EÞIKOS -Miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 13. janúar kl. 12:00-13.15 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, Reykjavík sem ber yfirskriftina: Siðrof eða siðfrestir? Þjóð á krossgötum. Þar mun Dr. Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands flytja erindið Siðrof og samfélagsbreytingar, og Dr. Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, erindið Launhæðni, kaldhæðni og siðleysi. Á eftir verða umræður og í pallborði sitja Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir, alþingismenn og Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. (more…)
Categories
About
Radio nattura.info
Nattura.info is a desire for a renewal in discussion and debate on Icelandic resources; a desire for bridges between different spheres of knowledge, news, composition and productive ideas on self-sustainable evolution, on cluster of start-up companies and other ways than heavy industry
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- CoolPlanet 2009
- Draumalandið : Bíó
- Dreamland
- Eþikos
- Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
- Fornleifastofnun Íslands
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gagnlegar jarðfræðiglósur !
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hlutir: nýjasta tækni
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Hugmyndaráðuneytið
- Hveravefsíðan
- INCA- Iceland Nature Conservation Association
- Innovit
- Keilir
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Landvernd
- MATÍS
- Náttúra – the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrufræðistofa Kópavogs
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Rammaáætlun
- Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Seeds Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Stofnun Sæmundar Fróða
- Svartárkot
- Ted.com
- Tilraunavefur H.Í.
- Umhverfisstofnun
- UMÍS ehf. Environice
- VATNAVINIR
- Veðurstofa Íslands
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Össur skrifar um sprota, nýsköpun og annan iðnað en álver

Paul Hawken benti til dæmis á gríðarlega og ónýtta möguleika í glerframleiðslu hér á landi en um er að ræða nýja tegund gegnsæs glers fyrir grænar byggingar, sem framleiðir sólarorku
í tengslum við endurreisn Frumtaks, fjárfestingasjóðs og nýrra nýsöpunarstyrkja Tækniþróunarsjóðs, sem sagt var frá á Náttúra.info fyrir helgi. Hann ræðir líka um virkjun Þjórsár og hugsanlega aðra möguleika á nýtingu orkunnar en til álvers.
Heimskaffi í dag: framleiðsla íslenskrar hönnunar
Í dag, mánudaginn 12. janúar, klukkan, 17.45 – 21.00 verður haldinn Heimskaffihúsfundur á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs á Háskólatorgi.
Á fyrsta Heimskaffihúsafundinum, verður framleiðsla íslenskrar hönnunar til umræðu. Þar verður teflt saman verkfræðingum, tæknimönnum, iðnaðarmönnum, hönnuðum, frumkvöðlum og fjárfestum til að ræða hvernig efla megi framleiðslu á íslenskri hönnun hér á landi. (more…)
Handverk og hönnun á Íslandi

Oddný Jósefsdóttir Sporður Línakradalur 531 Hvammstangi +354 451 2598 +354 861 6390 oddajos@visir.is
Frábær bæklingur með myndum og upplýsingum um íslenska hönnun og handverk var gefinn út fyrir jólin, en rann út eins og heitar lummur og erfitt að nálgast hann. En það er hægt að nálgast hann á netinu, og þótt jólin séu búin, þá gefast önnur tækifæri til að gefa góða gjöf og gefa Íslandi gjöf, sjá http://handverkoghonnun.is
Auður Capital og Björk í New York Times
New York Times birti á aðfangadag frétt um nýjan sprotasjóð Auðar Capital í nafni Bjarkar Guðmundsdóttur og sjóðurinn hefur víða vakið mikla athygli, sjá grein í N.Y.T.: Auður Capital og Björk í New York Times
Hraðbraut sprotafyrirtækja
Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja – lauk fyrstu önn sinni síðastliðin föstudag. Viðskiptasmiðjan er nám sem flýtir ferli sprotafyrirtækja og gerir uppbyggingu þeirra markvissari.
Frumkvöðlar sem að sækja Viðskiptasmiðjuna eru ýmist með hugmyndir á frumstigi eða með fyrirtæki sem eru búnin að vera í einhvern tíma í rekstri og vilja þróa vaxtarsprota innan fyrirtækisins eða t.d. skipuleggja alþjóðavæðingu. Í Viðskiptasmiðjunni er boðið upp á námskeið sem skapa nauðsynlega þekkingu og leiðbeinendur og ráðgjafa sem vísa veginn. Á námskeiðinu skapast líka tengsl við aðra frumkvöðla og fjárfesta sem veitir stuðning, orku og eykur líkur á velgengni. Kennarar Viðskiptasmiðjunnar eru fræðimenn og frumkvöðlar sem margir hverjir eru hluti af nauðsynlegu stuðningskerfi sprotafyrirtækja, s.s. fjárfestar og ráðgjafar.
