Hljómur nýsköpunar

“Við verðum við að hafa trú á sjálfum okkur og ekki svíkja sjálf okkur. Það er mikilvægt öllum samfélögum – ekki einungis Íslandi. Allt sem er gott vex hægt og nýsköpun mun verða lykillinn að framtíðinni” segir Björk Guðmundsdóttir í viðtali við tímaritið Nordic Innovation (www.nordicInnovation.is).

Nordic Innovation er frítt veftímarit um nýsköpun, frumkvöðla og hönnuði á Norðurlöndunum. Klak – Viðskiptasmiðjan gefur út Nordic Innovation með það að leiðarljósi að auka faglega umræðu um verðmætasköpun á Norðurlöndunum. Þema tímaritsins að þessu sinni var “hljómur nýsköpunar” eða “the sound of innovation” og er m.a. fjallað um sprotafyrirtæki í tónlistargeiranum, Iceland Airwaves og Bergen sem tónlistarborg Noregs. Þá eru viðtöl við tónlistarkonuna Björk, danska jazzpíanistann Carsten Dahl og Hollywoodskáldið Veigar Margeirsson.


Neisti- vinnufundir

Vinnufundir Náttúra.info; Neisti, í samvinnu við Klak og Háskólann í Reykjavík, fóru fram þann 12. og 19. október sl. og var fylgt eftir með minni vinnufundum hvers málefnahóps og síðan á sameiginlegum póstlista.


Markáætlanir og svefn

Össur Skarphéðinsson mætti á fund hópstjóra vinnufunda Neista í gær til að ræða átta drög að breytingatillögum. Í dag er langur texti inn á heimasíðu hans um allt hans eigið starf, aðgangur frá eyjunni http://eyjan.is/goto/ossur/ Þar er meðal annars að finna þessi orð og spurning hvernig þau hafa áhrif á svefn okkar og drauma, en meðal fundarmanna í gær var einmitt Karl Ægir Karlsson sérfræðingur í svefnrannsóknum :


“Ekki má heldur gleyma algeru nýmæli sem við höfum ákveðið að setja á fót, beinlínis í framhaldi af hugmyndum sem komu úr vinnusmiðju Bjarkarhópsins. Nýmælið eru fjórar markáætlanir, sem Tækniþróunarsjóður kostar, og eiga að leiða til stofnunar öndvegissetra á fjórum sviðum: rannsókna á jarðhita, á sviði arkitektúrs og skipulagshönnunar, ferðaþjónustu einsog fyrr var sagt, og náttúrlega seturs sem einbeitir sér að því þróa innlenda orkugjafa fyrir bílaflotann, meðal annars fyrir tilstyrk orkulíftækni. Þessi vinna gengur vel, og mun fyrr en seinna ýta olíu af markaði af Íslandi sem orkugjafa. Þá getur Árni Finnsson til dæmis sofið rólegur.”


N e i s t i : Orka Íslands

Hér á eftir fara drög að tillögum til breytinga á orkustefnu Íslands, sem gerð var í eldheitri samræðu á vinnufundi Neista 19. október. Umsjón með samræðu og vinnslu útgangspunkta hafði Hlynur Stefánsson, Lektor og sviðsstjóri fjármála- og rekstrarsviðs í tækni- og verkfræðideild H.R

Mikilvægar aðgerðir og markmið í orkumálum á Íslandi

Í hnotskurn: Móta þarf heildar stefnumótun í orkumálum fyrir landið þar sem tekið er tillit til allra þátta sem snerta orkuvinnslu. Skoða þarf markvisst fjölbreyttari nýtingarmöguleika orku. Mikilvægt er að upplýst og ábyrg umræða eigi sér farveg í okkar þjóðfélagi til þess að skýra kosti og hagsmuni þjóðarinnar. Til þess þarf að aflétta upplýsingaduld um forsendur ákvarðanatöku í orkumálum.

1. Leita þarf fleiri leiða til að breyta þeirri orku sem þegar hefur verið virkjuð í verðmæti og fjölbreytt tækifæri fyrir þjóðina (more…)


Hagkerfið féll fyrir eigin hendi… en vistkerfin stóðust áhlaupið

Hér er áríðandi erindi Bergs Sigurðssonar sem hann hélt á vinnufundi Náttúra.info og Klaks í H.r. 19. október s.l. hér birt í heild sinni með góðfúslegu leyfi.

Jarðhitinn hefur verið þjóðinni afar dýrmætur og hitaveituvæðing síðustu aldar er án efa ein besta fjárfesting sem íslenskt samfélag hefur nokkru sinni ráðist í. Við Íslendingar erum, og við eigum að vera, stoltir af jarðvarmanum okkar og hvernig við framanaf nýttum hann til samfélagslegra þarfa. En hversu skynsamlegt er að nota jarðvarma til raforkuframleiðslu?

