Hátækni á Íslandi

Fréttablaðið birtir Neista af neista á næstu dögum; útgangspunkta frá vinnufundum Neista, og samhliða birtast skýrslurnar á Nattura.info, auk frekari upplýsinga. Þetta eru útgangspunktar, drög að tillögum að breytingum kerfinu, svo að nýsköpun og sjálfbær þróun geti frekast orðið á Íslandi. Fyrstu drög varða hátæknina:

Mikilvæg verkefni og markmið í hátækniþróun á Íslandi
Í hnotskurn: Skapa þarf aðlaðandi alþjóðlegt starfsumhverfi, bæði lagalegt og samfélagslegt; Leggja áherslu á tengsl starfsumhverfis, menntunar og rannsókna; Styðja vel við allt ferli nýsköpunar til að stuðla að ríkulegri uppskeru. Markmiðum þessum verður aðeins náð með góðri samvinnu við stjórnvöld og því mikilvægt að þau séu vel upplýst um tækifæri hátæknisviðsins, sem ávalt horfir til framtíðar.

(more…)


Opið bréf til Ríkisstjórnar Íslands, með drögum að breytingartillögum

Björk Guðmundsdóttir afhenti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, lítinn gullpakka, með slaufu í fánalitunum, í gær 12. nóvember, 2008. Svafa Grönfelt, rektor Háskólans í Reykjavík, og ritstjóri Nattura.info, Oddný Eir, fylgdu Björku í Stjórnarráðið þar sem afhendingin á litla pakkanum fór fram. Í pakkanum voru drög að skýrslu um breytingartillögur um hvernig bæta megi jarðveg sprotafyrirtækja, nýsköpunarrannsókna og fjölbreyttrar og sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar á Íslandi. Þetta eru útgangspunktar fyrir frekari rannsókn á möguleikum og hindrunum sprotavaxtar og sjálfbærrar þróunar á Íslandi í átta málaflokkum. Meðfylgjandi var bréf til Ríkisstjórnar Íslands:

“Rannsóknar- og undirbúningsvinnan heldur áfram, í óbilandi trú á möguleikum Íslandsbyggðar, með þolinmæði og þrautseigju. Stefnumótunar- og uppbyggingarstarf á erfiðum tímum verður ekki unnið eingöngu af stjórnmálamönnum heldur í virkum tengslum við staðbundið reynsluafl og faglega þekkingu hvaðanæva úr samfélaginu. Breytingar á afstöðu og reglugerðarkerfum krefst síðan gríðarlegrar eftirfylgni inn í komandi tíma.” (more…)


Neisti af neista

Heitar laugar

Heitar laugar

Um vef nattura.info má segja, vegna fjölda fyrirspurna, að hann er vísir að sprotasafni og safni af upplýsingum um rannsóknir og framsækið starf á sviði nýsköpunar og sjálfbærni. Eftir fremsta megni verður sprotasafnið kynnt sem víðast og framgangsaðilum vísað á það. Hins vegar er Nattura.info hvorki fjárfestingar-, þróunar-, kynningar- né söluaðili.

Nattura.info berast margar góðar hugmyndir um sprotahugmyndir og fyrirtæki, um þekkingar- og tengslanet. Það er aldeilis gleðilegt að uppgötva hvað er margt búið að gera gott á Íslandi á undanförnum árum. En líka sorglegt til þess að vita hversu erfiður framgangur frumkvöðla hefur verið. Þó eru nokkur dæmi um að framgangan hafi tekist og það vel. Og þau dæmi gætu orðið mörg, ef við hlúum vel að hugmyndum, að jarðvegi og öðrum vaxtarskilyrðum.

Nattura.info er tilraun til að hlúa að þessum vaxtarskilyrðum, með því að beina athyglinni að þeim og hvetja til samræðu um þau. Vefnum er að verða leiðarvísir að upplýsingum um sprotafyrirtæki, nýsköpunartilraunir og rannsóknarverkefni, um umhverfismál, heildræna sýn og sjálfbæra þróun; um skapandi atvinnu-uppbygingu, um nýsköpunar- og þekkingarstofnanir, framgangs- og fjárfestingarstofnanir. Vefnum er að verða kortlagning á því landslagi sem nú þegar er í heimi náttúruverndar og nýsköpunar. En líka korlagning á því landslagi sem verður. (more…)