(more…)
Sprotasjóðurinn Björk
Blaðamannafundur var haldinn í húsakynnum Auðar Capital í gær. þ. 17. des, þar sem tilkynnt var um sprotasjóðinn Björk, sem er fagfjárfestasjóður fyrir fjárfesta að beina féi í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og taka virkan þátt í uppbyggingu á Íslandi um leið og þeir ávaxta fé sitt, eins og segir í fréttatilkynningu frá Auði Capital. Ennfremur segir að fjárfest verði í fyrirtækjum sem eru að leysa úr læðingi verðmæti sem byggja á sérstöðu Íslands og eru sjálfbær, þ.e.a.s. standa fjárhagslega undir sér, stunda samfélagslega ábyrga viðskiptahætti og eru umhverfisvæn. Sérstakur áhugi er á fjárfestingum sem nýta menntun okkar og menningu og búa yfir nýrri tækni og/eða nýrri nálgun.
Sjá nánar um sprotasjóðinn BJÖRK á heimasíðu Auðar Capital
- Fjólublár umfeðmingur, vex um land allt
Styrkir til sprota á Norð-Vesturlandi
FRÉTTATILKYNNING frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra
Fimmtudaginn 4. desember sl. fundaði stjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra öðru sinni um úthlutanir, byggðar á umsóknum sem bárust í nóvember. Alls bárust 27 umsóknir, um tæpar 62 milljónir króna. Stjórnin ákvað að úthluta samtals kr. 20.400.000, og skiptist sú upphæð í kr. 15.000.000 í peningum og andvirði kr. 5.400.000 í sérfræðiaðstoð sem bakhjarlar VNV leggja fram (sjá vef VNV).
Hér á eftir fylgir örstutt yfirlit um verkefnin, sem styrkt voru að þessu sinni: (more…)
Hvað er sjálfbær þróun ?
Á vef Umís, Environice má finna góðar og gagnlegar skýringar á lykilhugtökum í umhverfismálum okkar tíma. Meðal annars þessa fínu klausu um sjálfbæra þróun, og eins gott að glöggva sig á grundvallaratriðum núna þegar Paul Hawken er að koma til að ræða um sjálfbæra þróun á Íslandi. Sjá: www.environice.is og ítarefni á: http://www.samband.is/dagskra21/template1.asp?Id=748&sid=133
Sjálfbær þróun, eða Sustainable Development, eins og hugtakið nefnist á ensku, er venjulega skilgreind sem „þróun sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar, án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum”. Hér er með öðrum orðum átt við þróun sem getur haldið áfram, þ.e.a.s. þróun sem er „gerð til að endast“. (more…)
Maka sig sápu; glósur frá málþingi um sjálfbæra þróun
Ég mætti á málþing í dag um sjálfbæra þróun á tímamótum, sem Félag umhverfisfræðinga hélt á Hótel Sögu. Það mættu um sjötíu manns og spunnust líflegar umræður. Erindin berast vonandi inn á náttura.info innan skamms, en ég ætla hér að freista þess að gera smá skýrslu um atburðinn.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi setti fundinn og hélt smá tölu og ítrekaði hversu mikilvægt væri að skilgreina hvað felst í sjálfbærri þróun. Undir það var tekið í umræðum, þar sem nú væri þetta tískuorð væri eins gott að það missti ekki strax merkingu sínu og flettist út í einhverri ofnotkun. Hins vegar, var bent á í umræðum, má heldur ekki gera hugtakið svo heilagt að það þori enginn að nota það sem viti ekki nákvæmlega hvað það þýðir. Guðmundur Ingi vísaði í skýrslur Aðalheiðar Jóhannesdóttur í Háskóla Íslands sem hefur rannsakað þær lagaheimildir og önnur stjórnskýsluskjöl þar sem hugtakið sjálfbær þróun kemur fyrir, sem er víst nokkuð víða, og komist að því að hugtakið er nánast aldrei útskýrt. Og Guðmundur sagði að nú væri kominn tími til þess. (more…)



