efni á því að eiga nýtingarréttinn, að nauðsynlegt sé að fá erlenda fjárfestingu inn í landið til þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu og að þetta ferli allt sé í samræmi við lög og reglur.

En er það svo?

Við höfum með ábendingu til umboðsmanns Alþingis vakið athygli á að við teljum ástæðu til þess að skoða stjórnsýsluákvarðanir í aðdraganda sölunnar og síðan sjálfan samninginn við Magma Energy Sweden AB.

Það er ljóst að söluferlið  hefur verið mjög ógagnsætt og umdeilt.

Rökstuddur grunur er um að hagsmuna almennings hafi ekki verið gætt  á fullnægjandi hátt og að málsmeðferð stjórnvalda samræmist ekki lögum og vönduðum stjórnsýsluháttum.

Við bendum umboðsmanni Alþingis á að ákvarðanir sem teknar hafa verið í aðdraganda þessa máls eru teknar af stjórnvaldi og stjórnmálamönum sem fá þungan áfellisdóm í rannsóknarskýrslu Alþingis. (meira …)


Í kvöld: Upp með fagurfræðina í stjórnmálum!

Hvað er fagurfræði? Mynd af wikipediu: Esthétique

Hvað er fagurfræði? Mynd af wikipediu: Esthétique

Fagurfræði er grein innan heimspeki sem rannsakar tengsl skynfæranna, innsæis og skynjunarinnar við heiminn og við aðra þætti dómgreindar okkar svo sem rökhugsun og dómgreind… eða eitthvað í þá átt…

Stefán Snævarr, prófessor í heimspeki við háskólann í Lillehammer í Noregi, flytur fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar og Félags áhugamanna um heimspeki miðvikudaginn 8. apríl kl. 20 í stofu HT-101 í Háskóla Íslands (Háskólatorgi). Fyrirlesturinn ber heitið „Niður með hugmyndafræði, upp með fagurfræði!“.

Í lestrinum hyggst Stefán færa rök fyrir því að takmarka beri hlutverk hugmyndafræði og hugmyndakerfa í allri stjórnmálaumræðu. Fyrir því færir hann margvísleg rök en einnig fyrir því að hugmyndafræði verði heldur ekki algjörlega úthýst þaðan. Í stað hennar boðar Stefán aukna hlutdeild hins „estetíska“ og sterkra tilfinninga í veröld stjórnmálanna, t.d. réttlætiskenndarinnar. Með því yrði ímyndunaraflinu einnig beitt í auknum mæli til þess að finna góða pólitíska kosti. Skáldskapurinn yrði þá að sama skapi metinn þar að verðleikum í þeim skilningi að hæfileikinn til þess að segja sögur um tiltölulega vel afmarkaða atburði leysti af hólmi öld stórsagnanna sem hugmyndafræðin byggir á. Eins og Stefán kemst að orði: „Skáldskapur og ljóðrænt líkingarmál er oft besta tækið til að varpa ljósi á djúpar og erfiðar tilfinningar, t.d. skelfingu helfararinnar.“

Nánari lýsingu á lestrinum er að finna hér fyrir neðan.

(meira …)


Árósarsamningurinn: Réttlætið undirbúið

Réttlætisgyðjan. Mósaíkmynd sem skýrir Platónskar pælingar um hið nýja ríki

Réttlætisgyðjan. Mósaíkmynd sem skýrir Platónskar pælingar um hið nýja ríki

Árósarsamningurinn fjallar meðal annars um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum,  sjá heimasíðu Árósasamningsins, bækling á ensku um Árósasamninginn. Auk skýrslu nefndar sem var skipuð til að fara yfir efni Árósasamningsins og meta hvaða áhrif hann hefði í för með sér hér á landi. Á vef utanríkisráðuneytisins segir frá starfshópi um undirbúning fullgildingar Árósasamningsins:

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Verkefni starfshópsins er að gera tillögu um hvernig best sé að tryggja almenningi aðgang að réttlátri málsmeðferð við fullgildingu Árósasamningsins hér á landi. Auk þess er starfshópnum falið að gera tillögu um frekari vinnslu málsins í kjölfarið, þ.e. samningu nauðsynlegra lagafrumvarpa. (meira …)


Hvað er virkt lýðræði ?

Hvað er virkt lýðræði?