Að undanförnu hafa gengið á hamfarir í þjóðfélaginu. Allt sem áður var hugsað þarf að hugsa upp á nýtt. Sumt fær enn staðist en annað hefur glatað gildi sínu. Atburðir liðinna daga verða ekki aftur teknir og nánast allt þarf nú að skoðast í nýju ljósi. Hrunið varð verra en nokkurn gat órað fyrir en og enn sér ekki fyrir endann á afleiðingunum. Ekki liggur öll sökin hér heima enda um hnattrænan hagkerfisvanda að ræða, en sökum stærðar bankanna í samanburði við þjóðarskútuna varð höggið þyngra hér á landi en annarsstaðar. Allir hljóta að vera sammála um það að stjórnvöldum ber öllum ráðum að tryggja að annað eins og ámóta áfall megi undir engum kringumstæðum eiga sér stað aftur, a.m.k. ekki af mannanna völdum. Því má nefnilega ekki gleyma að atburðir sem dunið hafa á okkur eru af mannavöldum. (more…)


Neisti : Matvælamenning á Íslandi

Hér eru drög að breytingartillögum gerðum á vinnufundum Neista 12. og 19. október s.l. Umsjón með samræðu og vinnslu útgangspunkta hafði Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs H.R.

Mikilvæg tækifæri og markmið í matvælaframleiðslu Íslands
Í hnotskurn: Matvælaframleiðsla á Íslandi getur orðið mikilvæg stoð undir íslenskt hagkerfi á næstu árum. Framleiðslugeta og þekking er til staðar í matvælageiranum, en aukið samstarf og samráð þarf að eiga sér stað í tengslum við endursköpun framleiðslu- og þekkingarumhverfis og tengsla við aðra geira. Matvælaframleiðsla á Íslandi getur orðið þekkt fyrir gæði, hreinleika, sjálfbærni, lífræna framleiðslu, rekjanleika (uppruna), frumleika og gott siðgæði. Tækifæri Íslendinga í matvælaframleiðslu liggja helst á sviðum sjávarfangs, jarðhitaræktaðs grænmetis og ávaxta, lambakjöts auk annarrar gæða framleiðslu kjöts, sérstæðra mjólkurafurða og jurtalyfja. Matvælaiðnaður er sjálfbær grein sem getur verið lykill í því að byggja upp sjálfbært samfélag á Íslandi (more…)


Neisti : Ferðamál Íslands

Hér eru drög að tillögum Neistasamstarfs um breytingar í ferðamálamenningu Íslands. Umsjón með samræðu á vinnufundum og vinnslu tillagna hafði Ólafur Sveinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri, og naut aðstoðar Önnu Karlsdóttur ferðamálafræðings í H.Í.

Mikilvæg markmið og verkefni ferðamála á Íslandi

Í hnotskurn: Það þarf að viðurkenna ferðamál sem fjölþættan atvinnuveg í íslensku samfélagi. Það þarf að efla bæði hagnýtar og fræðilegar rannsóknir, grunn gagnaöflun og fagmennsku og samhliða að virkja hugarfarsbreytingar í átt til aukinnar samvinnu innan ferðamála þvert á hreppamörk og fagleg landamæri. Það þarf að styðja vel við allt ferli nýsköpunar til að stuðla að ríkulegri uppskeru og einfalda regluverk leyfisveitinga sem nú endurspeglar vanþekkingu á margþættu eðli greinarinnar. Markmiðunum verður aðeins náð með góðri samvinnu við stjórnvöld og samstöðu um hag heildarinnar af atvinnuátaki í ferðamálum. Kynna þarf nýtt uppgjör sem sýnir mikilvægi ferðamennskunnar fyrir tekjur og þjóðarbú ítarlega fyrir aðilum ferðaþjónustu (e. Tourism satellite account, sjá hagstofan.is) en jafnframt efla rannsóknir á grunni þess uppgjörs, sem frekar gæti skilgreint hagrænan ávinning greinarinnar á landsvísu.
(more…)


Neisti: Menntun

Hér eru birtar tillögur eða drög að breytingartillögum gerðum í kjölfar samræðu á vinnufundum Neista 12. og 19. október og í áframahaldandi samræðu þátttakenda á menntaborði vinnufundanna, sjá þátttakendur hér neðar í færslu. Umsjón með útgangspunktum hafði Páll Ásgeir Davíðsson, forstöðumaður Eþikos-Miðstöðvar Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar.

(mynd af snæuglu fengin á Vísindavef Háskóla Íslands)

Mikilvæg verkefni og markmið í menntamálum á háskólastigi á Íslandi

Í hnotskurn: Virkja þarf á markvissari hátt þá krafta og þekkingu sem íslenskar menntastofnanir búa yfir. Huga þarf að grunninnviðum menntastofnana með því að efla alþjóðlegar rannsóknir og endurskoða núverandi mats- og styrkjakerfi. Auka þarf samstarf á milli menntastofnana landsins og skapa fjölbreyttari vettvanga til rannsókna og náms fyrir innlenda sem erlenda aðila. Tryggja þarf sjálfstæði íslenskra menntastofnana gagnvart ráðandi markaðsöflum og hlúa að víðtækum tengslum þeirra við atvinnulíf og samfélagslega uppbyggingu.  Lagt er til að stofnuð verði stafræn gagnasöfn á sviði hugvísinda-, félagsvísinda- raunvísinda- og umhverfisrannsókna. (more…)


Neisti : Hönnun

Hér eru drög að tillögum um breytingar í málefnum hönnunar á Íslandi, unnar á vinnfundum Neista 12. og 19. október.

(myndin er af stólum Sveins Kjarvals)

Mikilvæg tækifæri og markmið í hönnun á Íslandi

Í hnotskurn: Íslensk hönnun býr yfir skapandi afli sem getur styrkt íslenskt samfélag og stuðlað að fjölbreyttu atvinnulífi. Öll nýsköpunarverkefni þarfnast hugvits og þekkingar hönnuða. Mikilvægt er að hönnuðir komi fljótt að verkefnum hvort sem það er hjá fyrirtækjum, hinu opinbera eða á öðrum vettvangi. Ríkjandi tilhneiging hefur verið að fá hönnuði of seint inn í ferli í stað þess að virkja reynslu þeirra á frumstigum þróunar vöru og verkefna. Þegar eru í gangi mörg áhugaverð verkefni, þar sem hönnuðir vinna að verkefnum sem tengjast íslenskri arfleið eins og söfnum, landbúnaðar- og matarmenningu, ferðaþjónustu og iðnframleiðslu. Mikilvægt er að styðja vel við þessi verkefni og leiða saman hönnuði, fjárfesta, viðskipta- og markaðsaðila til að skapa ný og margbreytileg tækifæri á Íslandi. (more…)


Neisti: Líftækni á Íslandi

Hér eru drög að tillögum til endurbóta á landslagi líftækni á Íslandi, en drögin voru unnin á vinnufundum Neista og í áframhaldandi samræðu.

Umsjón með samræðu og vinnslu útgangspunkta hafði Dr. Karl Ægir Karlsson, Lektor í tækni- og verkfræðideild H.R. sjá http://www.karlsstofa.is/?page_id=5

Mikilvæg verkefni og markmið í líftækniþróun á Íslandi

Í hnotskurn: Tryggja þarf fjárhagslegt, þekkingarlegt og reglugerðarlegt umhverfi líftæknifyrirtækja með stöðugum gjaldmiðli, styrkum innnlendum háskóladeildum og straumlínulaga regluverki. Endurskoða þarf kerfi skattaívilnunar og styrkjaveitinga og auðvelda aðgengi erlendra sérfræðinga til landsins. Beina þarf orkufyrirtækjum að sprotafyrirtækjum í líftækni og afnema ívilnanir fyrir þátttöku í orkufrekri stóriðju.
(more…)


Björk gefur Geir glóandi pakka

Frá Vísi.is

Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður afhenti Geir H. Haarde forsætisráðherra pakka í Stjórnarráðinu í gær með tillögum sem nýta má sprota- og þróunarfyrirtækjum til framdráttar. Með henni voru Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík og Oddný Eir Ævarsdóttir, ritstjóri náttúra.info.
„Þetta eru tillögur eða útgangspunktar um það sem fara má betur í reglugerðum og sjóðum til að greiða frekar götu nýsköpunar á Íslandi,“ segir Björk. „Þetta er skemmtilegt, það veitir ekkert af góðum hugmyndum núna,“ sagði Geir þegar hann hafði opnað pakkann og ekki kárnaði gamanið hjá fyrrverandi fjármálaráðherranum þegar Björk bætti því við að mikið af því sem verið væri að mæla með í þessum tillögum þyrfti ekki að kosta eyri. „Eitt af því sem mælt er með að gert verði er að ryðja úr vegi hindrunum og uppfæra regluverkið svolítið,“ segir Björk.
Tillögurnar eru afrakstur verkefnisins Neista sem Háskólinn í Reykjavík, Björk, Náttúra.info og Klak hafa unnið að. Svafa benti Geir á að pakkinn væri lítill en í upphafi hefðu fyrirtækin Össur og Marel verið hugmyndir sem hefðu getað rúmast í slíkum pakka.(jse).

http://www.visir.is/article/20081113/FRETTIR01/311448375